Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2000, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2000
55
DV
Tilvera
Sævar
Bjarnason
skrifar um
skák
Skákþátturinn
Þrír
Hannes Hlífar Stefánsson, Ev-
genij Agrest og Sune Berg Hansen
urðu allir jafnir eftir úrslitamót um
fyrsta sæti svæðamóts Norður-
landa. Allir fengu þeir tvo vinninga
í fjórum skákum. Þeir þremenning-
ar eru því jafnir í fyrsta sætinu en
þeir höfðu allir þegar áunnið sér
rétt til að tefla á HM í Indlandi og í
íran i nóvember nk.
Einar Gausel varð fjórði, Lars
Schandorff fimmti og Margeir Pét-
ursson sjötti. Gausel, Schandorff og
Margeir eru því varamenn komi til
forfalla. Margeir mætti ekki til
keppni um 4.-6. sætið vegna mis-
skilnings. Keppnin hófst á fimmtu-
daginn, kl. 13, en Margeir hafði ekki
tekið eftir því í dagskránni. Reynd-
ar var þetta undarlegur tími því at-
skákmótið var skemmtilegt og
heppilegra hefði verið að hafa það
að kvöldi til. Hannes tók forystuna í
keppninni um 1.-3. sætið með því að
leggja Agrest að velli í fyrri umferð
en tapaði fyrir honum í seinni um-
ferðinni. Sune Berg Hansen gerði
jafntefli í öllum skákunum. Þetta
var að mörgu leyti merkilegt mót
sem Taflfélagið Hellir hélt. Jón
Viktor Gunnarsson kom skemmti-
lega á óvart með því að leggja stór-
meistarann Jonny Hector í 1. um-
ferð og Margeir sló út Danann
sterka og stigahæsta keppanda
mótsins, Curt Hansen. Hannes Hlíf-
ar sigraði einn á síðasta svæöamóti
í Danmörku 1997 og deildi nú efsta
sætinu sem er frábær árangur.
Fróðlegt verður að fylgjast með hon-
um og í hvoru mótinu hann lendir,
á Indlandi eða í íran. Nafn skákar-
innar er upprunnið úr Persíu hinu
fomu og keisarinn bar sama nafn,
Shah. Khomeini sálugi bannaði og
bannfærði skák en nú em e.t.v. að
renna upp frjálslyndari tímar í íran.
Svæðamót á Spáni
Þar var hart barist um sex sæti.
Lautier frá Frakklandi vann mótið
með 8 v. af 11 en keppt var eftir
svissneska kerfinu. Englendingur-
inn Speelman og Hollendingurinn
van Wely urðu jafnir í 2.-3. sæti. Pi-
ket frá Hollandi og Nataf tóku tvö
næstu sæti en 10 kappar (!) kepptu í
gær um eina sætið sem eftir var.
Bikarkeppni FIDE
Anand sigraði eftir úrslitaeinvígi
við Bareev en keppnin fór fram í
borginni Shenyang í Kína og hlaut
Anand 50.000 Bandaríkjadali i verð-
laun en Bareev 35.000. Skákimar i
dag eru frá þessu móti.
ívantsjúk þarf ekki að kynna en
Roman er yngsti stórmeistari frá
upphafi - sló met bæöi Bobbys
Fischers og Juditar Polgar. Hann er
á sautjánda ári núna, ef ég man rétt,
en hann var rétt liðlega 14 ára þeg-
ar hann varð stórmeistari í skák.
Skákin er bráðskemmtileg en sjón
er sögu ríkari:
Hvitt: Vassilí ívantsjúk (2719)
Svart: Roman Ponomariov (2630)
Kóngs-indversk vöm
1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. c4 d6 4. Rc3
RfB 5. RÍ3 0-0 6. h3. Gamalt
Larsens-afbrigði - það er hægt að
dusta rykið af mörgum afbrigðum
og koma ungum andstæðingum á
óvart. 6. - e5 7. d5 Rh5 8. Rh2 Ra6
9. g3 Rc5 10. b4 Ra6 11. Hbl f5.
Dálítið óvenjuleg staða í þessu af-
brigði, flækjumar em rétt að byrja.
12. exf5 Bxf5 13. Hb3 Df6 14. Be3.
Enn er það riddarinn á a6 sem er
til vandræða fyrir svartan. Nú kem-
ur smáflétta i bullandi tímahraki:
30. Rxd6! cxd6 31. Hf3 De7 32.
Dxa6 Hxf3 33. Rxf3 Bg4. Ef ekki
væri fyrir næsta leik þá mundu fáir
gefa mikið fyrir stöðu hvíts. 34.
Dd3 d5? 35. e5 Hf8 36. Bc5. Gerir
út um allar vonir svarts. 36. - Df7
37. Bxf8 Dxf8 38. Hfl Dxb4 39.
Rh4 De4 40. Dxe4 dxe4 41. Hf7+
Kg8 42. Hf6 Be3+ 43. Kfl Bb6 44.
e6 e3 45. Hxg6+ Kf8. Nú kemur
lokahnykkurinn, lærdómsríkt: 46.
