Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1997, Side 34
46
LAUGARDAGUR 8. MARS 1997 3DV
aukaafslátt af
smáauglýsingum
DV
Smáauglýsingar
550 5000
og greiðslukorta-
afsláttur og
stighœkkandi
birtingarafsláttur
UPPBOÐ
Framhald uppboös é eftirfarandi
eignum verður héð á þeim sjálf-
um, sem hér seglr:
Laugateigur 13, íbúð í kjallara og
geymsla undir stiga, þingl. eig. Kolbrún
Engilbertsdóttir, gerðarbeiðendur Alþjóð-
legar bifreiðatryggingar á ísl. sf. og
Byggingarsjóður ríkisins, miðvikudaginn
12. mars 1997 kl. 14.00.
Sigtún 37, 3ja herb. kjallaraíbúð m.m.,
merkt 0002, þingl. eig. Ingunn Ásta
Gunnarsdóttir og Gunnar R. Sveinsson,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins,
miðvikudaginn 12. mars 1997 kl. 14.30.
Skúlagata 30, 0101 veitingahús á L hæð
og 8 fm á 2. hæð, 47,54%, þingl. eig.
Jafnasel ehf., Rvk, gerðarbeiðandi Gjald-
heimtan í Reykjavik, fimmtudaginn 13.
mars 1997 kl. 14,00,_____________
Smiðshöfði 19, þingl. eig. Global hf.,
gerðarbeiðandi Gjaldheimtan í Reykja-
vík, miðvikudaginn 12. mars 1997 kl.
15.00.
Valhúsabraut 19, Seltjamamesi, 50%
ehl., þingl. eig. Margrét Kristinsdóttir,
gerðarbeiðandi Húsbréfadeild Húsnæðis-
stofnunar, fimmtudaginn 13. mars 1997
kl. 14.30._______________________
Öldugrandi 3, 4ra herb. íbúð merkt 03-
01, þingl. eig. Guðrún Garðarsdóttir,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verka-
manna, funmtudaginn 13. mars 1997 kl.
15.00.___________________________
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
UPPB0Ð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Bæjarhrauni
18, Hafnarfirði, sem hér segir á
eftirfarandi eignum.
Amarhraun 29, 0102, Hafnarfirði, þingl.
eig. Ema Hvanndal Hannesdóttir, gerðar-
beiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna,
þriðjudaginn 11. mars 1997 kl. 14.00.
Álfholt 48, 0302, Hafnarfirði, þingl. eig.
Húsnæðisnefnd Hafnarfjarðar, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður verkamanna,
þriðjudaginn 11. mars 1997 kl. 14.00.
Ásbúð 52, Garðabæ, þingl. eig. Hermann
Sigurðsson, gerðarbeiðendur Garðabær
og Húsnæðisstofnun ríkisins, þriðjudag-
inn 11. mars 1997 kl. 14.00.
Gjáhella 1, Hafnarfirði, þingl. eig. Frjálsi
lífeyrissjóðurinn og Einar Þór Einarsson
(talinn eigandi), gerðarbeiðandi Frjálsi
lífeyrissjóðurinn, þriðjudaginn 11. mars
1997 kl. 14.00.
skák_____________________________
Deildakeppni Skáksambands íslands:
Hörð barátta Reykjavíkurfélaganna
- Taflfélag Hólmavíkur teflir í 1. deild að ári
Eftir liðsflótta úr Taflfélagi
Reykjavíkur síðustu misseri hefur
félagið ekki lengur þá yfirburða-
stöðu í deildakeppni Skáksambands
íslands sem áður var. Þrátt fyrir er-
lenda málaliða tókst sveit félagsins
ekki að hrista alíslenska sveit Tafl-
félagsins Hellis af sér í seinni hluta
keppninnar, sem fram fór um liðna
helgi, og á endanum skildu sveitim-
ar hnífjafnar að vinningum. I inn-
byrðis viðureign hafði sveit TR bet-
ur og var því dæmdur sigurinn á
stigum. Sveit TR hafði einnig sigur
í 2. deild en í 3. og 4. deild sigraði
sveit frá Taflfélaginu HeUi. Reykja-
víkurfélögin tvö hrósuðu því sigri í
öllum deildum.
