Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2003, Síða 25
LAUGARDAGUR IS. JANÚAR 2003
HeIgarhloö JÖV
25
DV-myndir Sig. Jökull
DV-myndir GVA
Guðný hitar tortillasköku á
þurri heitri pönnu og lætur ost
bráðna á henni. Því næst setur
hún á hana hrísgrjón, baunir
og grænmeti. Hrísgrjónin fyrst.
Ein til tvær inatskeiðar af
baunamauki og tvær matskeið-
ar af grænmeti konian ofan á
hrísgrjónin á kökunni. Henni
er rennt á disk og þar er liún
brotin saman.
Hér er góðgætinu pakkað inn í
umbúðirnar, tortillaskökuna.
Þegar því er lokið er salsasósa
og sýrður rjómi sett ofan á.
Mexíkósk gæðavín á
gömlum grunni
- er val Sverris Eyjólfssonar hjá Egils
Eftir áramótin er gaman að slá á létta strengi
í matargerðinni og nú urðu baunir með
mexikósku ívafi fyrir valinu. Það er ekki sjálf-
gefið að mexíkósk vín passi umfram önnur með
mexíkóskum réttum en svo vel erum við í sveit
sett hér norður í Dumbshafi að finna má fyrir-
taksvín frá Mexíkó i Ríkinu. Staðreyndin er að
vín frá Mexíkó eru að ryðja sér hratt til rúms á
evrópskum markaði og má kannski að einhverju
leyti þakka það framleiðslu og innflutningi bjórs
frá sama landi. En vínin verða að standa vel fyr-
ir sínu og Sverrir Eyjólfsson hjá Ölgerð Egils
Skallagrímssonar segir að það geri þau svo sann-
arlega. Og það er ekki eins og að þeir séu nýlið-
ar í framleiðslu vína, Mexíkóar, því að 19. ágúst
1597 tók Don Lorenzo Garcia við mjög svo fram-
bærilegu landi til vínræktunar frá Philip II
Spánarkonungi. Þar var vínviður í fullum blóma
og úr þrúgum hans voru fyrstu amerísku vínin
framleidd. Vínrækt stóð fljótt með miklum
blóma á vegum Don Lorenzo Garcia og fram-
leiddi hann jafnframt brandí. Þetta var víngerð-
in Hacienda de San Lorenzo sem í dag heitir
Casa Madero, elsti vínframleiðandi í Ameríku og
víðar.
Fyrra vínið, sem mælt er með í dag, er Casa
Madero Cabernet Sauvignon. Þetta vín kemur frá
Parras-dalnum og er að öllu leyti úr Cabemet
sauvignon þrúgum. Það hefur djúpan, rauðan lit,
lyktin er opin með góða angan af þroskuðum
ávexti. í bragði er vínið með mildan, kryddaðan
tón. Þetta er „langt“ vín með örlítilli stemmu.
Casa Madero er geymt 12 mánuði á eikartunn-
um. Það kostar 1500 krónur í ÁTVR.
Seinna vínið er L.A Cetto Zinfandel. Árið
1926 kom ítalskur innflytjandi, Don Ang-
elo Cetto, til Mexíkó. Flutti hann með sér
ríka hefð í ræktun og framleiðslu vína.
Allt byrjaði þetta rólega í Guadalupe-
dalnum en þegar hann fann bæði lyktina
og bragðið af þeim afurðum sem Mexíkó
gaf af sér var hann ekkert að hika. í dag hef-
ur L.A Cetto yfir um 1000 hekturum að ráða
og skiptist svæðið til helminga undur þrúg-
ur fyrir rauðvín og þrúgur fyrir hvítvín. All-
ar þrúgur í garði L.A Cetto eru handtíndar.
L.A Cetto Zinfandel er litríkt vín, „öðruvísi
vín“. L.A Cetto er gjaman sagt vera Mexíkó
í öllum sínum fjölbreytileika. Ljós mildur
rauður litur er af víninu, lyktin tær og
bragðið ferskt. L.A Cetto hefur á hverju ári
undanfarin 6 ár unnið gull, silfur eða brons
á sýningunni London Wine Trade Fair. L.A
Cetto Zinfandel kostar 1290 krónur í ÁTVR.
Umsjón
Ilaukur Lárus
Ilauksson