Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1997, Qupperneq 4
★
4 ★
fréttir
LAUGARDAGUR 8. MARS 1997
Ársskýrsla Stígamóta 1996 á 7 ára afmælinu:
Vinir og kunningjar
hættulegustu óvinirnir
misnota þolendur í 37,4% tilvika miðað við 256 einstaklinga 1996
„Það sem vekur almennt athygli
við þessa skýrslu okkar er að hún
breytist lítið milli ára. Það segir
okkur að þær tölur sem við birtum
eru ekki háöar tilviljunum og að
ástandið er a.m.k. ekki betra en hér
kemur fram. Skýrslan staðfestir
líka að þolandinn er hinn hefð-
bundni íslendingur og sker sig ekki
á neinn hátt úr, kynferöisofbeldið
fer ekki í manngreinarálit. Það er
goðsögn að þolendur kalli á ein-
hvem hátt á kynferðisofbeldið og
henni þarf að útrýma,“ segir Guð-
rún Jónsdóttir hjá Stigamótum þeg-
ar kynnt var ársskýrsla Stígamóta
fyrir 1996.
Stígamót halda upp á 7 ára
starfsafmæli sitt í dag og í gær
kynntu Stígamótakonur árs-
skýrsluna fyrir blaðamönnum.
Þar kemur fram að 256 einstak-
lingar leituðu til Stígamóta í
Tengsl þolenda við ofbeldismenn
0,5%S Stjúpmóöir
0,8
2.7
3.8
3,8
4,4
4,4
5.2
6.3
8,7
10,9
10,9
37,4
1 Frænka
■■ Annaö
HBH Eiginmaöur/sambýlism.
■■■ Mágur/giftur inn í fjölsk.
■saa Ati
■MMFaöir
■■■■iókunnugir karlar
Bróöir
IFrændi
Fjölskylduvinur
Vinur/kunningi
%
10
15
20
25 30 35 4Q
iml\
fyrsta skipti á síðasta ári og þeim
tengdust 366 ofbeldismenn. Það
þýðir m.ö.o. að 40% þolenda hafa
lent í fleiri en einum ofbeldis-
manni. Alls komu 193 í annað
sinn á síðasta ári.
Mest börn og unglingar
Til Stígamóta hafa leitað 2.205
einstaklingar frá upphafi og sam-
tökin taka við 15-20 símtölum á dag.
Foreldrar spyrja t.d. um hvemig
þeir eigi að hregðast við, hvort
hræðsla þeirra við að böm þeirra
kynnu að hafa orðið fyrir kynferðis-
ofbeldi geti átt við rök að styðjast.
Konur em yfir 90% þolenda kyn-
ferðisofbeldis og af 256 einstakling-
um sem leituðu til Stígamóta á síð-
asta ára vora 22 karlar.
„Böm og ungmenni era í lang-
mestri hættu þegar rætt er um kyn-
ferðisofbeldi og þegar skoðaðar era
tölur um aldur þolenda þegar of-
beldið er framið kemur í ljós að
78,7% þeirra sem leituðu aðstoðar
árið 1996 voru beittir ofbeldi áður
en þeir urðu 16 ára. Ferlið er yfir-
leitt það að leitað er á bömin með-
an þau geta lítið viðnám veitt og oft
færir ofbeldismaðurinn sig svo nið-
ur á yngra bam þegar hitt eldist, oft
innan sömu fjölskyldu,“ segir Guð-
rún Jónsdóttir.
50% úti á landi
Guðrún segir margar goðsagnir
vera í gangi í sambandi við kynferð-
isofbeldið. Ein er sú að það gerist
bara í stórborgum og önnur segfr að
það séu bara ókunnugir og ljótir karl-
ar sem fremji þessi voðaverk. Þegar
skoðaðar eru tölur um ofbeldið á síð-
asta ári áttu 51,6% tilvikanna sér stað
úti á landi og 33,2% í Reykjavík.
Ókunnugir karlar eru aðeins á ferð í
6,3% tilvika. Samkvæmt skýrslunni
eru það vinir og kunningjar sem eru
verstu óvinimir en þeir eru ofbeldis-
mennfrnir í 37,4% tilvika.
Stígamótakonur kynntu í gær ársskýrslu samtakanna fyrir órið 1996. Þær
eiga 7 ára starfsafmæli í dag. Á myndinni eru Guðrún Jónsdóttir og Theó-
dóra Þórarinsdóttir að kynna skýrsiuna fyrir blaðamönnum. DV-mynd E.ól
Uppeldisaðstæður þolenda
0,4%
0,8
0,8
2,0
2,3
6,6
12.5
74.6
i Fööur og stjúpu
| Ættleidd
| Afa og ömmu
,1 Fööureinum
I Fósturforeldrum
I Móöureinni
Móöur og stjúpa
%
10
20
30
40
50
60
Kynforeldrum
70 80
Þolendur hafa í 14-17% tilvika
gert tilraun til sjálfsvígs og að sögn
Guðrúnar Jónsdóttur leiðast
þolendur kynferðisofbeldis oft út í
neyslu áfengis og fikniefna og síðan
oft út í vændi.
