Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1917, Blaðsíða 35
37
og leiðbeiningastarfsemi, mæla og meta störf búnað-
arfjelaganna; hafa eftirlit með lögulegri tilrauna-
og kynbótastarfsemi þeirra og einstakra manna; hafa
á hendi útvegun sáðtegunda, áburðar, verkvjela og
verkfæra fyrir búnaðarfjelögin og gefa lciðbeining-
ar um notkun þeirra; veita búnaðarfjelögunum styrk
og þeim og einstökum mönnum verðlaun fyrir unn-
in störf; annast, með mælingum og áætlunum, und-
irbúning stórra fyrirtækja fyrir búnaðarfjelögin og
útvega þeim jafnvel verkfæri, eða vjelar, og vinnu-
kraft til jarðabótastarfa.
Samböndin gefa út ársrit, eða senda landsbúnað-
arfjelaginu árlega skýrslur og reikninga; þau láta
því i tje allar þær upplýsingar, er það kann að óska,
og þeim ber að veita, og beita áhrifum sínum, bæði
gagnvart hreppabúnaðarfjelögunum og landsbúnað-
arfjelaginu, um öll þau mál, er til þeirra taka, eða
snerta starfssvið þeirra.
Landsbúnaðarfjelagið — Búnaðarfjelag íslands —
myndast af fjórðungsbúnaðarsamböndunuin, sem
eru deildir í því — með hreppabúnaðarfjelögin sem
undirdeildir og svo einstökum árs- og æfifjelögum.
Verður það þannig sambandsfjelag íslenskra búnað-
arfjelaga.
Búnaðarfjelag íslands heldur búnaðarþing annað
hvort ár, eins og nú er. Á þvi eiga sæti 12 fulltrúar,
er fjórðungsbúnaðarsamböndin kjósa, 2 hvert, á að-
alfundum sínum, en formenn þeirra eru sjálfkjörnir
fulltrúar.
Búnaðarþing hefur til umráða alt það fje, er al-
þingi veitir til landbúnaðarins. Fjárveitingar þessar