Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1994, Blaðsíða 19
FINNBOGI GUÐMUNDSSON
Þjóðarbókhlaða, aðdragandi
og framkvæmdir
Hinn 11. september 1956 skipaði dr. Gylfi Þ. Gíslason mennta-
málaráðherra fimm manna nefnd til þess að athuga, „hvort
fjárhagslega og skipulagslega muni eigi hagkvæmt að sameina
Háskólabókasafnið og Landsbókasafn að einhverju eða öllu leyti,
þannig að Háskólabókasafn yrði framvegis handbókasafn fyrir
háskólann, en Landsbókasafn tæki við öðrum hlutverkum þess“. í
nefndinni áttu sæti Þorkell Jóhannesson prófessor formaður,
Birgir Thorlacius ráðuneytisstjóri, Bjarni Vilhjálmsson cand.
mag., Björn Sigfússon háskólabókavörður og Finnur Sigmunds-
son landsbókavörður.
Nefndarformaður lýsti þegar í upphafi „þeirri skoðun sinni, að
hann teldi skipulagslega óheppilegt og fjárhagslega óhagstætt, að
hér væri haldið uppi tveimur vísindalegum bókasöfnum, er hefðu,
svo sem verið hefur til þessa, litla sem enga samvinnu sín á milli“,
og ennfremur, að ekki væri „unnt að leysa bókaþörf Háskólans í
heild sinni með sameiningu við Landsbókasafnið á viðeigandi hátt
og til frambúðar með öðru móti en því að reisa nýtt safnhús fyrir
Landsbókasafnið í næsta nágrenni við háskólabygginguna. Að
þessu bæri því að stefna og flýta þessu máli sem allra mest“, eins og
segir í áliti bókasafnsnefndarinnar, dags. 11. janúar 1957.
Þegar um það var rætt, að finna hentugan stað fyrir nýtt safnhús
í nágrenni háskólans, studdist nefndin að nokkru við athuganir
nefndar, er Bjarni Benediktsson hafði skipað í menntamálaráð-
herratíð sinni til að kanna, hversu dýrmætustu bækur og handrit
Landsbókasafns yrðu tryggilega geymd, og taldi sú nefnd, að
heppilegast mundi að gera það í sambandi við nýja safnhúsbygg-
ingu.
í framhaldi af tillögum bókasafnsnefndarinnar var að forgöngu
menntamálaráðherra samþykkt á Alþingi 29. maí 1957 svohljóð-
andi þingsályktunartillaga: