Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2002, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2002, Síða 11
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2002 11 Skoðun Steinaldarmaðurinn „Nennirðu ekki að skjótast út í bíl og sækja gæsir sem ég náði mér í?“ sagði konan og gerði sig sæta í fram- an, „ég gleymdi þeim í skottinu." Ég sá 'ekki að bráðlægi á þessu þar sem haustregnið buldi á húsinu og gulnuð laufblöðin urðu undan að láta fyrir rokinu. Samt drattaðist ég út, minn- ugur hins fomkveðna, að illu er best af lokið. Gæsimar sá ég ekki í fljótu bragði þegar ég opnaði farangursgeymslu bílsins enda nokkuð tekið að skyggja. Ég leitaði að matvælum í neytenda- pakkningum en sá ekkert slíkt. 1 skottinu var hins vegar stór pappa- kassi og í honum enn stærri svartur plastpoki. Ég rak handlegginn ofan í pokann en kippti honum strax að mér í ofboði. Taugaviðbrögðin vora ósjálf- ráð enda hafði ég hvorki þreifað á kassa né öskju með gæsabringum heldur tók þétt á gæsarhöfði svo gogg- urinn stakkst í lófann. Siv að kenna Ég lokaði pokanum snarlega sem og bílskottinu og hljóp votur inn. Haust- ið lét ekki að sér hæða. „Hvað í ósköp- unum ertu með, kona?“ hrópaði ég um leið og ég komst í húsaskjól. „Þú ert þó ekki með gæsir með húð og hári í staö þess að koma heim með al- mennilegt kjöt, tilbúiö á pönnuna. Það er mikið að ég fann ekki dauða rollu í skottinu, hymda og í tveimur reyf- um.“ „Rólegur, vinur," sagði konan sem virtist ekki kippa sér upp við æsing- inn í mér. „Má ég benda þér á að fugl- ar eru fiðraðir en ekki hærðir, en mikið rétt, þetta era gæsir, hvorki meira né minna en þrjár. Bróðir minn var svo almennilegur að gefa mér þær en hann fór á skyttirí í gær. Það er varla ofverkið þitt að reyta nokkrar gæsir fyrst mágur þinn sá um að skjóta þær fyrir þig. Mannaöu þig nú upp og náðu í fuglana." Hví gat Siv umhverfisráðherra ekki bannað að gefa gæsir, eins og til stendur með ijúpuna, hugsaði ég með mér á útleiðinni og skipaði mágnum góða og ráðherranum á sama bekk. Það ætti að minnsta kosti að setja það í reglugerð að gæsir skulu einungis gefhar reyttar, innyflahreinsaðar og sviðnar. Hvað gerir óvanur maður svo sem þegar hann stendur frammi fyrir brostnum augum gæsar með haus, vængi og stél, að ógleymdum gæsalöppunum? Útþynnt eðli Ég rogaðist inn með gæsapokann og undraðist hve þijár gæsir geta ver- ið þungar. „Hvað geri ég nú?“ spurði ég þar sem ég stóð fyrir framan konu og dóttur með svarta plastpokann. Ég leyfði mér að grípa um háls einnar gæsarinnar og lyfti henni hátt á loft þar sem ég stóð á eldhúsgólfinu. „Oj, hvað þú getur verið ógeðslegur, pabbi,“ hrópaði dóttirin og hljóp út úr eldhúsinu og inn í herbergið sitt. „Er ekki rétt að þú gerir að fúglunum, góði minn?“ sagði konan og lét sér hvergi bregða. Á þessu augnabliki fannst mér við komin á steinaldarstig þar sem veiðimaðurinn ber bráð sína heim í hellinn og veifar henni sigri hrósandi framan í konuna. Vandinn var bara sá að veiðimannseðlið í mér er orðið mjög útþynnt og ég hafði ekki hugmynd um næstu skref varðandi fugla þessa. „Ég hengi gæsimar út á svalir," sagði ég til að vinna tíma. Ég hef séð karlmannlega nágranna mína gera slíkt þegar þeir koma úr veiðitúrum á haustin. Gæsimar eiga víst að brjóta sig, eins og sagt er. Þetta á að minnsta kosti við um ijúpur, ég er ekki eins vel að mér um stærri fugla. Á svölun- um brá ég bandi utan um háls gæsanna þriggja og hengdi þær upp. Það er að vísu ofmælt, ég reyndi. í haustrokinu og rigningunni var þetta torvelt. Mjóir hálsamir smugu úr nælonbandinu svo gæsimar hlunkuð- ust niður á svalagólfið og lágu þar í hrúgu. Ég breiddi því plastpoka yfir fuglana. Þetta var ffáleitt eins flott og hjá