Dagblaðið - 11.12.1978, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 1978.
„BLYGDUNARLAUST AROÐ-
URSRIT GEGN SANNINDUM
KRISTINNAR TRÚAR”
—segir dr. Einar Sigurb jörnsson, prófessor
við guðfræðideild Hl
kvæmt hljóta að berjast uns yfir lýkur
og annar hlutinn stendur með sigur í
hendi. Nú sem stendur ræður hluti
hinna ríku en ef hinir fátæku varpa frá
sér öllum hindurvitnum og taka þess í
stað að trúa á mátt sinn og megin
munu þeir sækja fram til sigurs og
stofna á rústum ójafnaðarsam-
félagsins riki jafnaðar og friðar og
einingar. í Ijósi þessara sanninda
hlýtur kennarinn Jesús að hverfa, en
hann túlkaði lífið sem gjöf úr hendi
skaparans.
2. Öll mein éru félagslegs eðlis og
þ.a.l. verður að grafast fyrir um
orsakir þeirra, en ekki að nema staðar
til að liðsinna meiddum og sjúkum.
„Ef þið veikist” segir félagi Jesús á bls.
22 „fáið þið enga hjálp.... Það er kom-
inn timi til að gera uppreisn.” 1 Ijósi
þessara sanninda hlýtur læknirinn
Jesús að hverfa, en hann nam einmitt
staðar til að lækna þá er leituðu
liðsinnis hans.
3. Eftir misheppnað fyrirtæki á
borð við byltingartilraun er timi til að
hugsa ráð sitt og skipuleggja að nýju.
Hvað um þann varð sem mistökin
framdi skiptir ekki máli. Málstaðurinn
einn skiptir máli. I Ijósi þessara
sanninda hlýtur hinn krossfesti Jesús
að hverfa, sem til síðustu stundar
breytti svo sem hann áður hafði kennt
og starfað.
Foreldrum
er vandi
á höndum
Foreldrum er ætið vandi á höndum,
er þeir standa frammi fyrir þvi að velja
bækur fyrir börn sín. Þeir foreldrar
sem vilja sannindi kristinnar trúar
feig, hafa fengið prýðilega hjálp til að
koma þeim vilja sinum til fram-
kvæmdar i bókinni Félagi Jesús og
njóta þeir til þess aðstoðar Norræna
þýðingarsjóðsins. Þeir foreldrar sem
aftur á móti vilja standa vörð um
sannindi kristinnar trúar, sem m.a. eru
túlkuð í alkunnum versum og sálm-
um, svo sem Vertu Guð faðir, faðir
minn, Heims um ból, Ó Jesús bróðir
bezti, Son Guðs ertu með sanni og Allt
eins og blómstrið eina, hljóta að
sneiða hjá þessari bók um lesningu
handa börnum sínum, en halda þess í
stað að þeim sögunni um Jesú eins og
Biblían geymir hana. Þeir kenna börn-
um sinum að treysta Jesú, biðja til
hans, og þeir halda dæmi Jesú að
börnunum sinum með því að lifa eftir
því sjálfir. Bróðirinn Jesús, sem var í
jötu lagður lágt, en ríkir þó á himnum
hátt, segir við okkur foreldra: Það er á
ykkar valdi að velja börnunum ykkar
lífsstefnu. Og ef við I alvöru viljum
hlusta á dómsorðið af vörum hans er
hætt við því að fleiri útgáfufyrirtæki
en Mál og menning og fleiri
fjölþjóðleg styrktarsamtök en Nor-
ræni þýðingarsjóðurinn að ótöldum
höfundum og þýðendum hreppi
harðan dóm,” sagði dr. Einar Sigur-
björnsson prófessor að lokum.
-GAJ,-
„Jesús og María Magdalena bjuggu um sig yst i náttbúðunum. Þar lögðust þau og
föðmuðust. Eftir dálitla stund kom Andrés og ónáðaði þau. Hann sagði:
— Það er komið fullt af fólki. Allir eru að spyrja eftir þér.
— Sendu það heim aftur! sagði Jesús. Við verðum að gera áætlun áður en við getum
tekið við fieira fólki. Og látið okkur nú I friði þangað til i fyrramálið.”
— Brot og mynd úr bókinni Félagi Jesús efftir Sven Wernström. Teikningin er eftir Mats Andersson.
Gartland
Hwer ertm
' itimiii!
Korneliu tæmdist arfur og
auðurinn gjörbreytti lifi hennar.
