Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1946, Page 61
63
færum og útsæði og til að launa dönskum vinnumanni í 2J/2
ár.9) Ekki hef ég nokkurs staðar séð þess getið, hver árangur
varð af tilraunum Björns sýslumanns, nema ef Niels Horre-
bow á við þær, er hann í skýrslu sinni talar um misheppnað-
ar kornyrkjutilraunir í Skagafirði 1751.
Árið 1752 gerir Skúli Magnússon hinar nafnkenndu til-
lögur sínar um viðreisn íslenzkra atvinnuvega til lands og
sjávar. Verða þær ekki raktar hér að öðru en við kemur ak-
uryrkju, en í því efni lagði hann til, að 15 danskar eða norsk-
ar bændafjölskyldur yrðu sendar hingað, til að kenna lands-
mönnum akuryrkju. Varð það að ráði, og 1752 komu hingað
14 bændur og var þeim dreift um landið, sem hér segir: 4
fóru í Gullbringu- og Kjósarsýslu, 3 í Borgarfjarðar- og Mýra-
sýslu, 2 í Húnavatnssýslu og 1 í Árnes-, Rangárvalla-, Eyja-
fjarðar, Dala- og Snæfellsnessýslu: Settust þeir að á heimilum
embættismanna og áttu að kenna út frá sér.
Áliðið var vors, er bændur þessir komu til landsins, samt
var korni sáð á nokkrum stöðum það sumar. Lætur Skúli vel
yfir því í skýrslu, þótt engan beri það ávöxt, sem hann taldi
eðlilegt, vegna þess hve seint var sáð. Telur hann að íslend-
ingar læri af þeim að plægja landið og gera jurtagarða.10)
Næsta ár, 1754, er Skúli enn hinn vonbezti, kemst hann
svo að orði í skýrslu sinni um árið 1753: „Vegna þess hve
sumarið var óvenjulega kalt og votviðrasamt, heppnaðist
kornyrkjan ekki alls staðar, þó mun bygg, hör og hampur
hafa náð fullum þroska, og gera má ráð fyrir, að það muni
heppnast vel í mildari sumrum.“ Stingur hann því næst upp
á, að stjórnin hlutist til um, að verzlunarfélagið flytji nægi-
legt, gott sáðkorn til tiltekinna hafna næstu tvö árin, enn-
fremur að konungur skuli, samkvæmt samþykktum íslenzka
verksmiðjufélagsins, fyrirskipa, að hver bóndi, sem býr á 10
hundr. jörð skuli hið fyrsta, og í síðasta lagi fyrir árslok 1756,
hafa girt, plægt og sáð korni í blett, sem sé að minnsta kosti
45 álnir í kvaðrat. Þeir, sem stærra hafa jarðnæði, skuli
rækta akur að tiltölu. Ennfremur skuli bændur hvattir til að