Dagblaðið - 10.11.1980, Síða 1
Hörö andstaða ístjóm Flugleiða gegn skilyrðum ríkisins við aðstoð:
Iscargo vill kaupa hæð í
skrífstofuhyggingunni
—ekki iéð máls á sölu en leiga talin koma tilgreina — sjá baksíðu
160 manns leituðu rjúpnaskyttu í Esjunni:
„Hundurinn hélt á mér hita”
— sjá
bls.6
LET UFK> A VEGKANTI
VIÐ BILAÐAN BÍL SINN
—strætisvagn lenti á tveimur kyrrstæðum bflum skammt frá Rauðhólum
Maður á 23. aldursári lét lífið í
umferðarslysi á Suðurlandsvegi í
gærkvöldi. Var lögreglunni tilkynnt
um slysið kl. 20.18 en strætisvagn
hafði þá ekið á tvo kyrrstæða bíla
austan vegar að Almannadal,
skammt frá Rauðhólum. Bill hins
látna hafði drepiö á sér og fór ekki í
gang. Stóð hinn látni við bil sinn er
strætisvagninn bar að.
Hinn látni var á leið til Reykja-
víkur og hafði stöðvað bil sem var á
sömu leið. Nam sá staðar fyrir
framan bilaða bílinn og voru öku-
mennimir að ræðast við um hvernig
koma mættí hinum bilaða bíl í gang.
Tvær stúlkur voru í bílunum, sin í
hvorum bíl.
Strætisvagninn kom austan að og
telur vagnstjórinn sig hafa verið á um
50 km hraða. Var hann með lága ljós-
geislann vegna mótkomandi um-
ferðar. Farþegi hafði komið tíl hans
og beðið um skiptimiða og hafði
hann kveikt ljós við sætí ökumanns.
Sá hann ekki kyrrstæðu bilana fyrr
en í sama mund og vagninn skall á
þeim.
Aftari bíUinn (sá bUaði) hentíst út
af veginum og ökumaöur hans varð
fyrir strætisvagninum. Hinn öku-
maðurinn lenti lítillega utan í vagnin-
um, sem síðar lenti á bíl hans.
Hið slasaöa fólk var flutt í slysa-
deild og er þangað kom var öku-
maður bilaða bílsins látínn. Ekki er
unnt að skýra frá nafni hans að svo
stöddu.
-A.St.
AnnállFlug-
leiðamálsins
sjábls.34og35
Bókhaldsdreiða
á Vestfjörðum:
Guðmundur Oddsson læknir og
hundurinn Vaskur í faðmi fjölskyld-
unnar snemma i gærmorgun, þá
nýkomnir niður af fjallinu.
DB-mynd: S.
stjórinnferfrá
— sjábls.5
Erkomið að
uppgjörinu
íPóllandi?
— sjáerl.fréttir
ábls. lOogll
„Éghlýtað
getaþetta
einsogaðrir”
— hugsaði ég og lét slag
standa—rættvið
Elsu Kristjánsdóttur,
oddvita í Sandgerði,
ábls.8
Skattbyrðin:
Fólk fyllist
örvæntingu
— ogleggstírúmið
— sjáRaddirlesenda
ábls.2og3
BIAÐIÐ
40siburídag