Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2003, Page 68
72
He/qctrhlacf X>'V LAUOARDAGUR IO. MAÍ 2003
Afmæli
Islendingaþættir
Umsjón
Kjartan Gunnar
Kjartansson
Lilja Sólveig Kristjánsdóttir
fyrrverandi kennari og safnvörður
Lilja Sólveig Kristjánsdóttir, fyrr-
verandi kennari og safnvöröur, Sóleyj-
argötu 15, Reykjavík, verður áttræð á
morgun.
Starfsferill
Lilja Sólveig fæddist að Brautarhóli
í Svarfaðardal í Eyjafirði 11.5. 1923.
Svarfaðardalur er hennar bernskuslóð-
ir en hún hefur búið í Reykjavík meira
en hálfa ævina. Hún varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri og stund-
aði handavinnunám í Haandarbejdets
Fremme í Kaupmannahöfn og síðan i
Bibelskolen, Staffeldtsgate 4, Ósló, i
hálft annað ár. Hún var kennari í
Svarfaðardal, á Dalvík, í Gagnfræða-
skólanum við Lindargötu í Reykjavik
og Héraðsskólanum á Laugum, einnig
skólastjóri Húsmæðraskólans á Löngu-
mýri í Skagafirði einn vetur. Hún
stundaði bústörf og skrifstofustörf í
nokkur ár og var safnvörður í Lista-
safni Einars Jónssonar í 23 ár.
Lilja Sólveig var um tíma í stjórn
KFUK í Reykjavík og í mörg ár í stjórn
Kristniboðsfélags kvenna í Reykjavík.
Hún hefur líka fengist við ritstörf. Eft-
ir hana er barnabókin Dýrin í dalnum,
og þáttur eftir hana birtist í bókinni
Móðir min húsfreyjan. Nú í tilefni af-
mælisins kemur út bókin Liljuljóð með
frumsömdum ljóðum og sálmum,
ásamt sálmaþýðingum hennar. Sumt af
því efni hefur áður birst á prenti hjá
Námsgagnastofnun og í sálma- og
nótnabókum kirkjunnar og KFUM og
K. Þá hefur Lilja þýtt úr norsku bókina
Ný kynni af Kína eftir Asbörn Aavik.
Fjölskylda
Lilja Sólveig giftist 1.7. 1967 Sig-
uringa Eiríki Hjörleifssyni, kennara og
tónskáldi, f. 3.4. 1902. Foreldrar hans
voru Guðrún Sigurðardóttir og Hjör-
leifur Einarsson. Þau bjuggu lengst af í
Keflavík og Guðrún síðar í Reykjavík
til dánardægurs.
Systkini Lilju Sólveigar: Gísli Björg-
vin Kristjánsson, ritstjóri f. 28.2. 1904,
búsettur í Reykjavík og Mosfellsbæ;
Filippía Sigurlaug Kristjánsdóttir,
Hugrún skáldkona, f. 3.10. 1905, lengst
af búsett í Reykjavík en um tíma á Ak-
ureyri; Sigurjón Kristján Kristjánsson,
lengi bóndi á Brautarhóli, síðar verka-
maður á Akureyri og í Reykjavík, f.
10.9.1907; Svanfríður Guðný Kristjáns-
dóttir, húsmóðir í Reykjavík, f. 22.3.
1910; Sigurður Marinó Kristjánsson,
skólastjóri Héraðsskólans á Laugum og
bóndi á Brautarhóli, f. 15.10. 1914.
Foreldrar Lilju Sólveigar voru Krist-
ján Tryggvi Sigurjónsson bóndi og
Kristín Sigfúsína Kristjánsdóttir hús-
freyja. Þau bjuggu á Brautarhóli í
Svarfaðardal en Kristín lést hjá dóttur
sinni í Reykjavík.