Úrslit keppninnar réðust ekki
fyrr en á elleftu stundu. Eftir að
Hellismenn töpuðu fyrir TR í þriðju
síðustu umferö var eins og þeir
fengju byr í seglin. Sveit Skáksam-
bands Vestfjarða lá í valnum í
næstu umferð með 8-0 og staðan í
lokaumferðinni gegn sveit Skákfé-
lags Hafnaifiarðar var orðin 7-0.
Síðustu skákinni lauk hins vegar
með jafntefli og þar með varð ljóst
að vinningar keppinautanna myndu
falla jafnt.
Þröstur Þórhallsson er nú einn
eftir íslenskra stórmeistara í Taflfé-
lagi Reykjavíkur og á honum er svo
sem ekkert fararsnið, enda er hann
allt í senn, formaður félagsins og
húsvörður og heldur heimili sitt
innan veggja félagsins. Eins og fram
hefur komið í fréttum var félagið
nánast komið í þrot í tíð fyrrver-
andi formanns. Vaskir menn gripu
til aðgerða, sem m.a. fólust í for-
mannsskiptum og sölu á hluta af
húseigninni í Faxafeni, og er von-
andi bjartari tíð fram undan.
í ljósi þessa hefur félagið þvi talið
sig hafa ráð á að flytja inn erlent
vinnuafl í deildakeppnina og eins og
kom á daginn var ekki vanþörf á.
Erlendu stórmeistararnir Igor Raus-
is frá Lettlandi og Mikhail Ivanov
frá Rússlandi sóttu þó ekki alltaf
gull í greipar landans og raunar
náði Rausis aðeins tveimur jafntefl-
um í þremur skákum. í fyrri hluta
keppninnar fékk Rausis 50% vinn-
ingshlutfall og í heild 3 v. úr 7 tefld-
Umsjón
Jón L. Árnason
um skákum. Engu að síður styrktu
þessir menn sveit TR verulega, sem
sýnir kannski öðrum þræði hvernig
komið er fyrir þessu rótgróna félagi.
En héðan í frá getur leiðin aðeins
legið upp í móti.
í tilefni af komu erlendu meistar-
anna hefur TR slegið upp vísi að al-
þjóðlegu móti. Er tefldar hafa verið
þrjár umferðir voru Þröstur Þór-
hallsson og Jón G. Viðarsson efstir
með 2,5 v. en Ivanov var í 3. sæti
með 2 v. Tefldar verða 9 umferðir.
Staðan í l.deild:
1. Taflfélag Reykjavíkur 42,5 af
56 mögulegum (14 stig)
2. Taflfélagið Hellir 42,5 v.
(12 stig)
3. Taflfélag Garðabæjar 35 v.
4. Skákfélag Akureyrar 30 v.
5. Taflfélag Reykjavíkur (b) 24,5 v.
6. Skákfélag Hafnarfjarðar 19 v.
7. Taflfélag Kópavogs 17,5 v.
8. Skáksamband Vestfjarða 13 v.
Staðan í 2. deild:
1. Taflfélag Reykjavíkur (c) 25,5 v.
2. Taflfélag Hólmavíkur 23,5 v.
3. Skákfélag Akureyrar (b) 23 v.
4. Taflfélag Akraness 22 v.
5. UMS Eyjafjaröar 21 v.
6. Skákfélag Ákureyrar (c) 19,5 v.
7. Taflfélag Reykjavíkur (d) 17 v.
8. Taflfélag Vestmannaeyja 16,5 v
Staðan í 3. deild:
1. Taflfélagið Hellir (b) 31,5 v.
2. Skákfélag Keflavíkur 24 v.
3. Taflfélag Garðabæjar 23,5 v.
4. Skákfélag Selfoss og
nágrennis 22 v.
5. Skáksamband Austulands
19,5 v.
6. UMS Eyjafjarðar (b) 18 v.
7. Taflfélag Reykjavíkur (g) 16,5 v.
8. Taflfélag Reykjavikur (f) 14,5 v.
Staðan í 4. deild:
1. Taflfélagið Hellir (c) 14,5 v.
2. Skákfélag Akureyrar (d) 8,5 v.
3. Taflfélagið Hellir (d) 7,5 v.
4. Taflfélag Kópavogs (b) 5,5 v.
C-sveit Taflfélagsins Hellis flyst
upp í 3. deild að ári, en sveit Taflfé-
lags Reykjavíkur fellur niður í 4.
deild. B-sveit Hellis hefur unnið sér
rétt til þess að tefla í 2. deild, en
Taflfélag Vestmannaeyja fellur nið-
ur í 3. deild. Aðeins tvær sveitir frá
hverju félagi mega tefla í 1. deild og
hefur Taflfélag Hólmavíkur því
unnið sér rétt til þess að tefla í 1.
deild að ári. Með sveitinni tefla
nokkrir gamlir refir, eins og fyrr-
verandi íslandsmeistarar Jón Krist-
insson og Helgi Ólafsson (eldri) og
Leifúr Jósteinsson. Sveit Skáksam-
bands Vestfjarða verður að láta sér
lynda að tefla í 2. deild að ári en erf-
iðar samgöngur hindruðu nokkra
þeirra sprækustu menn í að sýna
listir sinar um helgina.