grönnum mínum. „Þær eru byij- aðar að bijóta sig,“ sagði ég við kon- una þegar ég kom inn af svölunum, enn eins og steinaldarmaður. Dóttir okkar hafði ekki komið út úr herberg- inu. Magi eða bak Gæsimar lágu þrjá næstu daga á svölunum. Pokinn hélst sem betur fer yfir þeim þótt haustnæðingurinn léki hann á stundum grátt. Konan minnti mig daglega á matvælin sem hún taldi bundin við handriðið og hvatti mig til aðgerða. Hún vissi sem betur fer ekki að fúglamir lágu í heldur óálitlegri hrúgu á gólfinu. Á fjórða degi kom hún heim með enn eina gæsina. Feng- ur bróðurins dugði aUri stórfiölskyld- unni og vel það. Þá setti ég undir mig hausinn og sótti pokann. Það verður að segja þá sögu eins og er að eldhúsiö hjá okkur er ekki hann- að sem sláturvettvangur og enn síður til reytingar fiðurfénaðar. Ég brá pok- anum svarta á eldhúsboröið, teygði mig eftir hálsi einnar gæsarinnar og „Á þessu augnabliki fannst mér við komin á steinaldarstig þar sem veiðimaðurinn ber bráð sína heim í hellinn og veifar henni sigri hrós- andi framan í konuna. Vandinn er bara sá að veiðimannseðlið í mér er orðið mjög útþynnt og ég hafði ekki hugmynd um nœstu skref..." kippti henni út. „Hvort heldurðu að sé betra að að byrja á maganum eða bak- inu?“ spurði ég konuna sem sat álengdar. „Prófaðu bringuna," sagði konan og lét sem hún hefði lítið ann- að gert fyrri hluta starfsævinnar en reyta fúgla. Ég reif lúku af fiðri svo sá í bleikt hörund og áfram þar til bring- an var ber. „Hvemig líst þér á?“ hróp- aði ég í ham og lyfti fúglinum fjaðra- lausum, með haus, vængjum og löpp- um í allar áttir. Aftur til fortíðar „Hægðu aðeins á þér,“ sagði konan. „Séröu ekki að flðrið fýkur um allt eldhúsið? Náðu í Helgu Sigurðar og athugaðu hvort þar er ekki leiðbein- ingar að frnna. Þetta getur ekki átt að vera svona. Athugasemd konunnar átti rétt á sér, fiðrið var úti um allt, ýmist á borðinu eða gólfinu, fyrir utan það sem sveif í loftinu. Ég hlýddi og sótti það merka þing, matreiðslu- bók Helgu Sigurðardóttur. Hún hefur reynst vel allan okkar búskap og brást heldur ekki í þetta skipti. Það kom nefnilega í ljós að með því að stinga fuglunum ofan í volgt vatn fyrir reyt- ingu mátti koma í veg fyrir allt fjaðrafokið. Ég kláraði aö reyta fuglana og sarg- aði síöan af hausa og lappir með búr- hnifhum. Hann bítur ekki vel svo ég reyndi ekki við vængina. „Þú verður að láta bróöur þinn um þá,“ sagði ég, „og svíða kroppana. Þar er ég löglega afsakaður, græjulaus með öllu.“ Kon- an féllst á þetta. Ég sá ekki betur en hún hrifist af snöfúrmannlegum að- gerðum manns sins. Við vorum á steinaldarstiginu. „Þú verður samt,“ sagði hún, „að taka innan úr fuglun- um.“ Þar kom að því sem ég óttaðist mest. Reytingin var ekki spennandi en innyflin vora önnur og jafhvel enn verri saga. Soghljóð „Látum okkur sjá, elskan mín,“ sagði ég og greip beran fugl, þó með vængjum. „Hvar telur þú gáfulegast að byrja?" Ég gerði mig kláran, þvoði hendurnar og kallaði til konunnar: „Hníf.“ Þannig hafa skurðlæknar það, að minnsta kosti á Bráðavaktinni f Sjónvarpinu. Af svip konunnar mátti ráða að hún taldi sig ekki skurðhjúkr- unarfræðing en samt rétti hún mér bitlausan búrhnífinn. Ég risti upp það svæði sem ég taldi kviðinn á fuglin- um, stækkaði gatið og tróð hendinni inn. Með átaki reif ég innyflin úr fugl- inum, hjarta, lifur og gamir. Það heyrðist soghljóð um leið og ég kippti blóðugri höndinni, með öllu gumsinu, út. í sama mund skaust dóttir okkar inn í eldhúsið í þeim saklausu erinda- gjörðum að fá sér mjólkurglas. Hún hrökkaðist út, afinynduð í framan af skelfmgu. „Pabbi,“ hrópaði hún, „þú ert viðbjóður." Jónas Haraldsson adstoöarritstjóri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.