Á morgun, sunnudaginn 11. maí,
syngur Schola Cantorum texta eftir
Lilju Sólveigu i Hallgrímskirkju í at-
höfn sem hefst kl. 16. Þangað eru þeir
sem vilja heilsa upp á hana innilega
velkomnir.
Ari Arnljóts Sigurðsson
fyrrverandi verkstjóri og verslunarmaður
Ari Arnljóts Sigurðsson, fyrrverandi
verkstjóri og verslunarmaður, Háaleiti
7a, Keílavik, verður sjötugur á morg-
un.
Starfsferill
Ari fæddist á Finnastöðum í Sölva-
dal í Eyjafjarðarsýslu 11. maí 1933 og
ólst upp á Siglufirði og í Skagafirði.
Hann hefur verið búsettur í Keflavík
frá 1952 og m.a. starfað við verslunar-
störf og verkstjórn í fiskiðnaði og út-
gerð. Hann var formaður verkstjórafé-
lags Suðurnesja og stjórnarmaður í fé-
lagssamtökum Framsóknarflokksins í
Reykjaneskjördæmi.
Fjölskylda
Ari kvæntist 14.8. 1956 Halldóru
Ingibjörgu Helgu Jensdóttur, hús-
freyju, f. 5.11. 1936. Foreldrar hennar:
Jens Jóhannsson og Sólveig Sigurðar-
dóttir í Keflavik.
Börn Ara og Halldóru eru Jens
Yngvi, f. 21.1. 1956, verslunarmaður í
Keflavík, Jóhann Liljan, f. 8.4. 1957,
framleiðslustjóri, Keflavík, Ágúst Guð-
jón f. 6.1. 1960, kerfisfræðingur, Garða-
bæ, og Halldór Ari, f. 19.8. 1963, verk-
taki, Keflavík. Afkomendur Ara Am-
ljóts, börn, barnabörn og barnabarna-
börn eru 26 talsins.
Systkini Ara Arnljóts: Þrúðmar Sig-
urðsson, f. 24.4. 1927, bóndi og eftirlits-
maður, Miðfelli, Hornafirði, Jóhanna
Arnljóts Sigurðardóttir, f. 22.4. 1929,
húsmóðir í Grindavík, Ragnheiður
Arnljóts Sigurðardóttir, f. 17.11. 1930,
húsmóðir á Akureyri, Jóhannes Arn-
ljóts Sigurðsson, f. 10.12. 1931, d. 17.12.
1971, bóndi Hafnarnesi, Hornafirði,
Hulda Líndal Sigurðardóttir, f. 27.7.
1934, húsmóðir í Kópavogi, Freyja
Fanndal Sigurðardóttir, f. 10.11. 1936,
húsmóðir í Hafnarfirði, Bryndís Kol-
brún Sigurðardóttir f. 7.11.1938, d. 24.8.
1985, húsmóðir í Hafnarfirði, Kolbeinn
Skagfjörð Sigurðsson, f. 9.6. 1940, d.
17.4. 1983, trésmiður á Akureyri, Jó-
hann Sigurður Sigurðsson, f. 22.12.
1941, fyrrverandi bóndi í Skagafirði,
nú búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Ara Arnljóts voru Sigurð-
ur Ingimar Arnljótsson, bóndi og af-
greiðslumaður, og Jóhanna Lilja Jó-
hannesdóttir húsmóðir.
Ari vonast til að sjá ættingja og vini
laugardaginn 17.5. í Framsóknarhús-
inu, Hafnargötu 62, Keflavík, milli kl.
15 og 19.
Hallveig Fríðrikka Guðjónsdóttir
fyrrverandi húsfreyja
Hallveig Friðrikka Guðjónsdóttir
fyrrverandi húsfreyja á Dratt-
halastöðum, verður áttræð í dag.
Starfsferill
Hallveig fæddist að Heiðarseli á
Jökuldalsheiði. Hún er yngst af 6
systkinum. Hún ólst upp við öll
almenn sveitastörf og var í
kaupavinnu á Jökuldal sem ung
stúlka. Hún var til heimilis i
Heiðarseli til ársins 1946 en þá hættu
foreldrar hennar búskap og fluttu til
Seyöisfjarðar.
