Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1917, Blaðsíða 69
Til athugnnar.
Allar umsóknir til sambandsins eiga að vera komn-
ar til formanns stjórnarinnar fyrir lok janúarmán.
ár hvert. Slíkar umsóknir geta verið m. a.:
1. Um bændanámsskeið. Sambandssvæðinu er
skift í 4 námsskeiðasvæði: 1. Svæðið norðan Smjör-
vatnsheiðar. 2. Fljótsdalshjerað, með aðliggjandi
fjörðum. — petta svæði sækir námsskeið Eiðaskól-
ans.-----3. Svæðið Fáskrúðsfjörður að Lónsheiði og
4. Austur-Skaftafellssýsla. — Til þess að námsskeið
komist á, þarf svofeldan undirbúning:
Formenn búnaðarf jelaga á svæðunum 1., 3. og 4.
grenslast eftir því, hver í sínu nágrenni, hvort áhugi
er á því, að námsskeið komist á. þetta gera þeir að
haustinu, eða snemma vetrar það ár, sem námsskeið-
ið ber upp á þeirra svæði (þriðja hvert ár). Sje náms-
skeiðs óskað, útvega þeir húsnæði, með hita og lýs-
ingu, á þeim stað á svæðinu, sem stjórn Sambandsins
hefir samþykt annaðhvort í eitt skifti fyrir öll, eða
það og það árið, enda tryggja sjer jafnframt að kostn-
aður við þetta verði greiddur af hlutaðeigandi hrepp-
um, eða annarsstaðar frá. Auk þess útvega þeir innan