Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1997, Qupperneq 16
LAUGARDAGUR 8. MARS 1997 JJj'V
Björk Þórðardóttir missti sambýlismann og dóttur í Súðavíkurflóðinu - Gengið margsinnis á veggi í kerfinu eftir það:
Hörmungarnar sem dundu yfir
Súðavík í janúar 1995 og Flateyri í
október sama ár sitja enn í okkur
en fyrir aðstandendur þeirra sem
fórust í snjóflóðunum er minningin
enn þungbærari. Björk Þórðardóttir
er ein þeirra sem misstu sína nán-
ustu. Sambýlismaður hennar, Haf-
steinn Björnsson, fórst í Súðavík
sem og yngri dóttir Bjarkar, Júlí-
anna Bergsteinsdóttir, 12 ára, þegar
flóðið féll á hús þeirra aö Túngötu 6
aðfaranótt 16. janúar. Björk var að
vinna á ísafirði þegar flóðið féll.
Hún hefur átt mjög erfitt upp á
síðkastið. Hjálpar þar margt til.
Hún er ósátt við að hafa ekki verið
vöruð við snjóflóðahættunni þegar
þau Hafsteinn keyptu húsið
nokkrum mánuðum fyrir flóðið og
slælegur frágangur persónulegra
muna eftir flóðið tók mjög á hana. í
júní 1995 keypti hún blómabúð við
Laugaveginn til að hafa um nóg að
hugsa en hana varð hún að selja
haustið 1996 því öll baráttan við
kerfið var farin að fara illilega með
taugakerfið og fannst henni hún
ekki vera manneskja til að reka
verslun lengur.
Þyngst hefur lagst á hana að fá
Súðavíkurslysið ekki tekið til opin-
berrar rannsóknar en hún var í
hópi sjö Súðvíkinga sem sendu rík-
issaksóknara bréf og báðu um opin-
bera rannsókn. Ríkissaksóknari
hefur nú svarað erindinu þar sem
hann hafnar rannsókn og eru þau
mjög ósátt við það.
Förum með
málið lengra
Björk segir að þau ætli með mál-
ið lengra en hafi ekki ákveðið leiðir
í þeim efnum. Hún segist hafa safn-
að kröftum til að tala þeirra máli,
tími hafi verið kominn til að gefa
Hafsteini Númasyni smá hvíld en
Jeppafjaðrirnar
komnar:
Framfjaðrir Daihatsu Rocky
11.300 kr.
Afturfjaörir Daihatsu Rocky
14.500 kr.
Afturfjaðrir Mitsubishi Pajero
(stuttur) 14.100 kr.
Afturfjaðrir Mitsubishi Pajero
(langur) 15.500 kr.
Afturfjaðrir Mitsubishi L-300
16.100 kr.
Framfjaðrir Nissan Patrol
12.400 kr.
Afturfjaðrir Nissan Patrol
13.200 kr.
Framfjaðrir Suzuki
10.100 kr.
Afturfjaðrir Suzuki
10.800 kr.
Afturfjaðrir Isuzu Trooper, dísil
15.500 kr.
Einnig fjaðrir í margar gerðir
Mazda sendi- og pallbifreiða,
Toyota Hi-Ace og Toyota LiteAce
sendibifreiðar.
Pantanir óskast sóttar.
FJAÐRABÚÐIN PARTUR HF.
Eldshöfða 10
Símar 567-8757 & 587-3720
- segir Björk sem ætlar að halda áfram baráttunni þótt það taki hana alla eilífð
hann hefur verið ötull talsmaður
þess að fá Súðavíkurslysið rannsak-
að og safnað saman ógrynni gagna.
Björk segir að hann verði að fá tíma
til að sinna fjölskyldunni en þau
Berglind Kristjánsdóttir eignuðust
barn í desember sl. Þau misstu sem
kunnugt er þrjú börn sín í snjóflóð-
inu. Björk segir að ef einhver ætti
skilið að fá orðu þá væri það Haf-
steinn Númason.
Lokaðar dyr
og læstar skúffur
Björk segist ekki ætla að gefast
upp fyrr en í fulla hnefana. Margbú-
ið sé að spá fyrir henni að hún nái
rúmlega 90 ára aldri og hún eigi því
a.m.k. rúm 40 ár eftir ólifuð og nóg
af þrjósku. Hún ætlar að nota þann
tíma ef með þarf.
