Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2000, Qupperneq 58
66
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2000
Tilvera
DV
Megas í Ölfusinu
Meistari Megas verður með
hausttónleika í Ingólfs-Café í
kvöld kl. 22.00. Allir gamlir og
nýir aðdáendur Megasar eru
hvattir til að mæta.
Aðgangseyrir 1000 kr. og
aldurtakmark 18 ár.
Klassík
■ KAMMERTONLEIKAR I GARÐA-
BÆ Þriöju tónleikar í tónleikarööinni
„Kammertónleikar í Garöabæ áriö
2000 veröa haldnir í Kirkjuhvoli í
dag kl. 17.00. Fram koma Cuvillés-
strengjakvartettinn (áöur Sinnhofer-
kvartettlnn) frá Miinchen og Sigurö-
ur Ingvl Snorrason klarinettuleikari.
Á efnisskrá tónleikanna eru verk eft-
ir Haydn, Mozart og Beethoven.
■ TÓNLEIKAR í NESKIRKiU í dag,
kl. 16.00, munu Sigurgeir Agnars-
son sellóleikari og Andrew Paul
Holman orgelleikari halda tónleika í
Neskirkju. A efnisskránni eru sex
fjölbreytt verk fýrir selló og orgel eftir
Kurt Wiklander, Kjeil Mork Karlsen,
Saint-Saéns, Daniel Pinkham, Jos-
eph Jongen og Hugo Alfvén. Tón-
leikarnir veröa endurteknir á morg-
un, kl. 16, í Skálholtskirkju.
Leikhús
■ POTTIR SKALDSINS - 3. SYN-
ING í Tjarnarbíói í kvöld.
■ OPH) HÚS HJÁ LEIKFÉLAGI AK-
UREYRAR Vetrardagskráin verður
kynntí dag frá kl. 13-15. Boöið
veröur upp á atriði úr Stjörnum á
morgunhimni og Sæma
sirkusslöngu. Leiklesið verður úr
Gleðigjöfunum . Skoðunarferðir
verða um leikhúsið. Einnig verður
þar barnahorn og andlitsmálun.
■ LANGAFI PRAKKARI í Möguleik
húsinu viö Hlemm í dag kl. 14.
Helmingsafsláttur af miöaverði
vegna afmælis Möguleikhússins
þessa helgi.
■ SNUÐRA OG TUÐRA er sýnt í
dag 1 Möguleikhúsinu við Hlemm kl.
16. Helmingsafsláttur af miðaveröi
um helgina vegna afmælis Mögu-
leikhússins.
■ BARNAEINLEIKUR Stormur og
Ormur er sýndur í Kaffileikhúsinu,
Hlaövarpanum, Vesturgötu 3, kl. 15
í dag.
■ EINHVER i DYRUNUM Siguröur
Pálsson er höfundur að verkinu sem
var frumsýnt í gær í Borgarleikhús-
inu. Ónnur sýning er í kvöld kl. 19.
Leikstjóri er Kristín Jóhannesdóttir.
Takmarkaöur sýningafjöldi.
■ HELLISBÚINN GENGUR ENN
Sýning í kvöld á Hellisbúanum í Is-
lensku óperunni. Miðasalan opin
fram að sýningu sem hefst kl. 20.
Þetta getur Bjami Haukur.
Opnanir
■ PAC-MAN I GALLERI GEYSI I
dag kl. 16.00 verður opnuð mynd-
listarsýning þriggja ungra manna
(Baldurs, Bibba og Hara) sem sam-
an kalla sig Pac-Man.
■ SAMLAGH) Á AKUREYRI í dag,
kl. 14.00, veröur Samlagiö Listhus,
Kaupvangsstræti 12, Akureyri, meö
kynningu á nýjum félaga, Halidóru
Helgadóttur. Halldóra er Akureyring-
ur og lauk námi frá Fagurlistadeild
Myndllstaskólans á Akureyri síöast-
liöiö vor. Á kynningunni verða myndir
sem Halldóra hefur unnið á þessu
ári, olíumálverk, vatnslitamyndir og
krítarteikningar. Kynningin stendur
til 24. septemþer og verður hún
opin frá kl. 14 til 18 alla daga nema
mánudaga.
A fimmtugsafmælinu
Ómargekk á Esjuna þann daginn í staö þess aö halda veislu.
Hann lofaöi vinum og vandamönnum aö vera meö stórveislu sextugur og stendur viö þaö um helgina.
Þaö veröur opiö hús á Broadway um miöjan daginn og skemmtun um kvöldiö.
landið hefur upp á að bjóða,
VatnajökuU og umhverfi hans, af-
gangurinn af hálendinu, Vest-
fjarðakjálkinn, Austfirðir og
byggðimar spiia saman og mynda
heild. Af þessum „söngvurum“ er
einn afburða söngvari og hann á
engan sinn líka en það er Vatna-
jökull og umhverfí hans. Hitt á sér
flest hliðstæður í öðmm löndum.
Áður en ég fór út þótti mér
landið aUt jafnmerkilegt en nú
þykir mér það stórmerkilegt sem
heUd.“
Ómar hefur skoðun á vinnu
blaða- og fréttamanna og telur þá
aUt of sjaldan geta skoðað mál vel.
„Ég hef sem betur fer fengið
tækifæri tU þess hin síðari árin að
fá að fara djúpt í ýmis mál og þar
af leiðandi getað lagt mig fram um
að leita að öUum staðreyndum og
sannindum sem skipta máli.
