Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1997, Síða 6
LAUGARDAGUR 8. MARS 1997 l^V
stuttar fréttir
Sakaruppgjöf samþykkt
Dúman, neðri deild rússneska
þingsins, samþykkti með yfir-
gnæfandi meirihluta atkvæða í
gær að veita uppreisnarmönnum
í Tsjetsjeníu sakaruppgjöf til að
stuðla aö frelsi rússneskra stríðs-
fanga.
Stasi-menn dæmdir
Dómstóll í Berlín dæmdi þrjá
fyrrum starfsmenn austur- þýsku
leyniþjónustunnar Stasi í skil-
orðsbundið fangelsi fyrir að hafa
skotið skjólshúsi yfir tíu mest eft-
irlýstu skæruliða Vestur-Þýska-
lands.
Manley látinn
Michael Manley, fyrrum for-
sætisráðherra
Jamaiku og einn
litrikasti stjórn-
málamaðurinn á
eyjum Karíbahafs-
ins, lést í fyrra-
kvöld af völdum
krabbameins í
blöðruhálskirtli. Hann var 72 ára.
Svarta ekkjan dæmd
Dómstóil í Austurríki hefur
j dæmt 66 ára gamla konu, sem
í fékk viðurnefnið „svarta ekkjan"
1 í lífstíðarfangelsi fyrir að eitra
í fyrir 77 ára gamlan pensjónista.
Staða kvenna betri
Rúmlega tveir þriðju hlutar
Þjóðverja telja að staða kvenna
| hafi batnað á þeim áratugum sem
Iliðnir eru frá því kvennahreyf-
ingin skaut upp kollinum á átt-
| unda áratugnum.
Hættulegur farmur
j Danskt flutningaskip fekk ekki
I að koma í höfn í Frakklandi í gær
I vegna hættulegra efna um borð.
Algjört jarösprengjubann
| Nefnd á vegum Evrópuráðsins
hvatti aðildarríki þess til að
í koma á algjöru banni við fram-
;j leiðslu og notkun jarösprengna.
Áhersla á velferö
Norsk stjómvöld lögðu fram í
J gær efnahagsáætlun sína til
næstu fjögurra ára og þar veröur
J höfuðáherslan lögð á að styrkja
velferðarkerfið.
Verkföll hjá Renault
Reiðir verkamenn hjá frönsku
5 bílaverksmiðjunum Renault
| efndu til skyndiverkfalla í
j nokkrum löndum í gær til að
mótmæla fyrirhugaðri fækkun
| starfsmanna og lokun verksmiðju
í Belgíu.
Sprengt í Kína
I Að minnsta kosti tveir létu líf-
J ið og nokkrir særðust þegar
sprengja sprakk i strætisvagni á
j mesta annatíma 1 Peking, höfúð-
\ borg Kína, f gær. Reuter
Hlutabréfamarkaðir:
Komnir á
metslóðir
Verð á hlutabréfum í evrópskum
kauphöllum rauk upp á fimmtudag
og sums staðar voru slegin met.
Þetta kemur í kjölfar mikil skriðs
upp á við í Wall Street og Dow Jones
hlutabréfavísitalan hefur hækkað
aftur, raunar meira en sem nemur
því sem hún hafði lækkað á skömm-
um tíma. Hækkunin nam 93 punkt-
um yfir nóttina. í London og Fran-
furt eru menn aftur famir að nálgast
metslóöirnar en eitthvað virðist
ganga lakar í Asíu. Nokkur lækkkun
varð bæöi í Hong Kong og Tokyo.
Sykurinn lækkar nokkuö eftir
mikla uppsveiflu undanfarið, lækkar
um tæpa sex dollara, úr 276,1 dollar
tonnið. Kaffið hækkar aftur eftir nið-
ursveiflu í síðustu viku, fer úr 1.535
dollurum tonnið í 1.597 dollara.
Bensínið er mjög stööugt milli vikna,
sveiflur eru um einn til tvo dollara
en verðið er það sama, bæði 95 og 98
oktana bensín, 95 á 208 dollara tonn-
ið og 98 á 212 dollara tonnið. Tunnan
af hráolíu hækkar úr 19,65 dollurum
í 19,70 dollara. Reuter
Uppreisnarmenn í Albaníu enn vígreifir:
Hafna tilboðinu
um sakaruppgjöf
Vopnaðir uppreisnarmenn á bak
við götuvígi í bæjunum Sarande og
Vlore í suðurhluta Albaníu neituðu
að leggja niður vopn í gær, þrátt
fyrir að Sali Berisha forseti hefði
boðið þeim sakaruppgjöf.
