Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1998, Side 25
JL>'Vr LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998
25
&lönd
Hataðasti þingmaður Bandaríkjanna hrökklast úr embætti forseta fulltrúadeildarinnar:
Gingrich féll á eigin bragði
Newt Gingrich átti svo sannar-
lega ekki von á því að syndir Bills
Clintons yrðu honum að falli. Þvert
á móti ætlaði fráfarandi forseti full-
trúadeildar Bandaríkjaþings að bola
forsetanum úr embætti fyrir ástar-
ævintýri hans með lærlingnum
Monicu Lewinsky og allar lygarnar
sem fylgdu í kjölfarið.
BandcU'íska þjóðin var á öðru
máli. Hún refsaði repúblikönum í
kosningunum í síðustu viku og
repúblikanar refsuðu svo .Gingrich
með þvi að bola honum úr embætti.
Eitt sinn hetja
Öðruvísi mér áður brá. Ekki eru
nema fjögur ár síðan þessir sömu
repúblikanar báru Gingrich á hönd-
um sér og hylltu hann sem sanna
hetju. Repúblikanar komust í meiri-
hluta í fulltrúadeildinni eftir kosn-
ingarnar haustið 1994, í fyrsta sinn
í 40 ár. Og sá sæti sigur var
Gingrich að þakka, öðrum fremur.
Hann var merkisberi hægribylting-
arinnar í bandarískum stjómmál-
um og félagar hans launuðu honum
með því að kjósa hann í embætti
forseta fuiltrúadeildarinnar. í sext-
án ár hafði hann hins vegar verið
óbreyttur dáti og hataðasti maður-
inn á Bandaríkjaþingi í ofanálag.
Og allt þar til talið hafði verið
upp úr kjörkössunum í síðustu viku
lét Gingrich sig dreyma um að
verða kannski frambjóðandi Repú-
blikanaflokksins í forsetakosn-
ingunum árið 2000. Ekki er út-
lit fyrir að sá draumur hans
muni rætast.
Vissi hvað hann
vildi
Ot talandi um drauma. Eða
hvað maður á að kalla það.
Gingrich ku ekki hafa verið
hótinu eldri en fjórtán ára
þegar hann sagði öllum þeim
sem heyra vildu að hann ætl-
aði sér að verða forseti full-
trúadeildar Bandarikjaþings
þegar hann yrði stór.
Gingrich er sonur liðsfor-
ingja í hernum. Og eins og til
heyrir flakkaði hann milli
herstöðva með foreldrum sín-
um í æsku. Þannig umhverfi
skerpir tilfinningu ungra
manna fyrir ættjarðarástinni
og sögunni. Enda kaus hinn
ungi Gingrich að lesa sögu í
háskóla áður en hann tók til
við að skapa hana.
Gingrich var kjörinn á þing
árið 1978. Hann var varla
kominn inn úr dyrunum þegar
hann sagði félögum sínum til synd-
anna, sagði leiðtogum flokksins að
þeir hefðu ekki neinar skýrar áætl-
anir um framtíðina.
Flokkurinn átti undir högg að
sækja og á fundi með ungum
repúblikönum á háskólaaldri sagð-
ist hann vita hvers vegna.
„Við hvetjum ykkur til að vera
snyrtilegir, hlýðnir og tryggir. Allt
þetta skátahjal er fint í kringum
varðeldinn en gengur ekki í
stjórnmálum," sagði
Gingrich fyrir tuttugu ár-
um. „Þið eruð í stríði og
það er stríð um völdin.“
Gingrich kallaði sig
íhaldssaman byltingar-
mann. Hann var sama
marki brenndur og svo
margir aðrir byltingar-
menn að honum lét best að
kollvarpa því sem fyrir
var en féll svo á prófinu
þegar kom að hvers-
dagshlutum í póli- Jfjjf
tík eins og að finna
málamiðlanir.
Pólitíska
stefhu-
skrá
sína kaliaði Newt Gingrich
Samninginn við Ameríku.
Þar lýsti Gingrich yfir því að
hann vildi lækka skatta,
eins og allir aðrir
repúblikanar, banna fjár-
lagahallann og skikka fé-
lagsmálastofnanir til að út-
vega fólki vinnu í stað þess
að láta það hafa fébætur og
svo ffamvegis.
