Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2003, Blaðsíða 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2003
T>V
TILBDÐS DAGAR
50% AFSLÁTTUR
GUESS
VERÐ KR . 4. 5 50
m/afslætti
GIVENCHY
VERÐ KR. 6 . □ 5 □
M/AFSLÆTTI
Frakkar vara við
einhliða aðgerðum
- Saddam Hussein ávarpaöi írösku þjóðina í gær
Jacques Chirac Frakklandsforseti
varaöi í gær við hvers konar ein-
hliða hemaðaraðgerðum gegn írak
og sagði það vera klárt brot á alþjóð-
legum lögum. Hann sagði að vopna-
eftirlitsmenn SÞ þyrftu nægilegan
tíma til að ljúka starfi sínu í trak
eftir fund með Hans Blix, formanni
vopnaeftirlitsnefndarinnar. Sá síð-
amefndi hélt síðan til Bretlands þar
sem hann ræddi viö Tony Blair for-
sætisráðherra um ástandið í írak.
Rússar vöruðu einnig við því að
hrapa að ályktunum varðandi fund
eftirlitsmannanna á tómum eld-
flaugahylkjum sem eru hönnuð til
að geyma efnavopn. Viðbrögð
Bandaríkjanna voru hins vegar þau
að fundurinn væri „áhyggjuvald-
andi og alvarlegur".
Saddam Hussein ávarpaði þjóð
sína í gær í tilefni af þvi að 12 ár
voru liöin síðan Persaflóastríðið
hófst og sagði hann að innrásarher-
menn Bandaríkjanna myndu mæta
skjótum dauða. Að þeim hafi ekki
tekist að hertaka landið í síðustu til-
raun og þeim væri greinilega ófært
að læra af mistökum sinum. Af
ræðu hans má ráða að hann hefur
engan áhuga á að fara í útlegð eins
og gefið hefur verið í skyn en því
var einnig hafnað af leiðtogum
arabaríkjanna i gær.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, segir í viðtali við
REUTERS
Saddam hvattur tll dáöa
Palestínsk ungmenni efndu til mótmæla í gær þar sem aögeröum ríkis-
stjórna ísraels og Bandaríkjanna var harölega mótmælt. Þeir sýndu hins veg-
ar Saddam Hussein íraksforseta mikinn stuöning.
þýska blaðiö Súddeutsche Zeitung í
dag að ríkisstjórn Bandaríkjanna
telji að það verði sannað til
fuÚnustu áður en mánuðurinn er
liðinn að írakar hafi ekki sýnt
vopnaeftirlitsmönnum fullan sam-
starfsvilja. Margar þjóðir telja að ný
ályktun frá Öryggisráði SÞ sé nauð-
synleg fyrir réttlætingu stríðsrekst-
urs í írak en Powell telur það
óþarfa. „Við höfum ávallt haldið
fram að SÞ þurfi ekki aðra ályktun
Öryggisráðsins til að grípa til að-
gerða, ef við erum vissir í okkar sök
að írak hafi gereyðingarvopn í sín-
um fórum eða vilji framleiða þau,“
segir Powell meðal annars i viðtal-
inu.
Blix og Mohamed E1 Baradei
halda til íraks um helgina og ræða
meinta vopnaeign íraka við þarlend
yfirvöld á morgun og mánudag.
Talibanar safna
liði í Afganistan
Ríkisstjórnin í Afganistan er að
grípa til aðgerða vegna frétta um að
talibanar og liðsmenn al-Qaeda
væru að safna liði í suðurhluta
landsins. Um fimm þúsund lögreglu-
þjónar hafa verið sendir til borgar-
innar Spin Boldak sem er nærri
landamærunum við Pakistan.
Fregnir hafa einnig borist af átök-
um talibana og hersveitum ríkis-
stjórnarinnar á þessu svæði.
Yfirmaður öryggismála í Spin
Boldak, Mama Ubaidullah, sagði
fréttastofu BBC að hann hefði upp-
lýsingar þess efnis að einn leiðtoga
talibana, Hafiz Abdur Rahim sem
hefur veriö á flótta undan handtöku
síðan ríkisstjóm talibana var komið
frá, héldi til i borginni.
