Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1946, Síða 67
69
öldina afsanni ekki möguleika kornyrkjunnar, eins og þar
liafi verið í pottinn búið. Hins vegar færir hann til dæmi úr
fornsögunum um akuryrkju og rekur tilraunir Vísa-Gísla,
sem árlega hafi fengið tunnu korns úr ökrum sínum, og um
þær mundir, sem hann skrifi rit sitt hafi Björn lyfsali í Nesi
fengið fullþroska bygg og hafra. Um liið stutta sumar, vor-
og hausthret og liina norðlægu legu landsins, bendir hann á,
að víða í Noregi og Svíþjóð sé ekki hægt að sá korni fyrr að
vorinu en hér. Áfelli á sumrum séu þar tíð, og frostnætur
byrji þar jafnsnemma á haustin og hér. Hann heldur því
lram, að akuryrkja sé löndunum ábatameiri en verksmiðjur,
og sé lnin stunduð víða um lönd, þótt hún sé misfellasöm.
Hann bendir og á, að þótt akuryrkjan verði ekki höfuðíþrótt
íslenzkra bænda, sé hún sarnt nauðsynlegur stuðningur við
aðrar greinar landbúnaðarins, og að akrarnir þurfi ekki að
vera mjög stórir til þess að hagsbætur séu að þeim. Loks eru
ýmsar leiðbeiningar um kornyrkjuna sjálfa. Er ritgerðin öll
samin af hinni mestu rökvísi og lærdómi. Er hún merkileg
fyrir þá sök, að höf. var hinn gagnmenntaðasti rnaður lands-
ins um þær mundir og í hópi hinna fremstu gáfumanna. Er
merkilegt að sjá, hversu skoðanir hans falla saman við skoð-
anir liinna víðsýnustu búnaðarfrömuða nútímans.
Árið 1711 gaf Þórður Þóroddsson Thoroddi út rit um ak-
uryrkju á íslandi. Er það leiðbeining um akuryrkju, jafn-
framt því sem þar er inngangur um jarðyrkjufræði. Telur
höf. líklegt, að rækta megi korn hér á landi með góðum
árangri. Þórður hafði þá um hríð numið náttúrufræði og bú-
fræði við háskólann í Höfn og hefur vafalítið verið lærðastur
íslendinga í þeim efnum. Stundaði hann síðan framhalds-
nám í Svíþjóð í fræðum þessum hin næstu árin.
Það er augljóst að ríkisstjórnin hefur á þessum árum látið
sér allannt um kornyrkjutilraunir á íslandi. Kom það fram í
úthlutun útsæðis og smástyrkjum, enda þótt hún ekki vildi
styrkja stórframkvæmdir. Þótt þetta væri vafalaust í góðri
meiningu gert, er lítill vafi á, að einmitt þessi aðferð hefur