Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2000, Blaðsíða 24
24
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2000
Helgaiblað
DV
Sviðsljós
Eyrun og hóf-
arnir snúa aftur
Eyrun
snúa aft
Hófskeggið
snýr fram
Hófar
snúa aftur
íSmm
Söngkonan og leikkonan Cher
Rætt er um að hún taki viö afJerry
Hall í leikritinu Mrs. Robinson
í London.
Fer Cher úr
öllu?
Þótt söngkonan og leikkona Cher
nálgist sextugt viröist ekkert lát á
töfrum hennar og aðdráttarafli enda
hefur hún lagt sig fram um að varð-
veita útlit sitt sem best og hvergi
sparað nýjustu tækni á því sviði.
Nú er mikið rætt um að hún taki
við af Jerry Hall, eiginkonu Jaggers,
í umtalaðri sviðsuppfærslu af Mrs.
Robinson í London. Þessi uppfærsla
hefur einkum verið fræg fyrir að þar
fara rosknar leikkonur úr fötunum
eitt andartak en færri sögum fer af
leiksýningunni að öðru leyti. Það var
Kathleen Turner sem reið á vaðið og
lét handklæðið falla fyrir fullu húsi.
Þegar hún þurfti að snúa sér að öðr-
um verkefnum var Jerry Hail ráöin
og hún hefur strippað á sviðinu um
hríð við sæmilegar undirtektir en nú
er sem sagt verið að ræða við Cher
um að taka rulluna að sér.
Um hríð stóð til að Barbra
Streisand leyfði leikhúsgestum að sjá
nakinn bakhluta sinn en fullyrt er að
hún hafi verið rekin skömmu eftir
að æfingar hófust. Þessu neita reynd-
ar aðstandendur sýningarinnar ákaf-
lega.
Þetta er því kjörið tækifæri fyrir
íslenska aðdáendur Cher að bregða
sér í leikhús í innkaupaferöinni til
London í haust og fá að sjá glampa í
eins og einn þjóhnapp.
í Þjóðsögum Jóns Árnasonar seg-
ir að einu sinni hafí nokkur böm
verið að leika sér á bæ einum.
Skammt frá bænum var stórt vatn
og eyrar með vatninu. Sáu bömin
gráan hest á eyrinni og fóm að
skoða hann. Fór eitt bamið á bak
honum og svo hvert af ööm þangað
til það elsta var eftir, það vildi ekki
fara á bak og sagðist ekki nenna
því. Hljóp hesturinn þá af stað og
hvarf út í vatnið með bömin á bak-
inu. Bamið sem var eftir fór heim
og sagði frá þessu og vissu menn að
þetta hafði verið nykur.
í flestum vötnum
Varla er til það vatn á íslandi
sem ekki hefur í eina tíð verið talið
heimkynni nykurs. Hann er bæði í
ám og stöðuvötnum og jafnvel í sjó
þó þaö sé sjaldgæft. Til em sögur
um nykur í Þveitinni á Homafírði,
í Leirvogsvátni í Mosfellshreppi, í
Fúlutjöm skammt frá Staðarstað og
á nokkrum stöðum em til tjamir
sem bera nafnið Nykurtjöm. Sagt
er að nykur sé í Reykjavíkurtjöm
annað árið en Hafravatni hitt. Und-
irgangur á að vera milli vatnanna
sem nykurinn fer eftir og eiga
Reykvíkingar að geta heyrt ógur-
lega skmðninga, bresti og óhljóð
þegar nykurinn er á ferð og Tjöm-
in frosin. í Urriðavatni skammt frá
Egilsstöðum eru heitar uppsprettur
sem nefnast Tuskuvakir og hefur
oft sést nykur á beit við þær og er
sagt að honum liði vel í ylnum.
Fyrirbærið er oftast likt hesti,
grátt á litinn en stundum brúnt.
Eyrun og hófamir snúa aftur en
hófskeggin fram og hann er með
blööra undir vinstra bógnum. Nyk-
urinn er þó alls ekki bundinn við
þessa lýsingu og sumir segja að
hann geti breytt sér í alla lifandi
hluti og dauða, nema vorull og
bankabygg. Aðrir segja að hann sé
djöfullinn í hestsliki og í Noregi
eiga tröll það til að breita sér í
hvíta nykurhesta. Þegar spmngur
koma i ís verða miklar drunur og
Nykurinn
Fyrirbæriö er líkt hesti, grátt á litinn en stundum brúnt. Eyrun og hófarnir snúa aftur en hófskeggin fram.
NYKUR
Blaðra undir
vinstri bóg
hann nefndur kumbur. Það nafn er
líklega dregið af Kumburtjörn und-
ir Skarðsfjalli í Landsveit, því úr
Kumburtjöm kom einu sinni grár
graðhestur og fyljaði meri. Úr
þessu sama vatni kom líka einu
sinni stór, troðjúgra, grá kýr. Þegar
átti að mjólka hana sást að klauf-
irnar snem öfugt eins og hófamir á
nykrinum. Vildi enginn eiga hana
enda var kýrin svo ólm að hún
kramdi bam eitt til dauða og hvarf
síðan.
Uppruni nykursins
í Huld sem Ólafur Davíðsson
segja menn að þá sé nykurinn að
hneggja.
