Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1917, Blaðsíða 37
39
er gilda, eða gildandi verða, fyrir hvern sjóð, og hefir
Búnaðarfjelag íslands á höndum stjórn þessa sam-
steypusjóðs.
Búnaðarfjelagið vinnur að því að auka búfræðis-
þekkinguna í landinu með því að gefa út búfræðisleg
rit, styrkja efnilega menn til búnaðarnáms erlendis,
með því að safna búnaðarskýrslum og innlcndri bún-
aðarreynslu, með tilraunum o. s. frv.
}?að er fulltrúi landbúnaðarins og bændastjettar-
innar inn á við, gagnvart öðrum stjettum og stjórn-
arvöldunum, og út á við gagnvart öðrum þjóðum,
að því leyti sem það heyrir ekki undir stjórnarvöld
landsins.
Með því skipulagi, sem hjer er lagt til, verður
Búnaðarfjelag íslands sambandsfjelag hreppabúnað-
arfjelaganna með fjórðungsbúnaðarsamböndin, sem
sjálfstæðan sambands- og millilið, og er þess vænst,
að löggjöfin stuðli að því, að þetta skipulag geti kom-
ist á búnaðarfjelagsskap landsins og búnaðarsam-
vinnu, með því að nema úr lögum alt það er kemur
í bága við þetta skipulag, og setja önnur lagaákvæði,
er samrýmast því og styrkja það.
Magnús Bl. Jónsson. M. Stefánsson.
pórarinn Benediktsson.