Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1999, Síða 60
6» %Ýikmyndir
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999
BUSHHOUR
KviKfí'vn'Mi
* *líí? J
L'! 'fflVLOM
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
(f>
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
i HtrmuiiTOfi ‘.r 'imynd lió
íi iunlnuiíiiuliTm "f\. Gurrip,!
•*‘i ictikriijora "Mrs,sDoubtfim/r
•ir .ui S.'ii .uujon IilaDt’t'lnmpntfii
líl«loltjen Globu verölíiuna fyrir
Sýnd kl. 5 og 9.
A.Vjh*n
K^íf^kH
Sýnd kl. 2.45, m/ísl. tali.
Svalir gæjar á svölum næturklúbbi
Laugarásbíó frumsýnir í dag gaman-
myndina A Night at the Roxbury þar
sem tveir óþekktir æringjar, Will
Farrell og Chris Katten, leika bræöur
sem hafa háar hugmyndir um sjáifa sig
og eru vissir um að þeir séu mestu
töffarar bæjarins. Ekki eru allir á sama
máli og er það skiljanlegt þar sem fram
kemur að það tók þá bræður sjö ár að
ljúka barnaskólaprófi. Bræðurnir Steve
og Doug telja að komist þeir inn fyrir
dymar á vinsælasta nætuklúbbnum,
Roxbury Club, þá muni þeir yflrstíga
ailar hindranir, en eins og gefur að
skilja eru þeir ekki á gestalistanum og
verða því að standa úti á götu meðan
aðrir komast inn.
Will Farrell og Chris Katten eru síð-
astir í röð margra kvikmyndaleikara
sem hafa hafið feril sinn í sjónvarpsser-
iunni bandarisku, Saturday Night Live,
og er handritið að myndinni byggt á ná-
ungum sem þeir Farrell og Katten sköp-
uöu þar. Um tilurð bræðranna segja
þeir: „Við vorum í eina tíð að
skemmta okkur á næturklúbbi.
Þar var einn náungi sem
hékk viö barinn, leit út eins
og hann langaði til að
dansa, en þorði ekki út á
gólfið. Greinilegt var að
hann langaði að vera með
öðru fólki, en var allur á
skjön við allt og alla i
klúbbnum. Það var eitthvað
í framkomu hans sem var
bæði fyndið og nöturlegt og
út frá þessari sýn, út
frá þeirri löngum
að vilja vera
með en
fá
Will Farrell og Chris Katten leika tvo
bræður sem hafa háar hugmyndir
um eigið ágæti.
það ekki, bjuggum viö til Steve
Doug."
Atriði þeirra félaga um þá bræður
uröu fljótt eitt allra vinsælasta efniö í
Saturday Night Live og var auðvelt fyr-
ir þá að fá frægar stjömur til að koma
fram með þeim þar sem þeir bræður
koma viö sögu Meðal annars hafa Jim
Carrey, Tom Hanks, Martin Short og
Sylvester Stafione komið fram sem gest-
ir.
Leikstjóri A Night at the Roxbury er
John Fortenberry, sem lengi hefur unn-
ið við gamanmyndagerð i sjónvarpi, en
er hér að stiga sín fyrstu skref í kvik-
myndaheiminum.
-HK
Will Farrell og Chris Katten eru síð-
astir í röð margra kvikmyndaleikara
sem hafa hafið feril sinn í sjónvarps-
seríunni bandaríksu, Saturday Night
Live, og er handritið að myndinni
byggt á náungum sem þeir Farrell og
Katten sköpuðu þar.
Campell Scott og Steve Martin í
hlutverkum sínum.
Háskólabíó — The Spanish Prisoner:
Gildrur...
Leikrit David Mamets eru flest dramtísk
og alvarlegs , en þegar kemur að kvikmynd-
unum þá á hann það til að fara í fótspor
sakamálamyndameistara fyrri tíma á borð
við Alfred Hitchcock. Þetta gerði hann með
ágætum árangri í iyrstu kvikmyndmni sem
hann leikstýrði, House of Games, og í
Homicide og gerir það enn betur í The Span-
ish Prisoner þar sem hann nær að halda vel
utan um flókna atburðarrás sem stanslaust
er að koma áhorfandanum á óvart og sýnir
þar takta sem meistari Hitchcock hefði getað
verið hreykinn af.
Aðalpersónan er vísindamaðurinn Joe
Ross (Campbell Scott) sem í byrjun myndar-
innar er á leið til fundar við eigendur fyrir-
tækisms sem hann vinnur hjá. Ástæðan er
að Ross hefur fundið formúlu fyrir ferli (sem
aldrei kemur í ljós hvert er) sem á eftir að
gefa fyrirtækinu tugi milijóna dollara í arð á
næstu árum. Ross er tortrygginn að eðlisfari
og er hræddur um að hann verði hlunnfar-
inn þegar kemur aö því að skipta gróðanum.
Óvænt, að því er virðist, verður á vegi hans
Jimmy Del (Steve Martin), mdljónamæring-
ur sem Ross gerir að trúnaðarvini smum og
þar með er hanskanum kastað og hver
skemmtileg fléttan rekur aðra í atburðarás
sem aumingja Ross ræður ekkert við. Ekki
hjálpar tortryggni hans gagnvart yfirmönn-
um sínum.
Það þarf snilld til skrifa svo vel fari svona
flókna sögu og snilld til að missa ekki tökin
á henni í kvikmynd og Mamet er snillingur-
mn sem ræður við þetta og er The Spanish
Prisoner skemmtilega gamaldags en um leið
ákaflega gefandi. Það mæðir mikið á Camp-
bell Scott í hlutverki Ross og tekst honum
vel að lýsa persónunni sem treystir engum í
vinnunni en er svo auðtrúa þegar hann er
beittur brögðum utan vinnunnar. Þá er vert
að nefna Steve Martin sem er jarðbundinn í
þetta skiptiö og nær góðum tökum á hinum
slóttuga Jimmy Dell.
Leíkstjori og handritshöfundur:
David Mamet. Kvikmyndataka:
Gabriel Beristain. Tónlist. Carter
Burwell. Aðalleikarar: Campbell
Scott, Steve Martin, Ben Gazzara
og Rebecca Pidgeon.
Hilmar Karlsson
KVIKMYyDA