Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2003, Side 56

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2003, Side 56
Jl eo HelQorhlctö JOV LAUGARDAGUR IO. M Af 2003 ílasturtan Bílaþvottastöðin með bílinn á þakinu Bíldshöfða 8 - sími 5871944 Verðskrá Vetrarþvottur fólksbíll 1.290 kr. Vetrarþvottur jeppi og stærri bílar 1.590 kr. 10 tíma kort fólksbílar 9.900 kr. 10 tíma kort jeppar og stærri bílar 12.700 kr. Áfylling á rúðupiss (fer ekki eftir magni) 500 kr. Prógrömm 1. sápuþvottur, burstaþvottur, hjólaburstaþvottur, skolun, bón og blástur. 2. sápuþvottur, burstaþvottur, hjólaburstaþvottur, undirvagnsþvottur, skolun, bón og blástur. 3. tjöruleysis- og háþrýstiþvottur, sápuþvottur, burstaþvottur, hjólaburstaþvottur, skolun, bón og blástur. 4. tjöruleysis- og háþrýstiþvottur, sápuþvottur, burstaþvottur, hjólaburstaþvottur, skolun, bón, blástur og undirvagnsþvottur. ATH. !! TÖKUM EKKI ÁBYRGÐ Á LOFTNETUM, VINDSKEIÐUM, SPEGLUM EÐA ÖÐRUM LAUSUM HLUTUM. Frúin hlær í hreinni bíl frá Bílasturtu Guðfinns Vorútsala 25-50% fimmtudag, föstudag, laugardag og mánudag. SPl_j BLÁU HÚSIN FAXAFENI SÍMI 553 6622 www.hjortur.is. Opnunaru'mi: mánudaga-föstudaga 11-18» laugardaga 11-16 Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu « embættisins að Bjólfsgötu 7, Seyðisfiröi, sem hér segir á eft- ___________irfarandi eignum:_______ Árstígur 17, fastnr. 216-8253, Seyðis- firði, þingl. eig. Sævar Garðarsson, Finnur Óskarsson og Lára Guðmunda Vilhjálmsdóttir, gerðarbeiðendur íbúðalánasjóður og sýslumaðurinn á Seyðisfirði, miðvikudaginn 14. maí 2003, kl. 14.00_______________ Gil, Jökuldalshreppi, þingl. eig. Ásta Bryndís Sveinsdóttir og Emil Jóhann Árnason, gerðarbeiðendur Lánasjóð- ur landbúnaðarins, Olíuverslun ís- lands hf. og Vátryggingafélag íslands hf., miðvikudaginn 14. maí 2003, kl. 14.00 —Grænahlíð ásamt Nýbýlalandi 6, Aust- ur-Héraði, þingl. eig. Jón Þórðarson og Jarðeignir ríkisins, gerðarbeiðandi Austur-Hérað, miðvikudaginn 14. maí 2003, kl. 14.00. Kolbeinsgata 62, fastnr. 217-1964, Vopnafirði, þingl. eig. Einar Ólafur Einarsson, gerðarbeiðandi íbúðalána- sjóður, miðvikudaginn 14, maí 2003, kl. 14.00. Reynivellir 12, Egilsstöðum, fastnr. 217-6097, þingl. eig. Birgir Vilhjálms- son, gerðarbeiðendur Austur-Hérað og Glitnir hf., miðvikudaginn 14. maí 2003, kl. 14.00. Skógarlönd 3, fastnr. 217-6161, Egils- stöðum, þingl. eig. í efra ehf., gerðar- beiðandi Byggðastofnun, miðvikudag- inn 14. maí 3002, kl. 14.00. Strandvegur 29-33, fastnr. 216-8810, Seyðisfirði, þingl. eig. Byggðastofnun og Strandberg ehf., gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Seyðisfirði, miðviku- daginn 14. maí 2003, kl. 14.00. Vallholt 6, fastnr. 217-2078 Vopnafirði, þingl. eig. Hjördís Matthíasdóttir, gerðarbeiðandi Sparisjóður Þórshafn- ar og nágr., miðvikudaginn 14. maí 2003, kl. 14.00___________________ SÝSLUMAÐURINN Á SEYÐISFIRÐI Smáauglýsingar byssur, ferðalög, ferðaþjónusta, fyrir ferðamenn, fyrir velðimenn, gisting, golfvörur, heilsa, hesta- mennska, Ijósmyndun, líkamsrækt, safnarinn, sport, vetrarvörur, útilegubúnaður... tómstundir 550 5000 Skákþátturinn Umsjón Sævar Bjamason Teflt í Skák er fyrirbæri sem margir botna litið í. Margir halda að hún sé nokkurs konar leikur eða af- þreying en þvi fer fjarri. Skák er heill heimur út af fyrir sig, ástríða sem erfitt er að fjarlægast, hvað þá að hætta. Greinarhöfundur brá sér til Færeyja um páskana og tefldi á færeyska meistaramótinu í boði heimamanna. Þrátt fyrir að hafa deilt 4.