Hiin varð ástfangin af hertogan-
um af Roehampton, hinum töfr-
andi Drogo, eftirsóttasta pipar-
sveini Lundúna og þau ganga i
hjónaband. Vonbrigði hennar
verða mikil er hún kemst að þvi,
að hann hefur aðeins . kvænst
henni til að geta hindrtmarlitið
haldið við hina fögru frænku
hennar, sem hún býr hjá. A
brúðkaupsferð þeirra i Paris
verður Drogo raunverulega ást-
fanginn, — en i hverri? Er það
hin leyndardómsfulla og töfr-
andi Desirée sem hann hefur
fallið fyrir, eða hefur hinni hug-
rökku Korneliu tekist að heilla
hann?
ÍI"5W
IM
Var um siys að ræða, — eða var
það morðtilraun? Aylward var
minnislaus eftir slysið, mundi
jafnvel ekki eftir unnustu sinni.
En er Constant Smith heim-
sótti hann á sjúkrahúsið,
vaknaði hann á ný til lifsins...
Þetta er ástarsaga af gamia
taginu eins og þær gerðust best-
ar hér áður fyrr. Og svo sannar-
iega tekst Theresu Charles að'
gera atburði og atvik sem tengj-
ast rauðhærðu hjúkrunarkon-
unni Constant Smith, æsileg og
spennandi. Þessi bók er ein
allra skemmtilegasta ástarsag-
an sem Theresa Charles hefur
skrifað og eru þær þó margar
æsilega spennandi.
Rauðu ástarsögumar
Nfergö SoáetMtm
3RÚÐURIN UNGA
Karlotta von
Berg var korn-
ung þegar hún
giftist Karli
Henrik Ancar-
berg greifa.
sem var mun
eldri en hún.
Hjónabandið
v a r ö þe i m
báöum örlaga-
rlkt, en þó
einkum ham-
ingjusnautt
fyrir greifa-
frúna ungu.
Hún hrekst
næstum ósjálf-
rátt í faöminn á
ungum fiski-
manni,
óreyndum I ástum. en engu aÖ sföur
löngunarfullum og lifsþyrstum. I kofa fiski-
mannsins á Karlotta sfnar mestu unaös- og
sælustundir. stolnar stundir og örlagarlkar.
Greifafrúin unga veröur barnshafandi og
framundan er þrjóskufull barátta hennar
fyrir framtfö þessa ástarbarns, sem vakiö
hefur llfslöngun hennar og ný lffsviöhorf. —
Brúöurin unga er ein ljúfasta Hellubæjarsag-
an sem Margit Söderholm hefur skrifaÖ.
6LSE-MARIENOHR
ILörTINS
Morten starfar
sem sendiboöi
andspyrnu-
hreyfingarinn-
ar og er I einni
slikri ferö þeg-
ar hann hittir
Irenu, þar sem
hún er fársjúk
og févana á
flótta. Hann
kemur henni til
hjálpar, hættan
tengir þau nán-
um böndum og
þau upplifa
hina einu sönnu
ást,
— þar til grunsemdir vakna um aö hún sé
stúlkan sem hreyfingin leitar og telur valda
aö dauöa Fannyar, systur Mortens. Æösta-
ráöiö dæmir trenu til dauöa f fjarveru henn-
ar. — og sennilega yröi Morten faliö aö fram-
kvæma aftökuna og hefna þannig systur
sinnar. Ast Mortens heldur aftur af honum,
hann vill sanpa sakleysi trenu og frestar aö
taka ákvöröun. En tfminn liöur og félagar
hans leita hennar ákaft, hringurinn þrengist
og banvæn hættan nálgast...
SIGGE STARK
Ekki er öll fegurc
f andliti fólgin
Astriöur Berk
var sérstæö
s t ú I k a o g
óvenjulega
sjálfstæö I orö-
um og athöfn-
um. Hún bauö
svo sannarlega
örlögunum
birginn og þaö
kæmi brátt I
ljós hvort henni
heppnaöist aö
endurreisa bú-
s k a p i n n á
Steinsvatni og
halda þvf starfi
áfram
sem stúlkurnar f Karlhataraklúbbnum höföu
svo bjartsýnar hafiö. En hvernig átti hún aö
gera sér grein fyrir aö hún, sem engum tróö
um tær og öllum vildi vel, ætti svarinn og-
hættulegan óvin? Og þessi óvinur geröi henni
svo sannarlega UfiÖ leitt! Astrlöur bognaöi aö
vfsu en hún brast ekki, — ekki fyrr en ástin
kom inn I lif hennar. Og þar féll siöasta vigi
hins rómaöa Karlhataraklúbbs, — ástin haföi
sigraö þær allar.