Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1994, Blaðsíða 27
ÞJÓÐARBÓKHLAÐA
27
hún þá ekki að tilætluðum notum fyrir Háskóla íslands, hvorki að
því er varðar greiðan aðgang að bókakosti og lestrarrými né
aðstöðu til kennslu í bókasafnsfræðum.
Auk þess þarf Háskóli Islands væntanlega á hluta af vallarsvæð-
inu að halda innan fárra ára vegna bílastæða og fjölgunar háskóla-
bygginga vestan Suðurgötu.“
Þetta tilkynnist yður hér með.“
Byggingarnefnd Þjóðarbókhlöðu fjallaði um þessi mál á fundi
sínum 25. september 1977 og gerði þar svipaða ályktun og fram
kemur í bréfi rektors.
Utboðs- og verklýsing vegna jarðvinnu o.fl. lá nú fyrir og þess
þar að vænta, að þessi fyrsti áfangi byggingarframkvæmdanna
yrði boðinn út fyrir áramót.
Helzta breyting, sem orðin var á upphaflegri áætlun, var sú, að
ákveðið var að hafa kjallara undir öllu húsinu og vinna þannig
mikilsvert rými. Mun síðar, eða eftir að framkvæmdir hófust, var
ákveðið, að reist yrði sérstakt forhýsi að sunnanverðu og gengið
inn um það, en áður var ætlunin, að aðkoman yrði um tröppur
utan húss. Vegna vetrarveðráttunnar var talið heppilegt, að menn
kæmust sem fyrst í var, en mjög hvasst er oft á Melunum, eins og
menn þekkja.
Geir Hallgrímsson forsætisráðherra komst vorið 1977 m.a. svo
að orði, er hann skýrði Alþingi frá fundi, er hann og Vilhjálmur
Hjálmarsson menntamálaráðherra höfðu átt þá fyrir nokkru með
byggingarnefnd Þjóðarbókhlöðu: „Fundurinn snerist um fram-
kvæmdir við byggingu Þjóðarbókhlöðu. Þar lögðum við mennta-
málaráðherra áherzlu á, að öllum undirbúningi að byggingu
bókhlöðunnar yrði haldið áfram af fullum krafti, en hann hefur
nú staðið í allmörg ár eins og eðlilegt er um svo mikla framkvæmd.
Ríkisstjórnin er þeirrar skoðunar, að á grundvelli þess einhugar,
sem ríkt hefur um byggingu Þjóðarbókhlöðu hér á Alþingi, sé
einsýnt, að þingið muni tryggja nægilegt fjármagn, til þess að
hagkvæmasta framkvæmdahraða verði haldið.“
Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra tók fyrstu
skóflustungu laugardaginn 28. janúar 1978, og hóf þá fyrirtækið
Völur h/f að grafa fyrir bókhlöðunni. Var þeim áfanga lokið í maí.
í júnímánuði tók nýr verktaki, Lárus Einarsson, til við 2. áfanga,
að steypa sökkla hússins, stokka í grunni og gólfplötu kjallara. En
þeim áfanga lauk í september.
Framkvæmdir urðu engar á árinu 1979, en kjallari hússins var