Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1907, Page 63
65
það á ný. Síðari part sumars getur það vanalega eigi náð
miklum þrifum, því þá fara kálblöðin að hylja jarðveginn.
Vaxtartimi. Hin ýmsu atbrigði af turnips þarínast mismun-
andi langs vaxtartíma. Hinar hvítu tegundir vaxa fljótast.
Með því að sumarið er hér vanalega mjög stutt, er áríðandi
að fræinu sé sáð sem fyrst, að kostur er á, en það getur
verið allbreytilegt, í maí eða júní. Kulda þola rófur flestum
jarðarávöxtum betur, og geta þær því staðið úti, þar til
snjór og frost er væntanlegt. Hin fjögur síðastliðin ár hefir
Ræktunarfélagið gert allítarlegar tilraunir með fóðurrófna-rækt.
Tvö síðustu árin hafa, sem kunnugt er, verið mjög köld. Arið
1904 var aftur eitt hið bezta ár, sem komið hefir um langan
tíma, og varð því mjög góð uppskera það ár. Að meðal-
tali hefir vaxtartími rófnanna orðið í þessi 4 ár 110 dagar.
Tilraunirnar eru allar gerðar á Norðurlandi. A Suðurlandi
getur vaxtartíminn orðið nokkuru lengri. Eftir því sem séð
verður af skýrslum tilraunastöðvarinnar í Reykjavík hefir hann
verið að meðalatali um 120 dagar. Erlendis geta rófur haft
nokkuru lengri vaxtartíma nema í norðlægum löndum.
Uppskera. Hve mikla eftirtekju hægt er að fá af fóður-
rófum, er ekki unt að segja með vissu. Hún getur verið
all breytileg. Fer það aðallega eftir jarðvegi, áburði, tíðar-
fari og hirðingu. Eg set hér skýrslu, sem sýnir, hver upp-
skera hefir fengist að meðaltali af dagsláttu í 4 síðastliðin
ár (1904—7) af nokkurum fóðurrófna atbrigðum sem Rækt-
unarfélag Norðurlands hefir látið gera tilraunir með. Tilraun-
ir þessar hafa verið gerðar á Húsavík, Tilraunastöðinni á
Akureyri, Hólum í Hjaltadal, Sauðárkrók, Æsustöðum í Langa-
dal, Blönduós og Torfustöðum í Húnavatnssýslu. Flestar til-
raunirnar gerðar á nýyrktu landi, þar sem maður getur vart
vænt eins mikillar uppskeru og þar, sem land er komið í
rækt. Þegar svo þar við bætist, að veðrátta var köld síðustu
árin, og þetta eru fyrstu tilraunirnar, er ástæða til að ætla,
að þetta meðaltal sé nokkuru Iægra, en reynslan mundi sýna,
að hægt væri að fá, þegar meiri þekking og reynsla væri
fengin hér um ræktun fóðurrófna. Tölur þessar sýna meðal-
uppskeru á árunum 1904—7 reiknað á vallardagsláttu.
5