Ráðamenn í Bandaríkjunum og
Evrópu fógnuðu þeirri ákvörðun
Berishas að stöðva framsókn hers-
ins til suðurs til að binda enda á
uppreisnina og hvöttu forsetann,
stjórnarflokkinn og stjómarand-
stöðuflokka til að komast að póli-
tískri lausn á stjómmálakreppunni
í landinu.
Nefndir uppreisnarmanna í bæði
Sarande og Vlore, þar sem óeirðir
og gripdeildir hófust um síðustu
helgi, sögðu að ekki yrði gefist upp
fyrr en Berisha færi frá.
„Við látum vopn okkar ekki frá
okkur fyrr en Berisha segir af sér,“
sagði Fuat Karali, fyrrum lögreglu-
þjónn og nú félagi í uppreisnamáði
Sarande, á fjöldafundi á aðaltorgi
bæjarins í gær.
Götuvígi umhverfis bæinn vom
styrkt og íbúamir fimmtán þúsund
bjuggu sig undir langt umsátur.
Sömu sögu var að segja í Vlore, sem
er um 160 kílómetra norður af Sar-
ande.
„Þeir sögðu að sakamppgjöf
nægði ekki. Þeir vilja að Sali Ber-
isha segi af sér og þeir vilja fá pen-
ingana sína aftur," sagði vestrænn
fréttamaður í símaviðtali frá Vlore.
Hundmð þúsund Albana töpuðu
aleigunni í vafasömum fjárfestinga-
sjóöum sem fóm svo á hausinn í
janúar.
Reuter
Major kok-
hraustur og
segist vinna
kosningarnar
John Major, forsætisráð-
j herra Bretlands, lætur hrika-
J legar niðurstöður skoðana-
j kannana ekki slá sig út af lag-
j; inu, heldur
hélt hann því
fram í gær að
íhaldsflokkur
j hans gæti unn-
I ið kosningarn-
ar sem verða
haldnar í síð-
ij asta lagi í maí
í vor.
„Nýju hugmyndimar eru
okkar, nýju áætlanimar eru
okkar,“ sagði Major á fundi í
Huntington-kjördæminu í aust-
urhluta Englands, sama dag og
tvær skoðanakannanir sýndu
að Verkamannaflokkurinn hef-
; ur meira en tuttugu stiga for-
J skot á íhaldið.
Námsmenn í
Serbíu höfðu
sigur með af-
sögn rektors
Háskólanemar í Belgrad
bundu í gær enda á mótmæla-
i: aðgerðir sínai- sem höfðu staðið
; í 106 daga þegar rektor háskól-
ans sagði af sér til að friða þá.
; Tilburðir stjómar sósíalista til
5 að stjórna fjölmiðlunum kunna
i hins vegar að verða kveikjan að
| nýrri ólgu.
Námsmenn buðust til að
# mæta aftur í kennslustundir í
J gær, fostudag, ef rektor háskól-
? ans segði af sér. Rektor hafði
J sagt að hann mundi ekki segja
| af sér fyrr en stúdentar mættu
j; aftur í tíma.
Lagt var að stúdentum að
; láta reyna á loforð rektors.
* Stjómvöld höfðu hótað að taka
| fyrir fjárveitingar til háskólans
j ef námsmenn mættu ekki aftur
1 í fyrirlestra.
ísraelsmenn
ganga af friðar-
ferlinu dauðu
Embættismenn í heimastjóm
’ Palestínumanna sögðu í gær að
ísraelsmenn væm að ganga af
! friðai-ferlinu dauðu og kröfðust
5 þess að Yasser Arafat, forseti
; Palestínumanna, sliti samn-
i ingaviðræöum við ríki gyöinga.
