Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1907, Blaðsíða 4
6
III. Úr Akureyrarkaupstað.
1. Stefán Stefánsson, kennari.
2. Ingimar Sigurðsson, búfræðingur.
IV. Úr Suður-Pingeyjarsýslu.
1. Hallgrfmur Þorbergsson, búfræðingur á Einarsstöðum.
Auk formanns og nefndra fulltrúa voru ráðanautar
Búnaðarfélags Islands Ouðjón Guðmundsson og Sig-
urður Sigurðsson og nokkurir félagsmenn úr Húna-
vatnssýslu.
2. Formaður félagsins var valinn til fundarstjóra og Oísli
Isleifsson sýslumaður til varafundarstjóra. Skrifarar fund-
arins voru kjörnir Sigurður búfr. Pálmason og Sig-
urður kennari Sigurðsson.
3. Formaður félagsins mintist á stofnun félagsins, tilgang
þess og starfsemi um undanfarin ár og ástæður þess
og horfur á yfirstandandi tíma. Bar ræða hans meðal
annars vott um, að félagsmönnum hefir fjölgað ár
frá ári, þrátt fyrir það, þó brytt hafi á sundrung í
sumum deildum félagsins. Hafa pantanir félagsins
orðið mönnum óánægjuefni á sumum stöðum, jafnvel
þó að sú starfsemi hafi kostað félagið mikið fé og
fyrirhöfn. Óskaði formaður eftir, að fundarmenn kæmu
fram með sem flestar athugasemdir og aðfinningar
um starfsemi félagsins, er gæti orðið til leiðbeiningar
framvegis. Stakk hann upp á, að nefnd yrði kosin til
þess að gera tillögur um, hvernig pöntunarstarfsem-
inni yrði bezt fyrir komið framvegis.
Var samþykt að kjósa 5 manna nefnd og hlutu kosn-
ingu:
Oísli Isleifsson, sýslumaður.
Ingimar Sigurðsson, búfræðingur.
Sigurður Sigurðsson, kennari.
Sigurður Björnsson, búfræðingur.
Magnús Þorláksson, bóndi.