Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2000, Blaðsíða 60
68
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2000
>
I
Tilvera
DV
Frá höfundum
„There’s Something
About Mary“-
mf
a TUMI
Svnd kl. 5.45. 8 oa 10.20.
ALVÖRU BÍÚ! mpolby'
STAFRÆIMT smm
HLJÓÐKERFI í UY
ÖLLUM SÖLUM!
Sími 551 9000
Barátta mannkyns er hafm
Stórkostleg teiknimynd sem gerist eftir
eyóingu jarðar áriö 3028.
Myndin inoiheldur fróbærar tæknibreiiur og er sa
Star Wars og The Mainx,,.
hugi is
„Leyfð öihim alc'urshópum en atriði i myndinni
gætu valdið óhug allra yngstu aldurshópum.,‘
DccuonniMM
6og8.
6,8 og 10.
nk. mui. _
nv *** -Sl'
í „t Vhk.dv 1 T ;
íi MauÁverk.!s / / i
i if‘irk 1/2
ftadlo-X
X-MEN
Sýnd með ísl. tali kl. 2,4,
Sýnd með ensku tali kl 2,4,
B.i. 16 ára.
Frábær gamanmynd með Martin
Lawrence sem fer á kostum sem
leynilögga sem þarf að dulbúast sem
„stóra mamma" til þess að leysa
erfitt sakamál.
lyndbandagagnrýni
Girl, Interr-
upted
★★★
Skrýtin, kiikk-
^ uð, geðveik?
Það er ekki laust við að ég haíl
orðið fyrir svolitlum vonbrigðum
með þessa mynd. Hún er einfaldlega
ekki sú stórmynd sem allar ósk-
arsverðlaunatilnefningamar gefa til
kynna. Og að Angelina Jolie hafi
fengið óskar fyrir besta leik í auka-
hlutverki er fáránlegt. Ekki það að
hún leiki ekki vel, hún gerir það og
nær ansi kraftmikilii túlkun, en í
samanburði við sumar aðrar
leikkonur frá síðasta ári er hún
ekkert svo merkileg.
Myndin á margt sameiginlegt
með Gaukshreiðrinu en tekur þó
annan pól í hæðina og fjallar meira
y um persónulega þroskasögu aðal-
söguhetjunnar en einhverjar
ómanneskjulegar aðferðir við vist-
un geðsjúkra. Reyndar er lítið um
raunverulega geðveiki í báðum
þessum myndum, persónumar eru
meira ráðvilltar og uppreisnar-
gjamar en geðveikar. Reyndar eru
Englar alheimsins eina myndin sem
ég man eftir sem virkilega tekur á
geðsýki af alvöru. Myndin spilar þó
tilfinningaskalann vel og Winona
Ryder er ósköp indæl i aðalhlut-
verkinu. Girl, Interrapted er vel
gerð dramatísk þroskasaga um svo-
lítið skrýtna stúlku sem finnur
sjálfa sig í árslangri dvöl á geðdeild.
-PJ
Útgefandl: Skífan. Leikstjóri: James
Mangold. Aöalhlutverk: Winona Ryder,
Angelina Jolie og Whoopi Goldberg.
Bandarísk, 1999. Lengd: 127 mín. Bönn-
uö innan 16 ára.
Fyrirlestur um Heinesen á bókmenntahátíð:
Ekki lesinn í Færeyjum
„Færeyingar hafa
aldrei lesið Heine-
sen,“ segir Jógvan
Isaksen, bók-
menntafræðingur
og rithöfundur, sem
ætlar að fjalla um
William Heinesen í
fyrirlestri í Nor-
ræna húsinu í dag.
„Fyrirlesturinn
fjallar að hluta um
bókmenntir Heines-
ens en ekki minna
um stöðu hans og
bakgrunn í fær-
eysku samfélagi. „í
ár er þess minnst
með ýmsum hætti
að hundrað ár eru
liðin frá fæðingu
þessa mesta skálds
Færeyinga.
