Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2000, Blaðsíða 64
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2000
Leit að salmonellusmiti:
Veitingamenn
heimsóttir
Fulltrúar frá Heilbrigðiseftirliti
Reykjavíkur hafa heimsótt fjöldann
(í** allar1 af veitingamönnum á höfuð-
borgarsvæðinu og spurt þá spjörun-
um úr varðandi innkaup á kjöti og
grænmeti og kannað hreinlæti.
„Þeir einskorða sig við tímabilið
frá 25. ágúst og fram tii dagsins í
dag en þessi rannsókn þeirra er erf-
ið. Fólk man varla lengur en einn
dag hvað það borðaði,“ sagði veit-
ingamaður í miðborg Reykjavíkur
sem fékk heilbrigðiseftMitsmenn-
ina í heimsókn í gær. „Ég held að
grunsemdir þeirra beinist í auknum
mæli að innfluttu grænmeti. Svo
vita allir sem vilja að miklu af kjöti
er smyglað til landsins."
Salmonellufaraldurinn sem nú
geisar er óvenju svæsinn og er ungt
, ^ fólk í meirihluta þeirra sem veikst
hafa. Eru margir sjúklinganna iila
haldnir enda salmonellusýking
kvalafull eins og glöggt mátti lesa
um í viðtali við Hlyn Tómasson, sjó-
mann frá Selfossi, hér í DV í gær:
„Þetta er hreinasta helvíti... enginn
trúir aö óreyndu þeim kvölum sem
fylgja salmonellunni," sagði Hlynur
sem lá í viku á sjúkrahúsi. -EIR
Islenskur glæsileiki í Sydney
íslenskt afreksfólk gengur hnarreist inn á Ólympíuleikvanginn í Sydney í Ástralíu, albúiö til átaka meö sigurbros á vör en þó minnugt ólympíuhugsjónarinnar
sem leggur aö jöfnu þátttöku og sigur. Þaö er Vala Flosadóttir stangarstökkvari sem veifar til lesenda DV fremst á myndinni. — Sjá nánar bls. 14.
- Sjá frétt á bls. 6.
Óttast að ekkert verði af risafiskeldi í Berufirði:
Sleit slöngu
^ Ökumaður sem var að taka bens-
ín á sjálfsafgreiðslustöð Orku við
Skemmuveg ók á brott án þess að
losa bensínslönguna úr bílnum og
sleit slönguna. Bifreiðin komst ekki
nema eina fjóra metra þegar rykkti
í og slangan fór í tvennt. Slökkvilið
var kallað á vettvang vegna eld-
hættu. Sjálfvirkur búnaður lokar
fyrir bensínstreymi þegar slöngur
slitna og því var ekki bensíndropi á
planinu þegar slökkviliðið birtist.
Ökumaðurinn var hins vegar
skömmustulegur.
„í amerískum bíómyndum hefði
bensínstöðin sprungið ,“ sagði varð-
stjóri hjá slökkviliðinu. -EIR
SYLVANIA
3f
FYLGIR ÞETTA
TÍÐAHRINGNUM?
Tilboösverd kr. 4.444
P-touch 1250
Rmerkilep merkivél
brother
Lítil en STÓRmí
5 leturstæröir
9 leturstillingar
prentar í 2 llnur
boröi 6, 9 og 12 mm
4 geröir af römmum
Rafport
Nýbýlavegl 14 Sími 554 4443
Veffang: www.8f.is/rafport
- norskir fjárfestar ókyrrast og sveitarstjórinn reiður
Heimamenn á Djúpavogi óttast að
ekkert veröi af risafiskeldisstöð sem
áformað er að reisa við Berufjörð.
Fyrirtækinu er gert að fara í um-
hverfismat samkvæmt úrskurði
umhverfisráðherra þrátt fyrir aö
sótt hafi verið um starfsleyfi þrem-
ur vikum áður en ný lög um um-
hverfismat tóku gildi.
Það er fyrirtækið Salar Islandica
sem áformar að reisa stöðina en það
er aö meirihluta í eigu norskra fjár-
festa sem nú eru að missa þolin-
mæðina vegna þess að ekkert bólar
á starfsleyfinu. Sótt var um starfs-
leyfi i maí en nú fjórum mánuðum
síðar er málið enn á byrjunarreit.
