Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1998, Page 11
33 "V LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998
viku í leikhúsinu. Auk þess er hann í
Spaugstofunni og í hlutverki afa á
Stöð 2 sem er hugarfóstur Arnar frá
„af til ö“ eins og hann orðar það. Örn
hefur verið í hlutverki afa í ellefu
ár en það er eflaust íslandsmet.
Gæti hann einhvem tíma hugsað
sér að skilja við afa?
„Nei, það held ég ekki. Ég held
að það sé mjög erfitt. Ég kann mjög
vel við þann karl, hann er voða in-
dæll og elskulegur og góður við
börnin. Hann talar ekki niður til
barna og kemur ekki fram við þau
sem kjána. Þau eru jafningjar og
allir eru jafnir í hans augum. Hann
reynir að vera fræðandi og
skemmtilegur í senn. Beitir sér
fyrir því að þau hugsi vel um nátt-
úruna, hugsi vel um sig og sína,
séu prúð og stillt því þá gangi allt
miklu betur. Það er bara þannig."
Á afi sér leyndar og myrkari
hliðar?
„Afi á sér engar skuggahliðar."
Bogi og afi kærastir
Öm hefur leikið óteljandi per-
sónur en hverja skyldi honum
þykja vænst um?
„Ég held það hljóti að vera Bogi
róni, vinur minn. Það á sér reynd-
ar persónulegar ástæður. Fjöl-
skyldumeðlimur minn lenti í því
fyrir mörgum árum að hann drakk
sig út úr þessu lífi. Ég er mjög lík-
ur honum. Við eram sláandi líkir
þegar ég er kominn í gervið en
hann var útigangsmaður um tíma
áður en hann ákvað að henda sér
yfir móðuna miklu. Einhverra
hluta vegna tek ég hann alvarlega
og þykir mjög vænt um hann. Það
vakti ekki fyrir mér í byrjun að
tengja hann því sem stóð mér
nærri en það varð óvart þannig.
Þegar ég gerði mér það Ijóst fékk
hann meira vægi í hugskoti mínu.
Mér þykir líka vænt um afa
gamla. Ég kynntist afa mínum
ekki mjög mikið þrátt fyrir að
hann hafi búið heima hjá mér um
tyðtal
tíma. Hann var með yfirskegg,
hann var smiður, átti fullt af bók-
um sem mér þótti gaman að
grúska í og hann vissi allt. Þessi
fyrirmynd var mitt leiðarljós þegar
ég bjó afa til.“
„Ég myndi segja að það væri toppur
listarinnar að fá fólk til að hlæja.“
„Það getur verið gaman að vera al-
varlegur
Númi er kjáni
Nýlega birtist lesendabréf þar
sem kvartað var yfir Núma sem
Örn leikur í Spaugstofunni.
Hvemig bregst hann við því?
„Menn hafa kvartað undan þvi
að ég sé að gera grín að fötluðum
en það er ekki rétt. Númi er bara
kjáni, hann er einfaldur, vitleys-
ingur, en hann er ekki vangefinn,
síður en svo. Fólk tekur þetta oft
persónulega til sín. Ég sagði ein-
hvern tíma í sjónvarpi brandar-
ann af konunni sem var komin
með Alzheimer en hún var reynd-
ar mjög lukkuleg með það því hún
hitti nýtt fólk á hverjum einasta
degi. Þetta fór fyrir brjóstið á
nokkrum, aðcillega konum sem
höföu misst menn sína úr sjúk-
dómnum. Þær sendu mér bréf. Það
er vissulega sorglegt en að sjálf-
sögðu er svona gríni ekki beint að
þessu fólki. Hvað má þá segja um
alla hommana sem búið er að gera
grín að, gagnkynhneigða fólkið,
ljóskumar, læknana. Það er alveg
sama hvar gripið er niður maður
hittir alltaf á ein-
hvem. Það þarf bara
að sýna ákveðið um-
burðarlyndi og taka
hlutina ekki of alvar-
lega. En grínþáttur er
aldrei settur fram
sem ærumeiðandi
eintak. Það er ekki
verið að reyna að
sverta, svíða og
meiða. Gleymum ekki
máltækinu góða: Hlát-
urinn lengir lífið,
hvað sem hver segir!"
-sm
Tveir tvöfaldir. Örn, Edda Heiðrún Backman og
Hilmir Snær Guðnason. DV-mynd Pjetur
KATTASYJVIIVG
í REIDHÖLL (ÍHSTS
í KÓPAVOGI
14. og 15. nóvember
kl. 10.00-18.00
Stærsta alþjóðlega
kattasýning
nokkru sinni á Islandi
4 alþjóðlegir dómarar
k Jk.
w.hiskál
Skúlagata 59 • Simi 540 5400 • www.raesir.is
Mazda Demio
- ávallt; viðbúinn!
Mazda Demio er fjölnota bíll sem er kjörinn
fyrir þá sem hafa í mörgu að snúast. Hann
er þeim frábæru eiginleikum búinn að á
svipstundu er hægt að breyta honum úr
fjölskyldubíl í vinnubíl sem rúmar vörur
og kassa eða tómstundabíl fyrir
skíðabúnaðinn, útilegudótið eða
hnakkinn á hestinn. Hann er
fallegur og einstaklega hentugur.
Mazda Demio er alltaf til í allt!
Verð: Demio LX 1.215.000 kr.
□emio GLXn.a55.aoa kr.