Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2000, Page 8
8
____________________________________________________________________________________________LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
Útlönd DV
A leiö heim
Dick Cheney er á batavegi eftir
vægt hjartaáfall.
Cheney heim af
sjúkrahúsinu
Varaforsetaefni repúblikana í
Bandaríkjunum, Dick Cheney, var í
gær útskrifaður af sjúkrahúsinu
sem hann var lagður inn á á mið-
vikudaginn vegna hjartaáfalis.
Hann er talinn geta hellt sér út í
slaginn innan skamms.
Samkvæmt niðurstöðum kön'nun-
ar, sem birt var i gær, segjast 70
prósent repúblikana myndu líta á
A1 Gore sem ólögmætan forseta yrði
hann lýstur sigurvegari. Aðeins 30
prósent demókrata kváðust myndu
líta svo á að Bush hefði stolið
sigri'num settist hann í forsetastól.
Nýnasistar myrtu
6 ára í sundlaug
Tveir karlar og ein kona hafa ver-
ið handtekin í Þýskalandi fyrir
meint morð á 6 ára dreng í sundlaug
í bænum Sebnitz fyrir þremur ár-
um. Drengurinn, sem var sonur
írasks apótekara, sat einn á hand-
klæði þegar um 50 meintir nýnasist-
ar umkringdu hann. Þeir pyntuðu
drenginn og fleygðu honum hálf-
meðvitundarlausum í sundlaugina.
Um 200 til 300 manns voru í sund-
lauginni þegar þetta gerðist. Lög-
reglan taldi drenginn hafa drukkn-
að en foreldrarnir trúðu þvi ekki.
Foreldrarnir fengu vísbendingu um
að allt væri ekki með felldu. Móður-
inni tókst að finna 15 manns sem
voru fúsir til að bera vitni. Drengur-
inn var krufinn á ný og kom þá í
ljós að hann hafði verið beittur of-
beldi. Mál þetta hefur skekið Þýska-
land og menn spyrja sig hvers
vegna enginn kom drengnum til
hjálpar.
I skjalasafni Stasl
Starfsmenn hafa handleikiö skjöl
sem voru gegnumsýrð af eitri.
Veikir af eitruð-
um Stasiskjölum
Tuttugu starfsmenn skjalasafns
Stasi, fyrrverandi leyniþjónustu A-
Þýskalands, hafa veikst af því að
handleika skjöl sem eru gegnum-
sýrð af eitri. Hafa starfsmennimir
fengið ógurlegan höfuðverk, blóð-
nasir, óstöðvandi niðurgang og
vöðvakrampa.
Nýr yfírmaður skjalasafnsins,
Marianne Birthler, hefur staðfest að
samhengi sé talið vera á milli sjúk-
dómsins og eitraðra skjala. Fundist
hafa 12 möppur með slíkum skjölum
og sýnum. Gúmmíhanskar molnuðu
þegar skjölin voru snert. Um er að
ræða efni frá tæknideild Stasi sem
gerði tilraunir með efni til að geta
fylgst með borgurunum. Geislavirk-
um títuprjónum var til dæmis
stungið í föt andófsmanna og var
hægt að fylgjast með ferðum þeirra
með geigerteljara.
Pútín kynnir
friðaráætlun
Forseta Rússlands, Vladimir
Pútín, tókst í gær að fá Ehud Barak,
forsætisráðherra ísraels, og Yasser
Arafat, leiðtoga Palestínumanna, að
ræðast við í síma í fyrsta sinn í
margar vikur. Pútin gerði skyndi-
lega hlé í gær á fundi sínum með
Arafat í Moskvu og hringdi í Barak.
Eftir svolitla stund kallaði hann á
Arafat í símann og komust þá leið-
togamir tveir að samkomulagi um
að opna aftur samstarfsskrifstofurn-
ar á Gazasvæðinu og Vesturbakkan-
um sem lokað var á fimmtudaginn.
Skrifstofunum, sem eru 10 talsins,
var lokað eftir að sprengja hafði
sprungið í einni þeirra. Hermaður
lét lífið í sprengjuárásinni.
Áður en fundinum lauk höfðu
Arafat og Barak lofað að skoða
gaumgæfilega friðaráætlun Rússa
sem ekki var gerð opinber í gær. Ut-
anrikisráðherra ísraels, Shlomo
Ben-Ami, heldur til Moskvu á
mánudag til að ræða áætlunina, að
því er fréttastofan Itar-Tass hafði
eftir stjómarerindrekum.
Samtímis var greint frá frekari
dauðsfollum í átökum á herteknu
svæðunum. Félagi í al-Fatah hreyf-
ingu Arafats beið bana í bænum
Jenin á Vesturbakkanum þegar
ísraelskir hermenn vörpuðu
sprengju að heimili hans aðfaranótt
föstudags. Palestínumenn skutu til
bana landnema nálægt Nablus í
gær. Palestínumaður var skotinn til
bana í átökum nálægt Qalqiliya.
Palestínskur drengur, sem varð fyr-
ir skoti í síðustu viku, lést í gær.
Þar með hafa yfir 270 manns fallið í
átökunum.
í Gazaborg efndu þúsundir Palest-
ínumanna til mótmæla. Grímu-
klæddir menn stærðu sig í hátölur-
um af sprengjuárásinni í Hadera á
miðvikudaginn. Tveir létu lífið í
árásinni. Hamassamtökin lýstu yfir
ábyrgð á sprengjuárásinni og leið-
togi þeirra sagði í ræðu að hún væri
bara fyrsta aðgerðin af mörgum.
Gærdagurinn byrjaði reyndar vel.