Þegar ég fer ofan í mál, eins og
þessi viðkvæmu mál fyrir austan,
ef við tökum þau sem dæmi, skipt-
ir það mig engu máli hvort stað-
reyndimar gagnast einum frekar
en öðrum því ef ég dreg eitthvað
undan sem máli skiptir þá hef ég
brugðist skyldu minni sem frétta-
maður. „
Tengd áhugamál
Ómar á stóra fjölskyldu, 7 böm
og 16 bamaböm og fæddust þrjú
barnaböm í vor. „Ég hef verið svo
ljónheppinn að eiga mér lífsforu-
naut sem hefur staðið með mér
aUa tið og er einfaldlega ómetan-
leg. í áranna rás höfum við vaxið
Viö íslendingar þurfum helst alltaf sjálfir að finna upp hjólið:
Best væri ef það
væri ferkantað
- segir Ómar Ragnarsson á merkum tímamótum, 60 ára afmæli sínu
Sjá nánar: Líflö eftir vinnu á Vísi.is
Hinn síungi og kviki fjölmiðla-
maður og skemmtikraftur Ómar
Ragnarsson heldur upp á sextugs-
afmæli sitt á sunnudaginn með
heilmikiUi tvískiptri hátið á Broa-
dway.
„Það verður opiö hús á miUi
klukkan 14 og 16 en um kvöldið
verður heilmikil sýning á vegum
hússins," segir Ómar sem sjálfur
ætlar að taka virkan þátt í sýning-
unni. En ekki hvað!
„Ég gaf um það loforð fyrir 10
árum, þegar ég varð fimmtugur,
að halda upp á sextugsafmælið og
slapp þannig frá því að halda upp
á fimmtugsafmælið," heldur hann
áfram. „Á þeim tíma þótti mér svo
langt í þessi tímamót að það væri
í lagi að gefa slík loforð. En svo
læðist þetta að manni...
Á sýningunni, sem verður að
loknu borðhaldi, munu fyrst ýms-
ir listamenn, Sumargleðin, Berg-
þór Pálsson, Bubbi, Karlakór
Reykjavíkur, Helga MöUer og
fleiri fremja gjörninga af fjöl-
breyttu tagi en eftir hlé ætlar
Ómar ásamt Þuríði Sigurðardótt-
ur og Sigrúnu Hjálmtýsdóttur að
vera með dagskrána: „í fréttum
aldarinnar er þetta helst“ og verð-
ur þar stiklað á ýmsu því sem
fréttnæmast hefur þótt og gott er
að draga fram á léttum nótum.
Jafnréttisbyltingin m.a. en hún
var nokkuð stór hluti af því sem
átti sér stað og breytti aldarandan-
um.
„Meiningin er að snúa þessari
afmælisveislu upp i að við íslend-
ingar í heUd fognum því að fyrir
60 árum hætti Hitler við að ráðast
inn í Bretland og þar með slupp-
um við við að fá yfir okkur nas-
istana. Svo er þetta líka merkUeg
tímasetning þvi móðir mín er
fædd sama dag og ég og líka Jón
ÁrsæU fréttamaður sem er fimm-
tugur.
Ég ætla líka að bregða mér í
gervi miðils og fá áheyrendur að
heyra raddir aldarinnar, þjóð-
þekkta listamenn og skáld ásamt
útvarpsmönnum og þeim öðrum
sem settu mark sitt á öldina. Ég
bý svo vel að hafa verið í þessum
bransa í 42 ár og hef því úr miklu
að moða og verð meira að segja
með ýmislegt efni sem aldrei hef-
ur heyrst eða sést áður og svo gróf
ég upp eitt og annað sem lítið hef-
ur heyrst, kannski bara einu sinni
eða svo, og þar á meðal er bragur
frá 1963 sem á miklu betur heima
nú en þá.“
Vatnajökull einstakur
Það er varla hægt að tala við
Ómar án þess að helsta áhugamál
hans, ísland og náttúran, komi
inn í umræðurnar. Hann verður
ákafur á svipinn þegar minnst er
á landið og segir: „Ég vildi gjarn-
an að ég hefði farið fyrr út í heim
tU þess að fá samanburð því mér
finnst satt best að segja að ég hafi
ráfað um landið í reiðUeysi í 40 ár
þegar ég fór loks út til að skoða
heiminn en það var ekki fyrr en
1998.
Þá fór ég að skoða þær álfur
sem liggja sín hvorum megin við
okkur við Atlantshafið til að átta
mig á því hvort þetta land væri
nokkuð eins merkUegt land og
okkur finnst það vera. Ég fór um
Evrópu og Grænland og suður eft-
ir KlettafjöUunum og þær ferðir
koUvörpuðu eða breyttu að
minnsta kosti mjög skoðun minni
á íslandi. Mér finnst ég nú helst
geta líkt landinu við kvintett þar
sem samhljómurinn, allt sem
þannig og þroskast að hvort um
sig hefur sinnt sínu áhugamáli en
jafnframt höfum við tekið þátt í
áhugamálum hvort annars eftir
því sem unnt hefur verið og
reyndar hafa áhugamál okkar
beggja tengst ferðalögum að miklu
leyti.“
Ómar lætur ekki deigan siga og
segist eiga mörg verk óunnin enn.
„Nú er ég með bók í smíðum sem
verður ólík öUu öðru sem ég hef
gert hingað tU,“ segir hann. „Ég
held áfram minni vinnu sem
fréttamaður og skemmtikraftur og
reyni eftir fremsta megni að koma
með nýtt sjónhom á það sem er að
gerast hverju sinni,“ og þar með
er hann rokinn á nýjan stað því
Ómar stoppar hvergi lengi í einu.
-vs
Þegar Omar hafði hár
I gamla Sjálfstæöishúsinu viö Austurvöll í kringum áramótin 1958-59. Ein fyrsta myndin sem tekin var af
Ómari viö aö skemmta. Markús Á. Einarsson er viö þíanóiö.