Bandarískir kjósendur
létu boðskapinn heilla
sig í kosningunum
1994 þegar
repúblikanar
fengu 52 sæta
meirihluta i full-
trúadeildinni.
Það orð fór af
Gingrich að hann
væri snjall baráttu-
maður. Hann hitti
þó fyrir ofjarl sinn
þar sem Bill
Clinton var.
„Ég er
feitur. Ég
er ljót-
ur.
En ef þú hrindir mér stend ég alltaf
upp aftur. Ég stend alltaf upp aftur,“
sagði Clinton við Gingrich þegar
þeir settust niður og fengu sér einn
gráan saman árið 1993. Þá var
Gingrich enn bara ungur uppreisn-
armaður. Óhætt er að segja að þar
hafi Clinton ratað rétt orð á munn.
Dásamlegur óvinur
Clinton fór fogrum orðum um
Gingrich eftir ófarir hans og
repúblikana á dögunum. Gleði
manna forsetans yfir falli Gingrich
er þó blendin. Hann var dásamlegm-
andstæðingur. Enginn annar leið-
togi repúblikcma er jafnóvinsæll af
alþýðu manna og Gingrich. Þegar
hann úthellti sér yfir manninn í
Hvíta húsinu varð það því frekar til
þess að auka samúð almennings
með forsetanum en hitt.
Þótt Gingrich hafi veist
harkalega að forsetanum
fyrir siðferðisbresti hans í
tengslum við allt havariið í
kringum Monicu Lewinsky,
er hann ekki neinn drifhvít-
ur engill, eins og ætla
mætti. Gingrich var aðal-
maðurinn í að fella Jim
Wright, leiðtoga demókrata
í fulltrúadeildinni, fyrir sið-
ferðisbresti. Árið 1995
komst svo upp um sjálfan
strákinn Tuma. í ljós kom
nefnilega að Gingrich hafði
um árabil þegið fé fyrir fyr-
irlestra úr sjóði einum sem
alls ekki mátti fjármagna
póltíska starfsemi.
Máli þessu lauk með því
að þingið ávítaði Gingrich
og sektaði hann um 300 þús-
und dollara. Hann hefur
þegar greitt þriðjung sektar-
innar og til stendur að hann
greiði 50 þúsund dollara í
næsta mánuði. Hann hefur
nú lýst því yfir að sektin
verði að fullu greidd áður
en hann lætur af embætti.
Byggt á Politiken, Time
og fl.
Mexíkósk
sveitahúsgögn
SóSaborð
Breidd 122 cm,
hæð 50 cm,
dýpt 75 cm.
25% af sláttur
- nú kr. 19.500 á meðan birgðir endast
Nýbýlavegur 30
(Dalbrekkumegin)
S. 554-6300
Ármúli 7 • S. 553-6540
www.mira.is
RÆSTINGAR
FYRIRTÆKJA
RÆSTINGAR
STOFNANA
RÆSTINGAR
HEIMILA
á
Arnarberg ehf.
Fossháls 27 • Draghálsmeglri
Slmi 567 7SS7 • fax S67 7559
Hnappnælur
Barmmerki
Framleiðum hinar vinsælu
hnappnælur sem fyrirtæki og
félagasamtök nota til
kynningar við ýmis tækifæri.
Leitið upplýsinga hjá
BÍSísíma 562 1390
. tölvup.: bis@scout.is >
Nóvembertilboð
verðlækkun
Demparar
Kúplingasett
Vatnsdælur
Hjólkoppasett
Stýrisliðir
o.fl.
ísetning ef óskað er.
Fast verð.
Verslið hjá fagmanni.
Verslun bfleigandans.
varahlutir
HAMARSHOFÐA1 - 567 6744
V_____________________/
Opið 9-6 virka daga
og 10-4laugardaga.
Umhyggja þín
skilar sér
m/— 't'
■ ______
20 R»fi
jiieð C
Veittu barninu þínu það besta sem völ er á
allt frá ykkar fyrstu kynnum.
Járn er fyrir blóðið og Fólínsýra er fóstrinu
nauðsynleg til eðlilegs þroska.
Multi Vit inniheldur öll helstu vítamín og steinefni.
Umhyggja þín skilar sér til barnsins
Éhc
www.heilsa.is
leilsuhúsið
Skólavöröustíg, Kringlunni, Smáratorgi & Skipagötu, Akureyri