„Við erum búin að standa í þess-
ari baráttu í rúm tvö ár og reynt all-
ar friðsamlegar leiðir til að fá málið
rannsakað, þ.e. allt það sem úr-
skeiðis fór þegar flóðið féll. Núna
síðast, þ.e. í ágúst i fyrra, sendum
við ríkissaksóknara bréf og þar fór-
um við fram á rannsókn. Það tók þá
sem sagt rúmlega hálft ár að ákveða
að hafna rannsókn. Þeir voru ekki
að hafa fyrir því að svara okkur öll-
um heldur sendu bara svar til eins
okkar. Okkur er sýnd alveg ótrúleg
lítilsvirðing og við komum trekk í
trekk að lokuðum dyrum og læstum
skúffum í kerfinu. Þurfum við virki-
lega að leita út fyrir landsteinana til
að fá hjálp?,“ spyr Björk og segist
eiga fá svör eftir.
Tófur meira me
tnar en fólk?
Hún segir að í svari Hallvarðs
Einvarðssonar ríkissaksóknara fari
hann eins og köttur í kringum heit-
an graut. Hann minnist t.d. ekki á
þau hús sem talin voru á „eld-
rauðu“ hættusvæði, hús sem ekki
voru rýmd, og flóðið fór yfir.
„Er ekki bara það eitt tilefni til
þess að mádið sé rannsakað? Af
hverju voru hús á eldrauðu svæði
ekki tæmd? Við bara trúum ekki
þessum svörum. Svo er ríkissak-
sóknari eldsnöggur að afgreiða mál
eins og með tófuna sem drepin var í
Svarfaðardalnum. Þar er fólk dregið
til ábyrgðar umsvifalaust. Eru tófur
virkilega meira metnar en fólk?“
Erfið forræðismál
Björk býr í dag með eldri dóttur
sinni, 19 ára, sem eftir skilnað
Bjarkar við bamsfóður hennar fyrir
tíu árum, var dæmd til að vera hjá
honum en Júlíanna hjá móður
sinni. Hún flutti síðan til Bjarkar
eftir flóðið og hafa þær styrkt hvor
aðra í erfiðleikunum.
Eftir að Björk og Hafsteinn tóku
saman árið 1994 reyndu þau að fá
eitt þriggja bama hans frá fyrra
hjónabandi til þeirra. Það var hjá
þeim í nokkra mánuði en þá var
dæmt í forræðismáli Hafsteins
þannig að ekki mætti skilja systkin-
in að. Fyrir átti Hafsteinn tvö börn
sem nú búa á ísafirði, 18 og 20 ára.
Björk segir öll þessi forræðismál
hafa bæst ofan á sorgina. Nóg hefði
samt gengið á.
Sá leikföng og
öt dóttur sinnar
Björk reynir að halda áfram
sambandinu við þrjú yngri böm
Hafsteins heitins sem búa í Hafn-
arfirði hjá móður sinni. Hún
heimsækir þau reglu-
lega en i einni slíkri
heimsókn skömmu
eftir snjóflóð var
henni hins vegar
brugðið. Þá sá hún
börnin í fötum af
Júlíönnu heitinni og
að leik með leikföng-
in hennar. Allt hafði
þetta gerst án þess að
samband væri haft
við hana en hún var
þá nýkomin frá Súða-
vík til að huga að
persónulegum mun-
um.
Til Súðavíkur fór
hún í lok febrúar
1995. Þá var hreins-
unarstarfi að mestu
lokið. Eftir nokkra
leit fann hún lítið
sem ekkert af sínum
munum. Það var síð-
an fyrir tilviljun sem
hún fann hluta af
dótinu í kjallara en
þar hafði það hrein-
lega verið falið.
„Ég er alls ekki að
sakast við þau í
Hafnarfirði. Þau
töldu að sjálfsögðu að
þetta væri af góðum
vilja gert. En að
senda persónulegar
eigur mínar svona án
þess að tala við mig
finnst mér mjög ein-
kennilega að farið,“
segir Björk.