-7. sæti með bestu heimamönnum fékk ég ekki að taka þátt í aukakeppninni um Færeyjameistaratitilinn! En Fær- eyingar ákváðu að breyta meist- aramóti sinu í alþjóðlegt mót og buðu einum fulltrúa frá hverju Norðurlandanna og einum Skota! Af hverju Skotanum var boðið er ráðgáta sem ég komst ekki að. Lík- lega er skýringin sú að Skotar eru (þó) skyldari Færeyingum en Sví- ar og Finnar. Það var Dani sem varð efstur á mótinu, Kim nokkur Pilgaard (2440), sigraði nokkuð örugglega. Hann hefur nýlega náð sínum fyrsta stórmeistaraáfanga og var vel að sigrinum kominn. Annars varð lokastaðan þessi: 1. Kim Pil- gaard (2440) 9 v. 2. John Shaw (2440) 81/2 v. 3. Eirik T. Gullaksen, Noregi (2354) 7 v. 4.-7. Sævar Bjarnason (2258), Martin Poulsen (2245), Olavur Simonsen (2250) og Flóvin Þór Næs (2317) 6 v. Færey- ingarnir tefldu nokkurs konar aukakeppni um titilinn, atskákir, og þar varð Martin Poulsen (2245) efstur. Ég hefði getað staðið mig eitt- hvað betur en slakaði á í lokin eft- ir góða byrjun gegn stigahæstu keppendunum. En ég græddi þó 9 Elo-stig! Skáklíf í Færeyjum stend- ur í miklum blóma um þessar mundir og ekkert tii sparað til þess að vegur skákarinnar verði sem mestur. Kasparov kom í sína aðra heimsókn í fyrra og tefldi fjöltefli við landsliðið. Það var að- eins einn Færeyingur sem náði jafntefli, það var Heini Olsen. Einn besti skákmaður Færey- inga er hálfur íslendingur, ættað- ur frá Húsavík, og heitir Flóvin Þór Næs. Hann hefur oft teflt hér á landi á vegum Hróksins. Rani Nols er forseti Skáksambands Færeyja og bræður hans tveir framarlega i skáklifinu. Rani hef- ur sérstakan áhuga á skák og skortir ekki hugmyndirnar til að koma í framkvæmd. Ég kom fyrst til Færeyja 1981 og mikið hefur breyst í skáklífinu þar síðan. Keppendur á Færeyjameistara- mótinu voru um 100 og þó vantaði nokkra af þeim bestu! Um páskana var Skákþing ís- lands haldið hér heima i öllum flokkum nema landliðsflokki (12 keppendur) og það voru aöeins um 30 manns sem tóku þátt. En Fær- eyingar eiga heiður skilinn fyrir að sinna skákinni svona vel, þar þurfa menn að koma frá öllum eyj- unum til Þórshafnar og tefldu 11 umferða kappskákmót á 7 dögum. Þrjá daga voru tefldar tvöfaldar umferðir og þær voru mér erfiðar í lokin. En mótið sjálft var frábært engu að síður og gætum við ís- lendingar dregið mikinn lærdóm af. Mót þetta minnti mig á nokkur af best heppnuðu alþjóðlegu skák- mótunum sem Jóhann Þórir Jóns- son heitinn hélt á níunda áratug síöustu aldar. Skemmtilegt skákmót í Kaupmannahöfn og Malmö í suður- Svíþjóð er nú nýlokið sterku og skemmtilegu skákmóti. Það var haldið sameiginlega af aö- ilum báðum megins Eyrarsunds, Færeyjum Jan Tiniman Enn sterkur þó orðinn sé fimmtugur. helmingurinn af mótinu var hald- inn í Malmö og hinn helmingur- inn i Kaupmannahöfn! Það er búið að brúa sundið og Danir á vissan hátt að ná áhrifum á Skáni aftur, allavega menningarlega og versl- unarlega. Efstur varð Úkraínu- maðurinn Vassilij Ivanchuk sem sigraði örugglega með 7 v. af 10. Annar varö Sune Berg Hansen stigahæstur Norðurlandabúa með 6 v. og þriðji varð Luke McShane Hróksmaður með 5,5 v.. Fjórði varð svo Curt Hansen með 4,5 v. Þótt Jan Timman hafi átt slæmt mót er hann enn öflugur þó fimm- tugur sé orðinn og nokkrum arum betur enda skákin grein allra ald- ursflokka sem er einn aðalkostur skáklistarinnar! Hvítt: Jan Timman (2579). Svart: Curt Hansen (2610). Frönsk vörn. Malmö (2), 30.04.2003. 