Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1907, Page 5
7
4. Fundarstjóri lagði fram aðalreikning félagsins fyrir ár-
ið 1906 ásamt athugasemdum endurskoðenda og svör-
fL um reikningshaldara. Var kosin nefnd til að yfirfara
reikningana og koma fram með tiliögur til úrskurðar.
Kosnir voru:
Árni Jónsson,
Björn Jónsson, og
Jónatan J. Líndal.
5. Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir næsta ár og kosin
nefnd til að athuga hana. Hlutu kosningu:
Síra Eyjólfur Kolbeinsson,
Magnús Jónsson og
Sigurður Pálmason.
6. Formaður las upp bréf frá stórkaupmanni Moritz
► Fraenckel í Oauíaborg. Bréfið var hlýleg þakklætis-
kveðja fyrir pað, að félagið hafði gert hann að heið-
ursfélaga.
Formaður gat pess jafnframt, að nefndur stórkaup-
maður hefði enn á ný sent félaginu 300 krónur að
gjöf. Fól fundurinn formanni að tjá honum þakklæti
sitt fyrir gjöfina.
7. Fundarstjóri mintist á þá breytingu, sem orðin væri
á lögum félagsins, að æfitillagið væri fært niður í 20
krónur. Gat hann þess, að síðan hefði félagið fengið
8 æfifélaga. Var óskað eftir, að þeir, sem vildu ger-
ast æfifélagar, skrifuðu nöfn sín á lista, er fram var
lagður. Rituðu 16 menn nöfn sín á hann á fundinum.
8. Guðmundur bóndi Guðnmndsson á Torfalæk flutti
fundinum kveðju Sigurðar Sigurðssonar skólastjóra
„ og fór nokkrum vel völdum orðum um störf hans,
einkum í þarfir R. N., og þýðingu þeirra fyrir land
og lýð. Formaður þakkaði ræðumanni.
9. Ingimar Sigurðsson búfræðingur flutti fróðlegan fyrir-
lestur um búnað og tilraunastarfsemi í Norðurbotnum
í Svíþjóð.