Nykurinn kastar fyli eins og
hestur en í vatni og hann get-
ur fyljað venjulegar mer-
ar. Einkenni hesta sem
em undan nykur og
meri er að
leggjast niður þeg-
ar þeim er riðið
yfír vatnsfall sem
vætir kviðinn á
þeim. Er hann þá
spakur og tælir
menn til að ríða sér
yfír. Þegar menn hafa
farið á bak honum hleyp-
ur hann út í vatnið og dreg-
ur mennina með sér. Nykurinn þol-
ir ekki að heyra nafn sitt eða nokk-
urt orð sem líkist því, tekur hann
þá viðbragð og hleypur í
næsta vatn. Einu sinni
var nykur að draga
sofandi stúlku út í
vatn í Skreiðsdal.
Stúlkan vaknaði
og sagði: „Láttu
kjurra nyk-
ur.“ Sleppti hann
stúlkunni og
út í vatnið.
Nykurinn er
stundum kallaður
nóni, nennir eða vatna-
og í einni heimild er
Hvar eru vegatálmarnir?
Guðmundur Andri Thorsson
skrifar í HelgarblaO DV
Verkfoll á íslandi hafa nú um
langan aldur einvöröungu beinst
gegn almenningi - ekki þeim sem
með völdin fara. Þeir sem mega sín
lítils snúast gegn þeim sem mega
sín minna. En þegar kemur að hin-
um stærri málum sem varða líf og
afkomu fjöldans hættir fólk að líta á
sig sem frumkvöðla í eigin lifi og
verður að neytendum, sem tuða dá-
lítið en láta allt yfir sig ganga að
öðm leyti.
Eöa hvar eru vegatálmamir bil-
stjóranna sem svo vasklega gengu
fram í vor gegn vanburða ferðaþjón-
ustu um dreifðar byggðir landsins?
öll Evrópa er í uppnámi vegna þess
að bálreiðir atvinnubílstjórar hafa
gert uppreisn sem breiðist út eins
og eldur í sinu, meira að segja jafn
löghlýðnir þegnar og Hollendingar
steita nú hnefann framan i Valdið.
Bílstjómamir hafa lokað þjóðveg-
um og krefjast þess að ríkið lækki
tolla af bensíni eða sjái til þess með
einhverjum ráðum að bensínokrinu
linni. Og almenningur styður þá. Og
síðast en ekki síst: ráðamenn neyð-
ast til að leggja við eymn.
íslendingar búa við eitthvert
hæsta bensínverð í Evrópu. Og
þeim mun ríkari ástæðu hafa þeir
til að krefjast lækkunar á bensín-
verði að yfírvöld landsins hafa ger-
samlega brugðist þvi meginhlut-
verki sínu að sjá til þess að almenn-
ingssamgöngur séu í boði fyrir fólk.
í stað þess að byggja upp net stræt-
isvagna eða lesta hér á hinu furðu-
lega strjálbýla höfuðborgarsvæði
hafa yfirvöld beinlínis neytt fólk til
að nota einkabíla í ríkari mæli en
þekkist i nokkru Evrópulandi. Rík-
isstjómin virðist raunar líta á það
sem eitt sitt helsta hlutverk að
hvetja til enn frekari kaupa á stór-
um orkufrekum bílum.
Fólk á því ekki þann valkost að
leggja einkabílnum i bensíndýrtíð-
inni heldur neyðist til aö kaupa
bensín á bílana sína, á þvi verði
sem olíufélögunum þóknast að setja
á þaö, en eins og kunnugt er hefur
ekki tekist að koma hér á sam-
keppni í þeim viðskiptum, frekar en
hjá tryggingarfélögunum, sem
Sennilega hafa því ís-
lendingar ríkarí ástceðu
en nokkur Evrópuþjóð til
að gera uppreisn. Og
hvar eru þá vegatálm-
amir? Hvar eru bílflaut-
umar sem á árunum
áður voru alltaf þeyttar í
í.i$ vinstrí stjóma tiZ að
mótmœla tóllum ? Erum
við ennþá svona langt
frá Evrópu að við smit-
umst ekki af eldmóðin-
um þar?
einnig auðgast á því að almenning-
ur er neyddur til að skipta við þau
eða brjóta lög ella. Fyrirtæki sem
eru þannig áskrifendur að sjálfkrafa
og síauknum tekjum úr buddu ál-
mennings hafa enda enga ástæðu til
að stunda samkeppni.
Sennilega hafa því íslendingar
ríkari ástæðu en nokkur Evrópu-
þjóð til að gera uppreisn. Og hvar
em þá vegatálmamir? Hvar eru
bílflaútúmár serri á árunum áður
voru alltaf þeyttar í tið vinstri
stjórna til að mótmæla tollum?
Erum við ennþá svona langt frá
Evrópu að við smitumst ekki af eld-
móðinum þar? Erum við ennþá
svona auðsveipir þegnar? FÍB gerði
reyndar lofsverða tilraun til að rísa
gegn einokun tryggingafélaganna
um árið, en þau samtök virðast því
miður ekki hafa hlotið það brautar-
gengi meðal almennings að þau hafí
bolmagn til að koma af stað fjölda-
mótmælum.
Ekkert heyrist. Og þegar ekkert
heyrist hafa valdamenn enga
ástæðu til að leggja við eyrun. Og
ekkert breytist nema náttúrlega
bensínverðið sem heldur áfram að
hækka.