Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2003, Page 21
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2003
2
Einfaldar máltíðir
- Var eitthvað í vali fanganna á
síðustu máltið sem kom þér á
óvart?
„Mér fannst sérstakt hvað sum-
ar máltíðirnar voru óskaplega
einfaldar. Mér fannst líklegt að í
sumum tilvikum væri fólk að
hverfa aftur til barnæsku sinnar
með því að fá matinn sem það
borðaði á sunnudögum í æsku.
Sumar máltiðirnar virtust hafa
mikla táknræna merkingu eins
og hjá manninum sem valdi sér
eitt epli sem síðustu máltíð.
Hvort sem það var ætlunin þá fer
maður ósjálfrátt að hugsa um ald-
ingarðinn Eden og upphaf mann-
kyns.“
Barbara segir að vegna þess að
í öllum tilvikum fær áhorfandinn
að vita hvaða glæp viðkomandi
framdi að þá gefi það fólki færi á
að draga sínar eigin ályktanir um
samhengið milli máltíðarinnar og
glæpsins.
Hún segir að verk þetta sé ná-
tengt öðrum verkum hennar sem
fjalla um dauðann. Sem dæmi
nefnir hún verk sem samanstóð
af myndum af dánum börnum
sem höfðu dáið snögglega og Bar-
bara safnaði saman síðustu
myndum af þeim. Hún safnaði
einnig orðum í þýskri tungu sem
lýsa því hvernig fólk deyr og
saumaði þau í rúlluhandklæði,
lík þeim sem sjást á almennings-
klósettum. Síðan gátu menn dreg-
ið sér nýjan og nýjan skammt af
dauðaorðum. Þannig má segja að
Barbara hafi lengi haft lifandi
áhuga á dauðanum.
„Það má eiginlega segja að ég
sé að vinna með þá vissu að
mannkynið sé ekki hamingju-
samt þótt það reyni að vera það.
Ég einbeiti mér að þessu
ástandi."
Myndi ekki vilja neitt
- Þú hlýtur að hafa velt því fyr-
ir þér við vinnslu verksins hvað
þú myndir sjálf velja sem þína
síðustu máltíð?
„Ég held að ég hefði ekki lyst á
neinum mat. Sérstaklega ekki þar
sem ég fengi ekki að reykja."
- Barbara segir að henni hafi
borist boð um að sýna á Akureyri
eftir að forstöðumaður safnsins
sá verk hennar á sýningu í
Berlín. Telur hún að list hennar
sé mótuð af starfi hennar í leik-
húsinu?
„Ég held að innsetningar séu
rökrétt framhald, af leikhúsinu
því þær eru nokkurs konar leik-
sýningar. Ég vann mikið með
málverk og höggmyndir fyrst eft-
ir að ég yfirgaf leikhúsið og býst
við að það hafi verið einhvers
konar hreinsun áður en ég sneri
mér að innsetningunum.
Svo fór ég að yfirtaka heil hús
til að sýna í og fyrst í stað var
það erfitt en nú sýna menn mér
meiri skilning."
- Sýningin á Akureyri var opn-
uð í gærkvöld en Barbara kom til
landsins fyrir rúmri viku til þess
að annast uppsetningu sýningar-
innar. En hvað er næst á dagskrá
á ferli listamannsins?
„Eftir þetta verk var mér boðið
til Rússlands þar sem ég vann
innsetningu. Síðan gerði ég verk
sem heitir: I have a dream, sem
hefur fengið verðlaun. Sú inn-
setning hefur verið sýnd tvisvar
sinnum en það er mikið verk að
setja hana upp.
Mitt næsta verkefni er að setja
upp sýningu í Nebraska. Ég ætla
að safna tárum fólks saman og
HelQarhlacf 3Z>V
KYPUR
10. - 24. apríl
í lok apríl er veðrið á Kýpur óaðfinnanlegt. Meðalhiti
er um 25°C og ávaxtaangan í lofti. Kýpverjar eru líka
frábært fólk heim að sækja og í þessari Páskaferð
bjóðum við einnig upp á tveggja daga skemmti-
siglingu til Egyptalands með skoðunarferð til Kaíró
og að Pýramídunum.
Verð frá 87.500 kr.
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn á Ermitage Beach Hotel.
Innifalið: Flug, gisting, ferðir til og frá flugvelli erlendis,
íslensk fararstjórn og föst aukagjöld.
Verð frá 99.300 kr.
Á mann í tvíbýli á Ermitage Beach Hotel í íbúð með einu
svefnherbergi.
Innifalið: Flug, gisting, ferðir til og frá flugvelli erlendis,
íslensk fararstjórn og föst aukagjöld.
PORTUGAL
11. - 25. apríl
Vorið í Portúgal er sólríkt og hlýtt og Páskaferðir
okkar þangað fyllast æb'ð snemma. í Algarve bjóðum
við vandaða gististaði og fyrirtaks fararstjórn auk
skemmtilegra skoðunarferða.
Verð frá 65.500 kr.
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn á Cantinho do Mar.
í íbúð með einu svefnherbergi.
Innifalið: Flug, gisting, ferðir til og frá flugvelli erlendis,
íslensk fararstjórn og föst aukagjöld.
Verð frá 69.900 kr.
Á mann í tvíbýli á Cantinho do Mar.
Innifalið: Flug, gisting, ferðir til og frá flugvelli erlendis,
íslensk fararstjóm og föst aukagjöld.
MÁRITÍUS
TERRA vyiv
NOVA jsoi
-SPENNANDI VALKOSTUR-
Stangarhyf 3A
110 Reykjavik
Sími: 591 9000
terranova.is
13. - 27. apríl
Paradísareyjan í Indlandshafi með sínar
sykurhvítu strendur og stórkostleg kóralrif verður
ógleymanleg öllum þeim sem hana gista.
Petta er ævintýralegt páskafrí!
Verðfrá 158.300 kr.
Á mann í tvíbýli á Hotel Le Surcouf.
Innifalið: Flug, gisting, hálft fæði og ferðir til og frá flugvelli
erlendis og föst aukagjöld.
V/SA