Lítum á fjöruga skák úr viður-
eign Hellis og Skákfélags Hafnar-
fjarðar.
Hvítt: Hannes Hllfar Stefáns-
son (Hellir)
Svart: Ágúst Sindri Karlsson
(Skákfélag Hafnarfjarðar)
Frönsk vörn.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 c5 4.
exd5 Dxd5 5. Rgf3 cxd4 6. Bc4
Dd6 7. 0-0 Rf6 8. Rb3 Rc6 9. Rbxd4
Rxd4 10. Rxd4 a6 11. Hel Be7 12.
a4 0-0 13. b3 Dc7 14. Bb2 b6 15.
Df3 Bb7 16. Dh3 Hfe8 17. Rf3 Be4
18. Re5 Bd6
Svartur má gæta að sér. Eftir 18.
- Bxc2 gæti teflst 19. Rxf7! Bf5 (ekki
19. - Kxf7 20. Dxe6+ og mátar) 20.
Rh6+ gxh6 21. Dxf5 Dxc4! 22. Hxe6
með betra tafli á hvítt.
19. Dc3 Rd5 20. Dg3 f5
E.t.v. var mögulegt að þiggja fórn-
ina með 20. - Bxc2 21. Hacl Rb4 með
óljósum afleiðingum.
21. f4 Rb4 22. Hadl Ha7!?
Hvítur hefur væntanlega ætlað að
svara 22. - Rxc2 með 23. Rd7!? Dxd7
24. Hxd6 með sóknarstöðu - svarta
drottningin má ekki víkja augum
sínum frá g7. En til greina kemur
22. - Had8.
23. Hxe4! fxe4 24. Dg4 Kh8?
Fómin gefur hvitum hættulega
möguleika og svartur nær ekki að
spoma við fæti eftir þennan „eðli-
lega“ varnarleik. Athyglisverð til-
raun er 24. - De7 25. f5 Hd8!? 26.
Bxe6+ Kf8.
25. Dh5 Bc5+ 26. Khl Dc8 27.
f5! Rd5?
Tapar strax en eitthvað lætur
undan.
(Stöðumynd 2)
28. Hxd5! exd5 29. Rg6+ Kg8 30.
Bxd5+ Hf7 31. Re5!
- og svartur gafst upp.
Hraðskákmót á mánudag
Meistaramót Hellis í hraðskák,
sem hefur verið eitt vinsælasta mót
félagsins, verður haldið nk. mánu-
dagskvöld 10. mars og hefst kl. 20.
Teflt verður í húsakynnum félags-
ins, Þönglabakka 1 í Mjóddinni, og
er öllum heimil þátttaka. Tefldar
verða 5 mínútna hraðskákir.
Klemenz Björn Gunnlaugsson
Klemenz Bjöm Gunnlaugsson,
forstjóri Landvéla hf., Seli, Bessa-
staðahreppi, verður fimmtugur á
morgun.
Starfsferill
Klemenz fæddist að Hofi í Bessa-
Kirkjuvegur 4, Hafnarfirði, þingl. eig.
Jónas Bjamason, gerðarbeiðandi Búnað-
arbanki íslands, þriðjudaginn 11. mars
1997 kl. 14.00._____________________
Kvíholt 10, 0201, Hafnarfirði, þingl. eig.
Halldóra Júlíusdóttir, gerðarbeiðendur
Húsnæðisstofnun ríkisins og Kaupfélag
Suðumesja, þriðjudaginn 11. mars 1997
kl, 14,00,__________________________
Melás 3, Garðabæ, þingl. eig. Gunnar
Öm Ólafsson, gerðarbeiðandi ísfell hf.,
þriðjudaginn 11. mars 1997 kl. 14.00.