Varnarmálaráðherra ísraels, Efraim
Sneh, og herforingi Arafats, Tayeb
Abdel-Rahim, höfðu á næturfundi
náð samkomulagi um að hrinda
strax í framkvæmd samkomulaginu
um vopnahlé sem náðist í Egypta-
landi í október síðastliðnum. Átök
brutust engu að síður út.
Vladimir Pútín sagði alla fundi
árangurslausa tækist ekki að stöðva
ofbeldið.
Arafat baö Rússa um hjálp
Vladimir Pútín Rússlandsforseti og Yasser Arafat Palestínuleiðtogi fyrir fund sinn í Moskvu í gær.
Forseti loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna:
Næstum ómögulegt
að ná samkomulagi
Forseti loftslagsráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna, sem lýkur í Haag
í dag, Jan Pronk, sagði í gær að
ómögulegt væri að ná samkomulagi
í smáatriðum um niðurskurð á
gróðurhúsalofttegundum út í and-
rúmsloftið. Málamiðlunartillaga,
sem Pronk lagði fram á fimmtudag-
inn, virtist í gær ekki hafa fengið
neinn hljómgrunn.
I tillögu Pronks er ekkert ákvæði
um hámarksviðskipti með losunar-
kvóta eins og Evrópusambandið,
ESB, hefur krafist. Bandaríkin eru
mótfallin hámarki. ESB krefst þess
að ekki verði veittur afsláttur á nið-
urskurð út á koltvisýringsupptöku
skóga og akurlendis. Tillaga Pronks
gerir ráð fyrir takmörkuðum af-
slætti. Bandaríkin og fleiri vilja
meiri afslátt.
ESB segir málamiðlunartillöguna
ganga of langt til móts viö kröfu
Svartsýnn
Jan Pronk, umhverfisráðherra
Hollands.
Bandaríkjanna og grafa undan sam-
komulaginu sem gert var í Kyoto
1997 um að draga úr losun gróður-
húsalofttegunda um 5,2 prósent fyr-
ir 2010 miðað við útblásturinn 1990.
Sambandið hefur reiknað út að með
málamiðlunartillögunni yrði niður-
skurðurinn einungis 2 prósent.
Samkvæmt útreikningum um-
hverfisverndarsamtakanna WWF
og Grænfriðunga myndi málamiðl-
unartillaga Pronks ekki aðeins
grafa undan Kyotosamkomulaginu
heldur einnig auka losun gróður-
húsalofttegunda hjá iðnvæddum
ríkjum um nokkur prósent á árun-
um 2008 til 2012.
Vísindamenn segja 5,2 prósenta
niðurskurð aðeins lélega byrjun.
Nauðsyn sé að draga úr orkunotkun
og losun gróðurhúsalofttegunda um
50 til 60 prósent eigi að komast hjá
afdrifaríkum loftslagsbreytingum.
Eyðilagt mannorð
Helmut Kohl,
fyrrverandi kansl-
ari Þýskalands,
sakaði í gær fjöl-
miðla og pólítíska
andstæðinga sína
um að hafa eyði-
lagt mannorð sitt
og lýst honum sem
glæpamanni fyrir
að hafa tekið við fé í leynisjóði
kristilegra demó-krata. Kohl kvaðst
hafa gert mistök. Hann væri samt
enginn glæpamaður.
Jafnt í öldungadeildinni
Demókratinn Maria Cantwell
sigraði i öldungadeildarkosningun-
um í Washington með naumum
meirihluta. Demókratar fá líklega
50 sæti og repúblikanar jafnmörg.
Óþekkt dóttir Mussolinis
ítalski einræðisherrann Benito
Mussoloni átti óþekkta dóttur sem
er stærðfræðikennari í frönskum
skóla. Þetta kemur fram í nýrri bók
sagnfræðingsins Festorazzi. Dóttir-
in er nú 68 ára en móðir hennar 98
ára.
Kúariöa í Þýskalandi
Þýsk yfirvöld greindu frá því í
gær að tvær kýr af þýskum uppruna
hefðu greinst með kúariðu, önnur í
Slésvík-Holtsetalandi en hin á Azor-
eyjum.
Skólabörn tróðust undir
Ellefu skólabörn létu lífið í stiga á
leið út úr skólanum. Eldri nemend-
ur ýttu á þá yngri sem tróðust und-
ir.
Bleika höllin seld
Dimitra Liani,
ekkja Andreas Pap-
andreou, fyrrver-
andi forsætisráð-
herra Grikklands,
ætlar að selja glæsi-
villuna sem hann
reisti fyrir hana
þar sem hún hefur
ekki efni á að reka hana. Húsið, sem
kallað var bleika höllin, var byggt
fyrir sex árum. Smíði glæsivillunn-
ar á þrengingartímum reitti
Grikkja til reiði.
Gæsluliðar fá frest
Innanríkisráðherra Serbíu, Bozo
Prelevic, sagði í gær að friðargæslu-
liðar fengju 72 klukkustunda frest
til að ná yfirráðum á öryggissvæð-
inu við landamæri Kosovo áður en
serbneskar sveitir yrðu sendar
þangað vegna árása albanskra
skæruliða á serbneska lögreglu.
Stjórnarmyndun í Perú
Bráðabirgðafor-
seti Perú, Valentin
Paniagua, ræddi í
gær við forsætis-
ráðherra sinn,
Javier Perez de
Cuellar, um mynd-
un nýrrar stjórnar.
Paniagua tók við
var vikið úr forseta-
Mótmæli gegn Kosfunica
Fyrrverandi hermenn í Króatíu
efndu til mótmæla í gær þegar Voj-
islav Kostunica Júgóslavíuforseti
kom til Zagreb á leiðtogafund ESB
og rikja á Balkanskaga.
þegar Fujimori
embættinu.