Rutt yfir
manns f
yrra líf
Hún gagnrýnir
einnig hreinsunar-
starfíð sjálft. Ekki
hafi verið leitað eftir
samþykki eftirlifandi
íbúa til að leita í rúst-
unum.
„Verst er sú til-
finning að finnast
eins og jarðýta hafi
rutt yfír manns fyrra
líf, eins og maður skipti engu máli.“
Björk er ekki sátt við fyrrverandi
sveitarstjóra Súðavíkur, Sigríði
Hrönn Elíasdóttur. Meðal annars
fyrir að hafa ekki sagt þeim Haf-
steini að flóðalínan lægi nokkra
metra frá eldhúsglugganum í verka-
mannabústaðnum við Túngötu sem
þau keyptu nokkrum mánuðum fyr-
ir flóðið.
„Ég
hefði
„Það er ekki nóg með að við þurfum að takast á við það sem gerðist í Súðavík heldur einnig
allt það sem á eftir kom,“ segir Björk Þórðardóttir m.a. í viðtali við DV um eftirköstin af snjó-
flóðinu f Súðavík sem lagst hafa mjög þungt á hana. Hún ætlar ekki að gefast upp fyrr en
opinber rannsókn fer fram á slysinu.
aldrei keypt húsið ef ég hefði vitað
það. Segja má ef til vill að ég hefði
átt að spyrja en ég hef alltaf treyst
fólki og þar sem ég myndi aldrei
gera öðrum þetta þá var ég svo mik-
iö bam að halda að fólk hefði ekki
samvisku til að gera svona nokk-
uð,“ segir Björk.
Átti ekki orð
Hafsteinn Björnsson, sambýlismaður Bjark-
ar.
Eftir snjóflóðið fékk Björk húsið
greitt til baka eins og hún hefði skil-
að því inn sjálfviljug, með affóllum
og öllu tilheyrandi.
„Ágúst Björnsson sveitarstjóri
spurði mig síðan hvort við gætum
ekki útbúið bréf sem ég undirritaði
um að ég færi ekki fram á meiri
peninga fyrir húsið. Ég átti ekki til
aukatekið orð og sagði auðvitað nei.
En til þess að fá til baka það sem ég
var búin að leggja í húsið, þ.e. að
frádregnum affollum, varð ég að fá
mér lögfræðing því þeir fyrir vestan
gátu ekki einu sinni reiknað þetta
rétt út. Þama munaði að vísu ekki
hárri fjárhæð en mér er alveg
sama. Þetta er bara lítið dæmi um
hvemig farið hefur veriö meö okk-
ur. Hvað skyldu þessir menn hafa
leikið þennan leik oft áður þegar
félagslegum íbúðum er skilað inn?
Fólk spurði mig af hverju ég hefði
ekki farið í mál út af þessu en mér
finnst að svona hlutir eigi að ger-
ast af sjálfu sér. Við eigum ekki
DV-mynd Pjetur
að þurfa að standa í þessu,“ segir
Björk.
Brjálæðislegt
kæruleysi
Hún er hneyksluð yfir því að yfir-
völd í Súðavík skuli leigja út hús 1
gömlu Súðavík, hús sem í dag séu
dæmd á hættusvæði. Barnafjöl-
skyldur búi í mörgum þessara húsa
og þetta sé „brjálæðislegt kæru-
leysi“. Hún hefði haldið að menn
hefðu lært af reynslunni en það
væri greinilega misskilningur.
Eins og áður sagði varð Björk að
selja blómabúð í Reykjavík, Rauðar
rósir við Laugaveginn, í fyrra eftir
að hafa rekið hana í rúmt ár. Hún
segir að reksturinn hafi hjálpað sér
að gleyma erfíðleikunum um tima.
Síðan þegar ekkert gekk í málum
þeirra Súðvíkinga og þau látin bíða
endalaust eftir svörum hafl hún ein-
faldlega farið yfir á taugum.
Sett á geðlyf
Hún er í dag á þunglyndislyflum
einfaldlega til að halda sér gangandi
og vera fær um‘að vinna fyrir þeim
mæðgum, en slík lyf hefur hún
aldrei þurft að taka fyrr á lífsleið-
inni. Hún segist um tíma í vetur
hafa verið komin mjög neðarlega,
þó ekki svo að hún hafi íhugað að
segja skilið við þennan heim. Og