Heinesen er oft
borinn saman við
Halldór Laxness.
„Þeir voru jafnaldr-
ar, kunnugir og
dáðu hvor annan en
þegar Laxness varð
risi í íslenskum
bókmenntum var
Heinesen alltaf lítið
lesinn í Færeyjum,"
segir Jógvan.
Ástæðurnar segir
Heinesen er oft borinn saman við Laxness
Jógvan Isaksen heldur fyrirlestur um Heinesen í Norræna húsinu í dag.
hann einkum vera þær að hann
skrifaði á dönsku. Hann var svo-
lítið vinstrisinnaður og hann
gerði grin að sértrúarsöfnuðunum
sem eru mjög sterkir í Færeyjum.
„Heinesen lifði og starfaði aÚa tíð
i Færeyjum en varð aldrei vinsæll
rithöfundur þar.“
William Heinesen skrifaði ekki
bara bækur. Hann fékkst einnig
viö myndlist, málaði og gerði
klippimyndir, samdi tónlist og
sinnti leiklistargyðjunni. Fjöl-
margar bóka Heinesens hafa verið
þýddar á íslensku.
Jógvan Isaksen er meðal gesta
bókmenntahátíðar. Hann er mag.
art. í færeyskum bókmenntum frá
Kaupmannahafnarháskóla og hef-
ur verið lektor i færeysku máli og
bókmenntum í áratug. Jógvan
Isaksen stýrir bókaútgáfunum
Menntunargrunnur Stúdentafé-
lagsins og Antonia. Auk þess hef-
ur hann verið meðritstjóri við
bókmenntatímaritin Brá og Café
Existens. „Þetta verður ekki þung-
ur bókmenntafyrirlestur, ég reyni
að hafa þetta skemmtilegt." -ss
Myndbandagagni
The Duke
★i
Þaö sem
börnum er
boöiö upp á
Myndir sem framleiddar eru fyrir
börn eru svo innilega ólíkar myndum
fyrir fullorðið fólk að fúrðu vekur að
fúllorðnir geti útbúið slíkar myndir.
Augljóslega er fylgt ákveðinni formúlu
og hefur það gengið upp í mörg ár.
Hertoginn í Dingwall er gjafmildur
gamall karl og hann gefur verðmæta
gölskylduhluti hiklaust til hjálpar fólk-
inu í skírinu. Það eru ekki allir sáttir
við þetta, síst af öllu væntanlegur erf-
ingi hertogans, Cecil. Hann og kona
hans koma einstaka sinnum í heimsókn
til hertogans, gamla manninum til mik-
illar armæðu, og horfa ágimdaraugum
í kringum sig. Þau eru líka alltaf miður
sín þegar þau sjá að hertoginn hefur lát-
ið enn einn dýrgripinn af hendi. Hertog-
anum þykir hins vegar afar vænt um
hinn trygga hund sinn, Hubert, sem og
dóttur yfirþjónsins. Þar sem hann vili
að vel sé farið með ættaróðalið gerir
hann á síðustu stundu nýja erfðaskrá
og arfleiðir Hubert að öllu heila klabb-
inu. Veröur náttúrlega uppi fótur og flt.
Leikur allra er einstaklega ýktur.
Þannig er víst forskriftin hvað varðar
barnamyndir. Gaman er að hundunum
og er hundurinn sem leikur Hubert sér-
staklega vel þjálfaður. Það er allt til
staðar í myndinni til að gera hana að
ágætisafþreyingu fyrir böm. Það er
vonda fólkið gegn góða fólkinu og dýr-
unum. Einnig nokkur farsakennd at-
riði. -GG
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Philip Spink. Aöal-
hlutverk: James Dookan, Courtnee Draper, Fer-
emy Maxwell, Oliver Murhead, Sophie Heyman,
Judy Geeson og hundurinn John Neville. Bresk,
1999. Lengd: 92 mín. Leyfð öllum aldurshóp-
um.