Ubaidullah var þó fullviss um að
lítið mál yrði að halda friðinn í
borginni og að talibanar, undir
stjóm Mullah Muhammad Omar,
hefðu engu áorkað.
Pakistönsk yfirvöld fylgjast
grannt með gangi mála og halda
uppi strangri gæslu á landamærum
þjóðanna. Fyrir tveimur vikum
voru tveir Afganar handteknir fyrir
Flóttamenn í Afganistan
Fjöldi Afgana flúöi landiö þegar ríkis-
stjórn talibana var viö völd.
að reyna að komast ólöglega yfir
landamærin en þeir voru handtekn-
ir og sleppt skömmu síðar. Um 60
þúsund pakistanskir hermenn
munu vera við gæslustörf á landa-
mæranum.
Bjóða upp á nekt-
arflug til Mexíkós
Castaway-feröaskrifstofan í
Houston í Texas, sem sérhæfir sig í
mjög svo undarlegum ferðapökkun,
hefur ákveöið að bjóða upp á nekt-
arflugferð í vor, þá fyrstu sinnar
tegundar sem sögur fara af.
í fréttatilkynningu frá ferðaskrif-
stofunni segir að kynlíf verði ekki
leyft í ferðinni, sem fyrirhuguð er
þann 5. maí nk„ en flogið veröur frá
Miami til Cancun í Mexíkó þar sem
dvalið verður á glæsihóteli í nokkra
daga. Farkosturinn er heldur ekkert
slor, eða 170 sæta Boeing 727 leigu-
þota og verður áhöfnin, bæði flug-
freyjur og flugmenn, sómasamlega
klædd.
Farþegar þurfa að vera fullklædd-
ir við bókun og alveg þar til slökkt
verður á sætisbeltaljósunum, en eft-
ir það er frjáls klæðnaður þar til aft-
ur verður kveikt á sætisbeltaljósun-
um fyrir lendingu.
Að sögn James Bailey, eiganda
ferðaskrifstofunnar, verður alls vel-
sæmis gætt í ferðinni og ekkert dað-
ur eða lauslæti leyft. „Við erum þeg-
ar búnir að bóka í meira en helming
sætanna, sem sýnir að fólk tekur
þessu uppátæki fagnandi.
Fjárglæframaður fær dóm
bandarískum armi
.0g^ r írska bandalags-
- bankans var í gær
svik sem hljóðuðu
upp á tæpa 55 milljarða króna.
Hann sagði fyrir rétti aö hann væri
„mjög miður sín“.
Fjöldi látinna 27
Tala látinna í aurskriðunum í
Brasilíu er komin upp í 27 og óttast
er að sú tala muni enn hækka.
Björgunarmenn reyndu að grafa sig
í gegnum rústirnar en þeir voru
ekki vongóðir um að finna neinn á
lífi. Hætta rikir enn á svæðinu og
geta 7 þúsund manns ekki snúið
heim til sín um sinn.
Ný ríkisstjórn á Grænlandi
Upp úr stjómarsamstarfi Siumut-
flokksins og Inúítabandalagsins
slitnaði vegna deilu um töfralækni
sem var kallaður til að reka illa
anda úr skrifstofum ríkisstjómar-
innar fyrir nokkru. Nýja bandalagið
er á milli fyrmefnds Siumut-flokks
og Atassut-flokks frjálslyndra.
Loksins fyrir rétt
HBelgiskur dóm-
stóll hefur úrskurð-
að að réttað skuli
yfir Marc Dutroux,
sem er sakaður um
að hafa nauðgað og
myrt fjórar ungar
stúlkur auk þess að
hafa nauðgað
tveimur til viðbótar sem fundust á
lífi á heimili hans. Hann var hand-
tekinn fyrir 6 ánun. Líklegt er þó að
réttarhöldin yfir honum, konu hans
og þriðja aðila, Michal Lelievre,
hefjist ekki fyrr en seint á árinu.