Hxg4 hxg4 47. Rf5 l-O.
Næsta skák er jafn skemmtileg og
sú fyrri. Þar eigast við heimsmeist-
ari FIDE og Hvítrússinn Gelfand.
Hvítt: Alexander Khalifman (2667)
Svart: Borís Gelfand (2681)
Sikileyjarvöm
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e6 7. g4
e5 8. Rf5 g6 9. g5 gxf5 10. exf5 d5
11. Df3 d4.
Enn er hér til umfjöllunar af-
brigðið sem þeir Guðmundur Sigur-
jónsson og Helgi Ólafsson gerðu
frægt á alþjóöamótinu í Neskaup-
Svæðamót Norðurlanda:
Hér byrjar ballið. 14. Rf4. Ef hvít-
ur þiggur þessa mannsfóm, 15. -
gxf4 exf4 16 Bd2 Hae8+ 17. Be2 Dd4,
kembir hann ekki hærurnar. 15.
Rb5 Rxh3 16. Dd2 Hae8 17. Be2
h5 18. c5 Bd7 19. Rc3 Rf4. Aftur og
nýbúinn! 20. c6! Riddarinn á a6 er
illa valdaður. 20. - Bc8 21. Bxa7
Rxe2 22. Dxe2 e4.
Stórmeistarinn ungi virðist vera
að kafsigla ívantsjúk en hann á eft-
ir að hróka! 23. 0-0 Df5 24. Hdl
Kh7 25. Rb5 Df7?! Engin ástæða til
að hörfa með betri stöðu og sókn, 25.
Skákmót
Hannes Hlífar Stefánsson og Evgenij Agrest tefia í úrsiitaviöureigninni sem
fram fór á fimmtudag.
stað 1984 á vegum Jóhanns Þóris
Jónssonar heitins. Þeirri skák lauk
með jafntefli. En þetta afbrigði hef-
ur verið mikið teflt á undanfomu
ári. 12. 0-0-0 Rbd7 13. gxf6 dxc3
14. Bc4 Dxf6 15. Hhgl h6 16. Kbl
Rc5. Hvítur hefur fómað manni og
þetta afbrigði hentar illa stöðustíl
Hvíta sóknin er endanlega brotin
á bak aftur með næsta leik sem hót-
ar máti í einum leik. 21. - Db5 22.
b3 Dc6 23. Df6 Hh7 24. Hgfl Hd8
25. Hdel Hd5 26. Bcl Be7 27. Df3
Bg5 28. Dg3 Kd7 29. h4 Bxcl 30.
Dg8 Bd2 31. Hxf7+ Hxf7 32. Dxf7+
Kd8 33. Hxe6 Hd6 34. Dg8+ Kc7
35. Dg7+ Kb8 0-1.
Atskákmót ísiands 2001
Undankeppnin hefst í dag, laugar-
daginn 16. september, og á morgun,
sunnudaginn 17. september, og hefst
taflið báða dagana kl. 13.00 í hús-
næði Taflfélags Reykjavíkur að
Faxafeni 12.
- Hf7 er mun betra. 26. Bd4 e3?
Vafasöm peðsfóm, betra er 26. -
Bxd4. 27. Hxd4 He5 og svartur má
vel við una. 27. fxe3 bxc6 28. dxc6
Bh6 29. e4 Be6.
Mjallhvítir
dvergarnir þrír
Mátulega stór og
passlega lítil tæki
fyrir ýmsar
aðstæður
:
Uppþvottavél Favont TT
• Frístandandi vél sem er einstaklega hljóðlát
• 46 sm á hæð, 45 á breidd og 48 á dýpt
• 4 þvottakerfi
• Tekur 5 manna stell
• Þvottatími um 35 mfn.
39.900
stgr.verð
Þvottavél Lavamat 1100
• Frístandandi vél fyrir kalt vatn
• 67 sm á hæð, 49,5 á breidd og 51,5 á dýpt
• öll hugsanleg þvottakerfi
• Tekur 3 kg af þvotti
• Þvottatími m.v. 60o er 111 mín.
auk 24 mín. í forþvott
54.900
stgr. verð
Þurrkari Lavatherm CE
• Frístandandi eða á vegg
• 68 sm á hæð, 59,5 á breidd og 42 á dýpt
• 4 þurrkkerfi
• Tekur 3 kg af þvotti
• Barkarlaus þurrkari sem breytir
gufu í vatn og dælir því í safntank
eða beint í niðurfall
56.900
stgr. verð
www.ormsson.is
jafnir í fyrsta
sæti
Khalifmans. En Gelfand er öllum
hnútum kunnugur. 17. De2 Bxf5
18. f4 Be6 19. fxe5 Dxe5 20. Bxe6
Rxe6 21. Df3.