Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1994, Blaðsíða 154
154
LANDSBOKASAFNIÐ 1993
STARFSLIÐ Veitt var á árinu í tvígang fé úr þjóðar-
bókhlöðusjóði til bókhlöðusafnanna til
eflingar starfsliði þeirra vegna hinna miklu sameiningarverkefna.
Landsbókasafn fékk í sinn hlut á árinu 8,6 m.kr., auk þess sem 2,6
m.kr. af þess háttar fé var fært á milli ára.
Umrætt fé gerði safninu fært að ráða áfram það fólk, er komið
var áður til starfa fyrir bókhlöðufé, og auka starf sumra þeirra eða
bæta við enn nýju fólki. Þannig var Gunnhildur Loftsdóttir bóka-
safnsfræðingur ráðin í fullt starf frá 1.9. og Orn Hrafnkelsson, er
lauk B.A. prófi í sagnfræði í október, í % starf frá 1.9.
Þá var Berglind Gunnarsdóttir B.A. ráðin í % starf frá 18.10. og
Arnþrúður Sigurðardóttir bókasafnsfræðingur, er var fyrir í x/2 starfi,
í fullt starf frá 22.11.
Emilía Sigmarsdóttir B.A. var frá svipuðum tíma eða 21.11. ráðin í
% starf.
Sigurður Þór Baldvinsson, er var í l/2 starfi og lauk B.A. prófi í
bókasafns- og upplýsingafræði í október, var ráðinn í fullt starf frá
15.10.
Sigrún Pálsdóttir B.A. lét af starfi samkvæmt eigin ósk 1. október,
og hið sama gerði Sigurður Kjartansson, er vann um sumarið í fullu
starfi við bókaflutninga.
Kári Petersen B.A., er var samkvæmt eigin ósk frá 60% starfi ágúst
og september, var ráðinn í % starf 30.9. og Jóhann Helgason í x/2
starf frá 24.9.
Guðbjörg María Benediktsdóttir, er gegnt hafði ritarastarfi í safn-
inu allt frá árinu 1953, lét fýrir aldurs sakir af því starfi í árslok 1992,
en var ráðin í % ritarastarf í tímavinnu frá ársbyrjun 1993.
NEFNDASTÖRF í síðustu Árbók var greint frá þátttöku
starfsmanna í ýmsum nefndastörfum, og
hafa þau störf haldið áfram á þessu ári og um sumt aukizt, ekki sízt í
starfshópum til tillðgugerðar um innri tilhögun í hinu nýja Þjóð-
bókasafni, einkum að því er lýtur að húsbúnaði, tölvuvinnslu o.fl.
Tóku starfsmenn flestra deilda safnsins virkan þátt í þessu hóp-
starfi í samvinnu við starfsmenn Háskólabókasafns, og var það mjög
til að hrista saman starfslið beggja safnanna.
RAÐSTEFNUR
Nanna Bjarnadóttir deildarstjóri þjóð-
deildar sótti ráðstefnu, er Nasjonal-