Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1994, Blaðsíða 152
152
LANDSBOKASAFNIÐ 1993
Bókinni: Ættartölur Sigfúsar Jónssonar prests á Mælifelli o.fl., útfar-
arræða Jóhannesar Halldórssonar cand. theol., orðasafn (sjaldgæfar
merkingar) m.h. Sigurðar Guðmundssonar skólameistara, myndir af
torfbæjum í Eyjafirði o.fl.
Þessir afhentu handrit, án þess að þeirra verði getið nánara:
Arni Helgason, Stykkishólmi. - Bára Halldórsdóttir, Garðabæ. -
Bjarni Olafsson, Kópavogi. - Bryndís Schram framkvæmdastjóri,
Reykjavík. - Daníel Kristinsson, Reykjavík. - Friðrik Þórðarson
háskólakennari, Osló. - Guðjón Friðriksson sagnfræðingur, Reykja-
vík. - Guðrún Benediktsdóttir frá Efra-Núpi. - Halldór Jónsson fV.
safnvörður, Reykjavík. - Dr. Haraldur Sigurðsson, Reykjavík. -
Hreggviður Stefánsson byggingartæknifræðingur, Reykjavík. - Jór-
unn Ragna Blandon, Reykjavík. - Sigfús Gunnarsson, Reykjavík. -
Sigfús P. Isaksson, Reykjavík. - Torfi Jónsson fv. lögregluþjónn,
Reykjavík. - Tryggvi Sigurbjarnarson, Reykjavík.
ÞJÓÐDEILD Þar hefur skráning íslenzka efnisins inn í
afturvirkt Gegni verið aðalverkefnið. A árinu var lokið við að skrá, tengja og leiðrétta rit í eftirfarandi flokkum, og er fjöldi titla áætlaður í hverjum
þeirra: 000 - 099 = 900 rit
100-199 = 1100 -
200-219 = 100 -
300 - 339 = 3700 -
600-619 = 600 -
640 - 649 = 300 -
700 - 793 = 950 -
820 - 899 = 7100 -
Barnabækur = 300 -
Samtals 17750 rit
Þá hafa rit ársins 1992 verið skráð, bæði prentuð rit og hljóðrit,
auk þess sem unnið hefur verið að skráningu prentaðra rita og
hljóðrita ársins 1993. Töf verður á, að íslenzk bóka- og hljóðritaskrá
ársins 1992 komist út, þar sem ekki er lokið gerð forrits til að ná rit-
unum út úr Gegni. Er þess að vænta, að gerð þess verði lokið
sumarið 1994.
Unnið hefur verið að skráningu íslenzkra tímarita í Gegni, jafn-
framt því sem í smíðum er skrá um íslenzk blöð og tímarit 1974-