Palestínumenn eru reiðir
•j vegna þeirrar ákvöröunar ísra-
;; elskra stjómvalda að byggja
; þúsundir íbúða fyrir gyðinga í
;j arabíska hluta Jerúsalem. Þá
I jók það á vonbrigði Palestínu-
; manna að Benjamin Netanya-
j hu, forsætisráöherra ísraels,
;> ákvað að afhenda aðeins tvö
I prósent þeirra 70 prósenta
lands sem ísraelsmenn ráða
| enn á Vesturbakkanum.
Tsjúbaís skipað-
i ur aðstoðarfor-
sætisráðherra
IBorís Jeltsín Rússlandsfor-
seti skipaði síðegis í gær
Anatolí Tsjúbals í embætti
fyrsta aðstoðarforsætisráð-
herra.
Tsjúbaís hefur
upp á síðkastið
verið starfs-
mannastjóri
forsetans.
Tsjúbais
mun hafa yfir-
umsjón með
efhahagsumbótum stjórnarinn-
ar en flestir höfðu búist við að
hann yrði skipaður í embættið.
Tsjúbaís er 41 árs og nýtur
hann töluverðrar virðingar á
Vesturlöndum sem umbóta-
maður. Hann þykir einnig af-
burða stjómandi og skipuleggj-
andi. Reuter
NMNMWMSMMMMMKMMMMMHMMnsnMKKMðnMMMMMMI
Mikill hugur er í uppreisnarmönnum í bænum Sarande í suðurhluta Albaníu. Sfmamynd Reuter
Ritt Bjerregaard fyrir rétti í Kaupmannahöfn:
Gaf aldrei samþykki sitt
fýrir birtingu ESB-dagbóka
Ritt Bjerregaard, umhverfismála-
stjóri Evrópusambandsins, þvertók
fyrir það fýrir rétti í Kaupmanna-
höfn á dögunum að hún hefði gefið
þegjandi samþykki sitt fyrir því að
dagblaðiö Politiken birti dagbækur
hennar frá fyrstu sex mánuðunum í
embætti í Brussel, eins og forráða-
menn blaðsins halda fram.
„Þaö er rangt. Ég hef aldrei gefið
samþykki, þegjandi eða annars kon-
ar, fyrir því að dagbókin yrði gefm
út,“ sagði Bjerregaard í réttarsaln-
um, að því er fram kemur í Politi-
ken nýlega. Bjerregaard kemur til
íslands um næstu helgi og heldur
opinberan fyrirlestur í Reykjavík.
Dagbókin olli miklu fjaðrafoki
innan Evrópusambandsins þar sem
danski kommissarinn fór miður
fögrum orðum um marga leiðtoga
aðildarþjóðanna, þar á meðal Jacqu-
es Chirac Frakklandsforseta og
Helmut Kohl Þýskalandskanslara.
Bjerregaard ætlaði að gefa dagbæk-
umar út í bókarformi en sá sig til-
neydda til að hætta við.
Ekki var þetta nú í fyrsta sinn
sem Ritt Bjerregaard komst í hann
krappan. Hún var til dæmis rekin
úr embætti menntamálaráðherra
Danmerkur árið 1978 þegar í ljós
kom að hún hafði eytt 60 þúsimd
dönskum krónum af opinberu fé í
þrettán daga opinberri ferð til Par-
ísar. Féð notaði hún m.a. f límúsín-
ur og uppihald á glæsihótelinu Ritz.
Hún neitaði að greiða eyri til baka,
hvað þá að biðjast aifsökunar á
framferðinu. Árið áöur hafði Bjer-
regaard látiö Stórabeltisferju
dönsku ríkisjámbrautanna bíða eft-
ir sér og ráðherrabílnum.
Bjerregaard átti ekki alltaf sjö
dagana sæla innan jafnaðarmanna-
flokksins þar sem mörgum þótti
hún hafa uppi einræðistilburði þeg-
ar hún gegndi embætti þingflokks-
formanns. Þingmenn gerðu upp-
reisn og völd hennar vom skorin
niður 1991. Sama ár varð allt vit-
laust vegna búsetu hennar. Hún
fékk sér stóra lúxusíbúð á besta stað
í Kaupmannahöfn. Engu að síður
hélt hún lögheimili sínu í Óðinsvé-
um og fékk af þeim sökum stórfé i
styrki sem hún svo neitaði að gefa
eftir. Bæjarfélagið stefndi henni fyr-
ir vikið.