Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1917, Blaðsíða 55
57
1500 kg. útheys á kr. 3,00 pr. 100 kg. = kr. 45,00
2500 — votheys--------- 1,00 — 100 — -■ — 25,00
500 — kraftfóðurs-----16,50 — 100 — = — 82,00
Samtals kr. 152,50
pess skal getið, að verðið á kraftfóðri er reiknað í
geymsluhúsi en ekki tekið tillit til landflutnings,
vegna þess, að hann er svo afarólíkur og ilt að fá
nokkra meðaltölu fyrir hann, sem vit er í. Með þess-
um reikningi ætti töðuhesturinn að kosta nál. kr.
5,25. Jeg ætla ekki að dæma um, hvort þetta verður
hátt eða lágt. En jeg vil geta þess, að með þessari
fóðurblöndu sparast heyöflun á 6—7 hestum af heyi,
og það ætti að vinnast nálega hálfsmánaðar vaxtar-
tími handa lömbunum. Að auki er svo hagnaðurinn
af tryggingunni.
Jeg skal nú ekki þreyta menn lengur með þessum
lestri. En áður en jeg hætti, vil jeg biðja menn að
athuga vel og hugsa eftir hvílíkt alvörumál ásetnings-
málið er, sjeð frá öllum hliðum, og að mönnum ber
skylda til þess að athuga allar leiðir, sem geta leitt
til umbóta á því.
Jeg get nú, því miður, ekki hælt mjer af því að hafa
fundið upp púðrið, og ekki sjeð fyrir öllum mis-
fellum, en jeg þykist hafa bent hjer á nýja leið, sem
sje þess verð að vera athuguð. Og mjer finst það
vel við eigandi, að hreyfa nýmælum líkum þessum
á þessari samkomu. Og jeg get vænst þess, að Bún-
aðarsambandið beiti sjer fyrir athugunum og tilraun-
um, sem upplýsa þetta. Búnaðarsambandið á að
hreyfa meiri háttar nýmælum og styðja með ráðum