Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1994, Blaðsíða 38
38
FINNBOGI GUÐMUNDSSON
Séð varð, að nokkur hluti þess fjár gengi til að ljúka þeim
áföngum, er í gangi voru, 9. og 10. áfanga, og halda yrði í þó
nokkurt fé vegna áframhaldandi hönnunar og vegna Saztekverk-
efnisins svonefnda, svo að framkvæmdir á árinu 1990 yrðu í
algeru lágmarki. Þegar byggingarnefnd mótmælti því, hvernig
komið væri, og knúði á um skil eignarskattsauka áranna 1987-89,
lýsti menntamálaráðherra því yfir, að bókhlöðunni bæri auðvitað
umræddur skattur og honum yrði skilað.
67 milljónirnar fyrrnefndu fóru að mestu til að ljúka 10. áfanga
og halda hönnunarvinnu og öðrum viðbúnaði gangandi. Veitt var
heimild til að vinna að örlitlum hluta 11. áfanga, þ.e. einangrun
innveggja 1. hæðar, jafnframt því, sem nokkru fé var varið til
bráðabirgða útbúnaðar geymslurýmis handa Landsbókasafni og
Háskólabókasafni í kjallara bókhlöðunnar. En söfnin voru bæði
orðin mjög aðþrengd, og versnaði ástandið ár frá ári.
Hörður Bjarnason fv. húsameistari ríkisins, er setið hafði í
byggingarnefnd Þjóðarbókhlöðu frá upphafi, óskaði eftir því um
vorið að verða leystur frá starfi sínu í nefndinni, og er starfs hans í
nefndinni minnzt með mikilli þökk.
í stað hans var skipaður í nefndina sumarið 1990 Egill Skúli
Ingibergsson verkfræðingur og honum falið að vera fram-
kvæmdastjóri hennar og formaður fyrir nefnd, er vinnur að
endurskoðun forsagnar vegna lokahönnunar bókhlöðunnar.
Unnið var um sumarið undir forystu Egils Skúla að nýrri
tímasettri áætlun, miðaðri við, að safnið yrði tekið formlega í
notkun 1994, á 50 ára afmæli lýðveldisins. Áætlunin tók til
byggingarframkvæmda, hönnunar, rekstrar nýja hússins, flutn-
ings safnanna í bókhlöðuna og nauðsynlegs viðbúnaðar vegna
hans, og greindi, hve mikið fé þyrfti að vera til taks á hverjum tíma,
til þess að áætlunin fengi staðizt.
Þar sem hönnun og gerð útboðsgagna vegna 11. og 12. áfanga
var lokið og þar voru verkefni upp á nokkur hundruð milljónir,
urðu það mikil vonbrigði, þegar í ljárlagafrumvarpinu fyrir árið
1991 reyndust aðeins hundrað milljónir ætlaðar til framkvæmda
við bókhlöðuna. Að vísu sagði í greinargerð, að óskipt væri enn
15'0 milljónum úr sjóðnum og mundi Alþingi í meðferð ljárlaga
skipta þeirri upphæð milli framkvæmda við bókhlöðuna og á
Bessastöðum. Á 50 ára afmæli Háskólabókasafns 1. nóv. lýsti
Svavar Gestsson menntamálaráðherra yfír því, að bókhlöðunni
yrðiáárinu 1991 tryggðar 175 milljónir, og hefurþá miðað við, að