Hallveig var í farskóla á Jökuldal
eins og algengt var þá. Síðan var hún
veturinn 1940 til 41 á Eiðum og
veturinn 47-48 í Húsmæðraskólanum á
Akureyri.
Frá því að Hallveig flutti úr heiðinni
og þar til hún gerist húsfreyja á
Dratthalastöðum vann hún ýmis störf.
Hún var í vist, vann í fiski,
sjúkrahúsum, sælgætisgerð, kaupa-
vinnu o.fl.
Hallveig er vel hagmælt eins flest
systkina hennar og gaf hún út
ljóðabókina Stiklaö á steinum árið
1990.
Fjölskylda
Hallveig giftist 26. okt.
1959 Stefáni Björgvini
Guðmundssyni, bónda og
landpósti, á Dratthala-
stöðum, f. 17.6.1922. Hann er
sonur Guðmundar Halldórs-
sonar, bónda og trésmiðs, f.
20.2. 1869, d. 17.10. 1942, og
Guðrúnar Sigmundsdóttur
húsfreyju á Dratthala-
stöðum, f. 14.7. 1885, d. 12.11.
1964.
Sonur Hallveigar og Sveins
Ólafssonar, f. 4.8. 1924, er Jón Rúnar
Sveinsson, f. 15.7. 1951, félagsfræð-
ingur, kvæntur Valgerði Árnadóttur
íþróttakennara og eiga þau 3 börn.
Börn Hallveigar og Stefáns eru
Sigmundur Kristján, f. 13.7. 1960,
bóndi, kvæntur Sigríði Ágústu Jóns-
dóttur, húsmóður, eiga þau 2 börn.
Guörún Svanhildur, f. 2.11. 1962,
skrifstofustjóri, gift Emil H. Ólafssyni
vélstjóra og eiga þau 2 börn. Guð-
mundur Hjalti, f. 26.9. 1964, kvik-
myndatökumaður, og á hann 2 börn.
Móðir þeirra er Guðrún Vigdís
Sigvaldadóttir. Sólveig Heiðrún, f.
23.6.1966, fulltrúi, sambýlis-
maður hennar er Páll
Jóhann Kristinsson full-trúi
og eiga þau 2 börn. Einnig
á Sólveig dóttur með Sveini
Ómari Ólafssyni, f. 12.11.
1964. Hallveig á orðið 2
barnabarnabörn.
Systkini Hallveigar eru:
Einar Hjálmar, f. 24.5. 1907,
d. 20.10.1981. Sigrún, f. 24.5.
1907, gift Óskari Sigurjóni
Finnssyni, f. 20.5. 1901, d. 4.10. 1951.
Sólveig Sigríður, f. 15.2. 1912, gift
Sigurði Sigurðssyni f. 20.11. 1897, d.
27.2. 1981.
Arnheiður, f. 9.3. 1915, gift Jóni
Hallgrímssyni, f. 12.6. 1917, d. 19.7.1971.
Elís, f. 30.5. 1918, d. 1943.
Ætt
Foreldrar Hallveigar voru hjónin
Guðjón Gíslason, f. 9.1. 1879, d. 24.12.
1954, og Guðrún María Benedikts-dóttir,
f. 24.8. 1880, d. 1.4. 1971. Var hann
búfræðingur frá Ólafsdalsskóla. Þau
bjuggu í Ármótaseli og síðan í Heiðar-
seli. Voru þau síðustu ábúendur í
heiðinni, tluttu þaðan 1946.
Laugardagurinn 10. maí
90 ára____________________
Kristín Ketilsdóttir,
Skipholti 21, Reykjavik.
Siguröur ingimundarson,
Snartarstöðum 1, Norður-Þing.