Suðurbraut 20, 0201, Hafnarfirði, þingl.
eig. Svana Ragnarsdóttir og Jón Skúli
Þórisson, gerðarbeiðandi Bæjarsjóður
Hafnarfjarðar, þriðjudaginn 11. mars
1997 kl. 14.00._____________________
Þrastanes 15, Garðabæ, þingl. eig. Sig-
urður H. Hilmarsson, gerðarbeiðendur
Iðnlánasjóður, Iðnþróunarsjóður, íslands-
banki hf., höfuðst. 500, og íslandsbanki
hf., þriðjudaginn 11. mars 1997 kl. 14.00.
SÝSLUMAÐURINN f HAFNARFIRÐI
staðahreppi. Hann lauk stúdents-
prófi frá MA 1968 og prófi í véla-
verkfræði frá Danmarks Ingeniör-
akademi í Kaupmannahöfn 1978.
Klemenz hóf störf hjá Landvélum
hf. í Kópavogi haustið 1978 og er nú
eigandi og forstjóri fyrirtækisins.
Fjölskylda
rúnu Ágústu Eggertsdóttur, f. 1.1.
1948, viðskiptafræðingi. Hún er dótt-
ir Eggerts Þorkelssonar, f. 24.4.1905,
d. 14.2. 1972, verkamanns á Akur-
eyri, og Þómnnar Ágústsdóttur, f.
16.9. 1909, húsmóður.
Börn Klemenzar og Guðrúnar eru
Halldór, f. 29.6. 1969, véltæknifræð-
ingur en sambýliskona hans er Alda
Lára Jóhannesdóttir sölumaður;
Guðný Þor-
björg, f. 4.7.
1977, stúdent,
en sambýlis-
maður hennar
er Snæþór
Unnar Bergs-
son sölumaður.
Systkini
Klemenzar era
Halldór, f. 1.11.
1941, d. 21.1.
1959; Jón Gunnar, f. 19.1. 1943, við-
skiptafræðingur; Þrúður, f. 4.5.1945,
bankastarfsmaður.
Foreldrar Klemenzar voru Gunn-
laugur Peter Christian Halldórsson,
f. 6.8. 1909, d. 13.2. 1986, og Guðný
Þorbjörg Klemenzdóttir, f. 8.2. 1912,
d. 23.9. 1991, húsmóðir.
Ætt
Gunnlaugur var sonur Halldórs
Gunnlaugssonar, héraöslæknis í
Vestmannaeyjum og Önnu Sigrid
Gunnlaugsson, f. Therp, húsfreyju
og kaupkonu.
Guðný Þorbjörg var dóttir Klem-
ensar Jónssonar, b. og kennara á
Vestri-Skógtjörn í Bessastaða-
hreppi, og Auðbjargar Jónsdóttur
húsfreyju.
Klemenz er að heiman í dag en
hyggst gleðjast með vinum og vanda-
mönnum þegar sól hækkar á lofti.
Klemenz kvæntist 15.6. 1968, Guð-
UPPBOÐ
Eftirtaldar bifreiðir og lausafé verður boðið upp að Auðbrekku 10,
Kópavogl, laugardaginn 15. mars 1997 kl. 13.30:
ER-774 EU-688 FB-828 FD- 651 FH-767 FK-411 GJ-859
GL-668 GM-214 GS-604 HD-410 HE- 153 HH-194 HK-023
HN-388 HN-014 HP-838 HR-766 HT- 075 HU-479 HV-900
HY-956 HZ-626 HZ-440 ID-547 ID- 762 IH-351 11-975
11-823 IK-894 IL-661 IM-167 IP-715 IT- 216 IZ-050
JA-733 JD-494 JH-455 JK-256 JM- 446 JO-772 JO-993
JS-061 JT-372 KA-327 KC-631 KD- 089 KS-441 KT-150
KV-016 LA-503 LT-415 MA-883 MC- 189 MG-203 MN-480
MN-506 NT-597 OA-093 SV-742 TV- 009 TV-167 UK-870
UZ-818 VD-527 VD-671 VD-830 VE- 551 XS-940 XT-748
YV-726
100 stk. Hawk gallabuxur, 2 trésmíðavélar, 50 stk. stuttermabolir, báturinn Freyr KÓ,
Gramma kflvél, Ritter tannlæknastóll, spónapressa, og ZE-266 Zetor 5011 árg. 1984.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki uppboðshaldara eða
gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN f KÓPAVOGI
Klemenz Bjöm
Gunnlaugsson.