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra úrskurðaði í sumar að stöðin
ætti að fara í umhverfismat þrátt
fyrir að sótt hefði verið
um áður en lögin tóku
gildi.
Reiknað er með að stöð-
in veiti 60 manns atvinnu
verði af rekstrinum sem
áætlað er að velti 3,5 millj-
örðum árlega með fram-
leiðslu á 8 til 12 þúsund
tonnum af laxi.
Sveitarstjómarmenn á
Djúpavogi hafa allar götur
síðan í vor verið í stöðug-
um ferðum til Reykjavík-
ur til að reyna að fá starfs-
leyfið í gegn auk þess að standa í
bréfaskriftum en ekkert gengur.
Ólafur Ragnarsson sveitarstjóri seg-
ist reiður og langþreyttur og hann
kveðst uggandi um verkefnið. „Það
er rétt að fjárfestarnir eru
teknir að ókyrrast. Norð-
menn ætla sér að leggja tvo
milljarða króna í verkefnið
en það kann svo að fara að
þeir gefist upp á biðinni,"
segir Ólafur og veit ekki við
hvem hann er aö berjast.
„Það versta er að við vit-
um ekki við hvem er að
glíma í málinu. Við höfum
gengið frá Heródesi til
Pílatusar í allt siunar en
rekumst alls staðar á girð-
ingar. Við skiljum þetta
ekki þar sem það er okkar vissa að
lögin geti ekki verið afturvirk," seg-
ir hann.
Ólafur segist binda vonir við að
skipulagsstjóri, sem fer með endan-
legt vald í málinu, fallist á að kvía-
eldið verði sett á laggimar í
Berufirði. Hann segist ekkert botna
í málinu en voncirglæta felist í því
að fyrirtækinu Agva, sem sótti um
starfsleyfi á eftir Salar Islandica,
hafi verið heimilað að reisa fiskeld-
isstöð í Mjóafirði. Með tilliti til jafn-
ræðisreglu hljóti Berufjarðarstöðin
að fá grænt ljós.
„Við erum ekki að biðja um neitt
annað en fá aö setja fisk í kvíar sem
em nánast skotheldar og lítil sem
engin hætta á að fiskur sleppi.
Heimamenn eru á einu máli um
ágæti þessarar framkvæmdar og ég
veit ekki um neinn sem er andsnú-
inn þessu," segir Ólafur sveitar-
stjóri sem einmitt var í Reykjavík í
gær að beijast við vindmyúur. -rt
Ólafur
Ragnarsson
Löggeta ekki ver-
iö afturvirk.
7 bílslys á 7 mánuðum
- ég er óheppin, segir Kristín Jónsdóttir
Kristín Jónsdóttir sjúkraþjálfari
hefur lent í sjö bílslysum á sjö mán-
aða tímabili á árinu sem er að liöa.
Kristín segist vera óheppin en hafi
hins vegar gríðarlega gaman af því
að keyra:
„Fyrst lenti ég í því að keyrt var
aftan á mig á rauðu ljósi á Lauga-
veginum gegnt Fíladelfiukirkjunni.
Skömmu síðar var keyrt utan í mig
á ferð í Grafarvogi. Þá var ekið utan
í aðra hliðina á bílnum mhnun þar
sem hann stóð kyrrstæður á bila-
stæöi við vinnustað minn í Mos-
fellsbæ.
Nokkrum dögiun síðar klesstist
hin hliðin á bílnum þegar bakkað
Óheppinn ökumaöur
Kristín Jónsdóttir hefur haft bílprófí 14 ár og nýtur þess aö aka.
var inn í hana á bílastæði í Grafar-
vogi,“ segir Kristín sem hefur haft
bílpróf í 14 ár og telur sig bílstjóra í
góðri þjálfun. „Leið nú og beið þar
til ég ákvað að aka norður í land og
varð þá fyrir því að eitt dekkið datt
undan bílnum og hlutust af því
miklar skemmdir og ég meiddi mig,
aldrei þessu vant.
Síðasta slysið varð svo þegar bíll
ók í veg fyrir mig í Mosfellsbæ með
þeim afleiðingum að ég ók út af,“
segir Kristín sem er alltaf í rétti og
er enn með fullan bónus hjá trygg-
ingarfélagi sínu. Hún ætlar að halda
áfram að aka eins og ekkert hafi i-
skorist. -EER