85 ÁRA____________________
Ingunn Sveinsdóttir,
Skólastig 14a, Stykkishólmi.
80 ÁRA____________________
Hallveig Eiríksdóttir,
Garöabraut 16, Akranesi.
75 ÁRA
Guðfinna Sigurbjörnsdóttir,
Brávöllum 12, Egilsstöðum.
Kristín Guöjohnsen,
Meistaravöllum 35, Reykjavík.
70 ÁRA
aReynir Guðsteins-
son,
fyrrverandi skóla-
stjóri,
Lækjasmára 15,
Kópavogi.
Eiginkona hans er Helga Guð-
mundsdóttir. Þau eru að heim-
an á afmælisdaginn.
Daníel Arnfinnsson,
Engihjalla 17, Kópavogi.
Halldóra Kristjánsdóttir,
Tjarnarmýri 11, Seltjarnarnesi.
Karl K. Guðmundsson,
Sunnuvegi 4, Skagaströnd.
Þorleifur Jónsson,
Vallarbarði 3, Hafnarfirði.
60 ára____________________
■ Halldór Ásgeirs-
son,
® -* <«f| Dalbraut 7,
' . Hnífsdal.
w 1 Eiginkona hans er
Ester Ingadóttir. Þau taka á
móti gestum á efstu hæð
Stjórnsýsluhússins, gengiö inn
frá Pollgötu, í dag, laugardag,
kl. 18.00.
Bergþóra Óskarsdóttir,
Kleppsvegi 132, Reykjavík.
Haraldur Tyrfingsson,
Vesturbergi 115, Reykjavík.
Sesselja Edda Einarsdóttir,
Orrahólum 7, Reykjavík.
Sigurveig Jóna Einarsdóttir,
Rituhólum 1, Reykjavík.
Unnsteinn Guðmundsson,
Vatnsendabl. 265, Kópavogi.
Þorsteinn Sigmundsson,
Elliðahvammi, Kópavogi.
Þyri Sóley Jónsdóttir,
Lyngbergi 21, Þorlákshöfn.
50 ÁRA
Einar Jóhannes Einarsson,
"jjBjjT-] vélfræðingur og
W tæknimaöur hjá
níP" Ratsjárstofnun,
Breiövangi 38,
Eiginkona hans er Jóhanna
Jakobsdóttir leirlistakona. Þau
dvelja á Sardiníu á
afmælisdaginn.
Berta S. Sigurðardóttir,
Nökkvavogi 14, Reykjavík.
Bjarni Rafn Ingvason,
Nesvegi 61, Reykjavík.
Guöjón H. Hlöðversson,
Nýbýlavegi 100, Kópavogi.
Guðjón Rúnar Andrésson,
Sólheimum 18, Reykjavík.
Guölaugur R. Hilmarsson,
Hálsaseli 45, Reykjavík.
Helga ingólfsdóttir,
Grænumýri 13, Akureyri.
Jóhannes Þór Guðbjartsson,
Hátúni lób, Reykjavík.
Kristinn Jóhannesson,
Digranesheiði 2, Kópavogi.
Sigfús Sigurþórsson,
Berjahllð 3, Hafnarfirði.
Valdimar Karl Guðmundsson,
Slðuseli 1, Reykjavík.
40ÁRA
Tryggvi Gunnarsson,
Grænagarði, Flatey, Breiðafirði.
Tryggvi tekur á móti gestum I
Flatey, kosningakvöldið 10.5.
frá kl. 19.00. f tilefni dagsins
opnar afmælisbarnið vefsíðu tl
heiðurs sinni heimabyggð.
Slóðinn er www.flatey.is
Brynja S. Blomsterberg,
Álfheimum 40, Reykjavík.
Den Sawatdee,
Tjarnargötu 13, Vogum.
Guðrún Þorsteinsdóttir,
Þórólfsgötu 9, Borgarnesi.
Hafrún Sigurðardóttir,
Logafold 69, Reykjavík.