1. e4 e6 2. d4 d5 3. e5 c5 4. c3 Rc6 5. Rf3 Db6 6. a3 Rh6 7. b4 cxd4 8. cxd4 Rf5 9. Bb2 Bd7 Þetta er gamla afbrigðið, nú ný- verið hafa menn verið að spreyta sig á 9. a5 10. b5 a4 sem er allt ann- ar handleggur! En nú fær hvítur rými á kóngsvæng, spurningin er bara hvort svartur geti skapað einhverja veikleika þar. 10. g4 Rh6 11. h3 Be7 12. Bd3 Hc8 13. Rbd2 Rb8 14. De2 a6 15. Rbl Rc6 16. 0-0 0-0 17. Rc3 Það er eins og Curt hafi grunað að Timman stefndi að þessari peðsfórn, alla vega fór riddarinn aftur á c6 eftir nokkur hopp. En nú koma skemmtilegar sviptingar. 17. -Rxd4 18. Rxd4 Dxd4 19. Re4 Db6 Þessi skemmtilega fórn Timmans er nokkuð auðskilin. Eftir 20. Rf6+ gxf6 21. exfB Bd6 22. Dd2! vinnur hvítur manninn aftur með myljandi sókn. 20. Rf6+ Bxf6 21. exf6 Bb5 22. Bxb5 Dxb5 23. De3 d4 Hvítur hótaði illþyrmilega 24. Dg5 með máti. Curt reynir að andæfa. 24. Bxd4 Hfd8 25. Hfdl Hd5 26. Bb2 Hg5 27. Hacl He8 28. Df4 Hg6 29. Hc5 De2 30. Hd2 Del+ 31. Kh2 Dfl Svartur er staddur í óþægilegri beyglu og getur lítið varist. Timm- an teflir oftast skemmtilega þó þeir allra sterkustu í heiminum vefjist aðeins fyrir honum núna á seinni hluta æfinnar! 32. Hh5 Rf5 33. Df3 Rh6 34. fxg7 f5 35. g5 Rf7 36. Bf6 36. -Rxg5 Hér er 36. Db5 annar möguleiki i erfiðri stöðu. En þetta er örvæntingarfórn í erfiðu tíma- hraki. 37. Bxg5 h6 38. Hdl Db5 39. Bxh6 De5+ 40. Khl Df6 41. Be3 1-0 Aðalfundur Skáksambandsins Nokkur úlfaþytur hefur verið hér á landi vegna aðalfundar Skáksambandsins. Valinkunnur sómamaður, Stefán Baldursson, skrifstofustjóri í menntamálaráða- neytinu, tók við af Hrannari Birni Arnarssyni sem forseti skáksam- bandsins. Það eru ágæt tíðindi en það sem mesta athygli vakti var að fulltrúar Skákfélagsins Hróks- ins gengu af fundi eftir að tillaga sem þeir voru hlynntir var felld með 2 atkvæðum. Hrafn Jökulsson vaknaöi upp við það að enginn er spámaður í sínu föðurlandi og þeir Hróksmenn gengu af fundi. Ðeilan stóð um fjölda erlendra keppenda á íslandsmóti skákfé- laga en til þessa hafa engar tak- markanir verið. Tillaga um að jafnmargir ís- lenskir sem erlendir keppendur mættu einungis vera í sama liöi var samþykkt og það stóð í þeim Hróksmönnum. Reyndar er þessi nýja regla mun rúmari en tíðkast víðast annars staðar í Evrópu nema Þýskalandi en þar taka mörg lið einungis skipuð erlend- um þátttakendum þátt í deilda- keppninni, þar af margir erlendir Hróksmenn! En mér finnst að þeir Hróksmenn hafi ekkert að sanna lengur í íslandsmóti skákfélaga, þeir hafa unnið 2 ár í röð og eru komnir með 2 lið í 1. deild. Hrafn má ekki hætta afskiptum af skák- inni, heldur einbeita sér að því að efla hana meira og betur en hann hefur gert til þessa og þó hefur hann lyft Grettistaki til þessa. En það er kominn tími til að skoða baráttuna á reitunum 64.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.