Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2003, Síða 33
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2003
Helqarblaö H>'V
33
heldur bera framan í sig laxerol-
íu sem gerir það að verkum að
þeir glansa allir í framan eins og
þeir séu að farast úr stressi og
taugaveiklun.
„Sérlega gott fyrir húðina,"
segir Steinn.
Á undan sinni samtíð með
Limbó
- Steinn Ármann er ekki einn
þeirra leikara sem voru ákveðnir í
starfsvali frá barnæsku. Hann
hætti í Flensborg og fór að vinna
við smíðar og starfaði hjá Hag-
virki. Síðan fóru þeir saman í inn-
tökupróf í Leiklistarskólanum,
hann og Davíð Þór Jónsson, félagi
hans og vinur. Þeir komust báðir
alla leið í hinn alræmda sextán
manna hóp og sátu síðan hlið við
hlið á tröppunum og opnuðu um-
slögin sem fólu í sér þann dóm að
Steinn kæmist inn en ekki Davíð.
Steinn segir reyndar að sér hafi
dauðleiðst um tima í skólanum,
sérstaklega á öðrum vetri þegar
hann segir að endalaus umræða og
pælingar um leiklist hafi næstum
hrakið sig út á götu.
Það voru síðan Steinn Ármann
og Davið sem segja má að hafi
valdið kynslóðaskiptum í íslensku
grini með þáttum sínum Radíus,
Flugum í Dagsljósi og að ógleymd-
um hinum frægu Limbó-skemmti-
þáttum sem sýndir voru tvö eftir-
minnileg laugardagskvöld í Sjón-
varpinu fyrir 12-13 árum. Þeir
þættir sem Steinn og Davíð gerðu í
samvinnu við Óskar Jónasson fóru
vægt sagt fyrir brjóstið á áhorfend-
um og urðu aldrei nema tveir.
„Fólk hringdi í okkur ofsareitt
og spurði hvern djöfulinn þetta
ætti eiginlega að þýða. Að vera að
eyða peningum í svona fillagang,"
segir Steinn og glottir að endur-
minningunni.
- Bæði Skari skrípó og dúóið
Jón Gnarr og Sigurjón komu fyrst
fram í þessum undarlegu þáttum
og þeir eru víða varðveittir á ís-
lenskum heimilum og hafa í ár-
anna rás öðlast nokkurs konar
„cult“-status.
í dag starfa Davíð og Steinn Ár-
mann ekki saman en báðir hafa
árum saman starfað sem skemmti-
kraftar í mjög víðum skilningi þess
orðs. Steinn hefur árum saman
starfað á smíðaverkstæöi Sjón-
varpsins og segist í rauninni
stundum sjá eftir því að hafa ekki
farið beint í Iðnskólann og tekið
sveinspróf i húsasmíði.
„Ég fæ alveg nóga útrás þegar ég
er að leika og þarf ekkert að láta
mikið á mér bera þess á milli. Ég
fór að starfa sem skemmtikraftur
því ég fékk ekki nóg að gera i leik-
listinni og vissi aö ég gat þetta
líka.“
Sannleikskomið í klisjunni
Hann hefur sjaldan tekist á við
dramatísk hlutverk heldur oftast
verið í gamanleikjum, nú síðast í
Með vífið í lúkunum sem gekk
fyrir fullu húsi i nærri þrjú leik-
ár í Borgarleikhúsinu. Það er
hálfgerð klisja í leikhúsheimin-
um að leikarar segjast festast í
gamanrullum en kvörtunin heyr-
ist eiginlega aldrei í hinn veginn
því dramatískir leikarar vola
sjaldan yfir því að fá ekki spreyta
sig sem grínistar. Er það tilfellið
að það leynist ófullnægður
dramatískur leikari í brjósti allra
gamanleikara?
„Sambúð skemmtikraftsins og
leikarans er góð og hvorugur tek-
ur neitt frá hinum þótt annar
þyki kannski ekki nógu fínn í
sumum kreðsum. Skemmtikraft-
ar eru færri en leikarar og hafa
oft hærri laun.
En ég held að það sé sannleiks-
korn í klisjunni. Mér finnst alltaf
afskaplega gaman þegar ég fæ
tækifæri til aö takast á við
dramatik og vildi gjarnan að þau
væru fleiri." -PÁÁ
Bk Goodrích
rDekk
- veldu aöeins það besta
Vagnhöfða 23 • Sími 590 2000
www.benni.is
BFCoodrích Umboösaðilar: Hjólbarðaverkstæði Bflabúðar Benna • Reykjavík Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns • Reykjavík Nesdekk • Seltjarnarnesi Dekk og smur • Stykkishólmi Léttitækni • Blönduósi Höldur • Akureyri Bflaþjónustan • Húsavík Smur og Dekk • Höfn Hornafirði IB Innflutningsmiðlun • Selfossi
Góð verkfæri
á fínu verði
VISA-EURO
LÉTTGREIÐSLUR í ÞRJÁ MÁNUÐI
HJÁ BRÆÐRUNUM ORMSSON
UMBOÐSMENN UM
LAND ALLT
AEG ©ORMSSON ÆlasCopco
kr. 28.900.-
AEGBORVB.
570 watt • 13 mm patróna
kr. 34.900.-
AEG BORVEL
Rafhlöðuborvél • 12 volt • 1 rafhlaða
kr. 21.900.-
HÍTABLÁSARI
Atlas-Copco •Hitablásari • 2000 w
kr. 6.990.-
kr. 9.900.-
kr. 9.900.-
SnNGSOG
Atlas-Copco BSPE100 • 600 w
RAFHLOÐU
BORVÉL
12 volt»2 rafhlööur
•13 mm patróna
kr. 32.900.
kr. 24.900-
BROIHAMAR
Atlas-Copco PFH20 • 560 w
HJÓLSÖG
Atlas-Copco K55 • 1500w
kr. 24.900.-
JUDARI
Atlas-Copco VSSE20 • 260 w