Hrönn Magnúsdóttir,
Þrastarlundi 11, Garðabæ.
Jóhannes H. Óskarsson,
Svlnhóli, Dalasýslu.
Marinó Traustason,
Kleppsvegi 28, Reykjavík.
Ragna Stefanía Óskarsdóttir,
Öldugranda 7, Reykjavík.
Ragnhildur Gunnarsdóttir,
Tunguvegi 76, Reykjavík.
Rannveig Lárusdóttir,
Vesturgötu 143, Akranesi.
Sunnudagurinn 11. maí
85 ÁRA____________________
Birna Björnsdóttir,
Hornbrekku, Ólafsfirði.
Jóhanna Sigurðardóttir,
Dalbraut 20, Reykjavík.
80 ÁRA____________________
Brigitte Ágústsson,
Lindasíðu 2, Akureyri.
Gyöa Þórarinsdóttir,
Hamraborg 14, Kópavogi.
Hansína Jónsdóttir,
Fellsmúla 11, Reykjavlk.
Lilja Kristjánsdóttir,
Sóleyjargötu 15, Reykjavlk.
Sigurður E. Jónasson,
Efstalandi, Eyjafirði.
75 ÁRA
Bjami Gíslason,
Hvassaleiti 157, Reykjavík.
Bjarnþór Karlsson,
Einimel 19, Reykjavík.
Hulda Þorgrímsdóttir,
Rauðhömrum 12, Reykjavik.
Svava Sveinsdóttir,
Hamrahlíð 25, Reykjavik.
Þorbjörn Marteinsson,
Frumskógum 10, Hveragerði.
70 ÁRA____________________
Ari Sigurösson,
Háaleiti 7a, Keflavik.
Arnar Herbertsson,
Þjórsárgötu 2, Reykjavík.
Sigurlín Jóna
Margrét
Sigurðardóttir,
Rjúpufelli 14,
Reykjavik. Eigin-
maður hennar er Hjörtur Ágúst
Magnússon.
Sverrir Frank
Kristinsson
frá Mosfelli,
Mosfellssveit,
Fýlshólum 5,
Reykjavík.
Kristín Eiríksdóttir,
Jöklaseli 25, Reykjavík.
Stefán Magnússon,
Akurgerði 4, Reykjavik.
50 ÁRA____________________
Árni Svavarsson,
Sæviðarsundi 25, Reykjavík.
Bergþóra Björk Búadóttir,
Huldugili 8, Akureyri.
Elín Sigríður Valdimarsdóttir,
Blásölum 14, Kópavogi.
Guðmundur Þorleifur Pálsson,
Breiövangi 4, Hafnarfirði.
Guðrún K. Guðmannsdóttir,
Hafraholti 46, Isafiröi.
Guörún M. Sigurbjörnsdóttir,
Skipholti 30, Reykjavík.
Hrafnhildur Hreinsdóttir,
Kársnesbraut 21b, Kópavogi.
Jón Stefánsson,
Holtsgötu 19, Reykjavík.
Kristín Guðbrandsdóttir,
Reykjanesvegi 52, Njarðvík.
Marleen Anna Meirlaen,
Vallargerði 3, Reyðarfirði.
Sigurður Grétar Bogason,
Sjávargötu 14, Bessastaðahr.
Sigurgeir Guöjónsson,
Hraunbæ 102h, Reykjavík.
Þuríður Sigurðardóttir,
Mímisvegi 8, Dalvík.
40 ÁRA
Birgir Theódórsson,
Kennarab. 2, Hvammstanga.
Birna Björg Berndsen,
Miklubraut 28, Reykjavík.
Elín Svava Elíasdóttir,
Frostafold 177, Reykjavík.
Magnús Þór Kristjánsson,
Ægisiðu 119, Reykjavík.
Matthías Sveinsson,
Suöurási 14, Reykjavík.
Maxwell Ditta,
Blöndubakka 18, Reykjavík.