í skýrslu Stígamóta kemur í ljós
að aðeins 2,8% þeirra tilvika sem
komu til kasta samtakanna á síð-
asta ári voru kærð til bamavernd-
arnefndar og aðeins 8,5% til lög-
reglu.
Aldur þolenda
- þegar ofbeldiö er framiö -
60%
50
40
30
20
10 7'8
53,7
||
IÉi£°i§
<
O to 010)0) O)
H rl rH OJ CO ^
u!> A <i <i í o
rH rH CS m
Fæst að dómsmálum
„Megnið af þessum brotum verð-
in- aldrei að dómsmálum og það
þykir okkur vitaskuld súrt í broti.
Við telium að mnræðan sé í raun
það eina sem hægt er að gera til for-
varna og hún má aldrei deyja og
þessar raddir mega aldrei þagna.
Við getum varað bömin okkar við
en það dugar væntanlega ekki gegn
hinum fúllorðna ofbeldismaimi. Það
sem umræðan getur gert er að
hjálpa þolendum til þess að segja frá
þessum hörmulegu athurðum og
vekja fólk almennt til umhugsun-
ar,“ segir Guðrún Jónsdóttir. -sy
Jeppamenn
á áætlun
„Ég er að ræsa síöustu bílana
úr Hrauneyjum og við eram á
áætlun þrátt fyrir leiöindaveð-
ur,“ sagði Ragnar Kristinsson,
einn leiðangursstjóra Ferða-
klúbbsins 4x4, sem lagöi lagði af
stað úr Reykjavík upp á
Sprengisand í gærmorgun.
Ragnar segir að 100 bílar séu
í hópnum og aö auki 20 aðstoð-
arbílar. Um 260-280 manns era í
bílunum. Hann sagði í gær að
hópurinn ætlaði að gista í Nýja-
dal og síðan hefði áætlunin
hljóðaö upp á að koma til Akur-
eyrar í kvöld. Vegna veðursins
mætti þó allt eins búast við ein-
hverjum töfum.
„Það er kannski aldrei of
seint að snúa við en við látum
engan bilbug á okkur finna og
veörið er heldur skaplegra nú
en þegar við lögðum af stað,“
sagði Ragnar. -sv
IDV
ftMION
íslenskt dagsverk efnir til starfsdags:
Framhaldsskóla-
nemar styrkja
indverska jafnaldra
- stefnt að Qölbreyttu iðnnámi ytra
„Þetta er samstöðuverkefni allrar
námsmannahreyfingarinnar og
Hjálparstofiiunar kirkjunnar og
felst í því að styrkja námsmenn á
framhaldsskólaaldri á Indlandi. Að-
aláherslan verður lögð á fræðslu
hér heima og síðan að reyna að
koma upp fjölbreyttu verknámi
ytra,“ segja Anna Lára Steindal og
Hallfríður Einarsdóttir hjá íslensku
dagsverki.
Þær stöllur segja námsefhi veröa
dreift í skóla og að mjög mikilvægt
sé fyrir ungt fólk að átta sig á því að
það er fleira til í heiminum en álver
og fiskur, ungt fólk á íslandi þurfi
með öðrum orðum að líta upp úr
naflanum á sér.
Þær segja að starfsdagur verði
haldinn 13. mars þar sem mennta-
málaráðherra hafi gefið fram-
haldsskólanemum leyfi til þess að
mæta ekki í skólann heldur bjóða
atvinnurekendum og öðrum
krafta sína til kaups. Engin tak-
mörk séu fyrir því sem framhalds-
skólanemar geti gert og allt féð
renni til þessa hjálparstarfs á Ind-
landi. Um 20 skólar á framhalds-
skólastiginu taka þátt í verkefn-
inu og því er bara að hafa sam-
band við þá.
„Indverjar hafa sjálfir skil-
greint vanda sinn, sem er gríðar-
legur, og Hjálparstofnun hefur
verið í mjög góðu samstarfi við
þær tvær stofnanir ytra sem
standa að þessu verkefni. Fólk
þarf því ekki að óttast að aðstoð-
in héðan komist ekki til skila.
Þar hafa menn lagt það niður fyr-
ir sér hversu mikið þurfl af
saumavélum, varahlutum í bíla
o.s.frv. þannig að þetta er mjög
vel skipulagt."
Á sunnudaginn verður haldinn
málfundur í Odda, stofu 101, frá kl.
16-19 undir yfirskriftinni islenskt
dagsverk og alþjóðahyggjan. Fjallað
verður um mikilvægi alþjóðlegs
hjálparstarfs og meðal ræðumanna
verða Páll Skúlason og Jón Ormur
Halldórsson.
-sv
Bryndís Ólafsdóttir, fyrrverandi sunddrottning og núverandi sterkasta kona
Islands, sést hér fara létt meö aö lyfta bifreiö af geröinni Nissan Micra '
snjónum í gær. Bryndís mun sýna krafta sina í Kringlunni í dag klukkan 14
en þá veröur kynning á keppninni sterkasta kona íslands 1997 sem fram fer
dagana 15. og 16. mars. DV-mynd BG