Frjáls verslun - 01.10.1952, Side 5
OSCAR CLAUSEN:
fiíA fyrstu Aratugum frjAusrar verzuunar
VI. GREIN
Hann var sonur Boga verzlunarstjóra Benediktsen í
Stykkishólmi og Jarðþrúðar Jónsdóttur. Hann lærði
ekki í skóla eins og aðrir synir Boga, en gaf sig ungur
að verzlun. — Hæstakaupslaðinn á ísafirði keypti hann
af Ólafi Thorlacius í Fagradal árið 1828, fyrir eina
1500 dali, og borgaði aðeins 300 dali út af kaupverð-
inu. — Sjö árum síðar, þegar Ólafur í Fagradal dó,
voru þessir 1200 dalir ógreiddir af kaupverði Hæsta-
kaupslaðarins og átli þá Jens Benediktsen að fara að
borga þá í dánarbú Ólafs. En þá kom það upp úr
kafinu, að láðst hafði að setja í skuldabréfið, að hon-
um bæri að borga í ,,kurant“ mynt eða silfurdali, og
og notaði Jens sér af því og greiddi aðeins 800 dali
í silfri, því að þá var seðildalurinn ekki nema 66%
virði1) ; þannig eignaðist hann þessa góðu eign fyrir
aðeins 1100 dali. —
Þegar Jens gerði þessi kaup og tók við verzluninni
á ísafirði, var hann aðeins rúmlega tvítugur, en hann
hafði öflugan bakhjarl og hyggin ráðunaut, þar sem
Bogi faðir hans var. Tók hann þá þegar að reka
umfangsmikla verzlun og þilskijiaútgerð á Isafirði.
Hann efnaðist þar á injög stultum tíma og varð einn
af ríkuslu kaupmönnum landsins. Skömmu síðar
key]iti hann 2 verzlunarslaði auk ísafjarðar, en það
voru Keflavík og Vestmannaeyjar. -—-
Á ísafirði átti hann og gerði út 4 þilskip.2) —- Árið
1832 fór hann að auka útveg sinn. Keypti hann jagt,
er hét „Jens Peter den gamle“ og var 214 counn. lest
eða 17 smálestir, og var á henni alíslenzk skipshöfn.
Var það óvanalegt í þá daga.3) Svo rak hann líka
talsverða útgerð í Vestmannaeyjum, var heppinn
með hana og græddi mikið fé. Þar gerði hann út 7
þilskip,4) en 3 þeirra voru litlir þiljubátar. — Um
þetta bil var útgerð Jens Benediktsen sú stærsta hér á
landi.
Til þess að flytja vörur til og frá verzlunarstöðum
sínum átti hann 4 stór kaupskip.5 6) Stærst og fullkomn-
ust var skonnorta hans, er hét „Hekla,“ en hana lét
hann byggja norður í Finnmörk, og þegar skipið
kom til Kaupmannahafnar, lét hann skreyta það
mjög. — í lyftingu var lágmynd af Heklu, en ljón
og bjarndýr sitt hvorumegin við, allt logagylt, og svo
var framan á skipinu afarmikil úthöggvin „Gallions“-
mynd af Þór með hamarinn Mjölni. Var sú mynd í
líkamsstærð og einnig logagylt.0) —- Jens var afar-
hreykinn yfir þessu skrautlega skipi sínu og veturinn,
sem Hekla var útreidd til fyrstu ferðar sinnar til ís-
lands, var kaupmaður oft í ski])inu að deginum og
heimsóttu landar hans hann þar. Gekk hann þá oft
fram og aftur á þilfarinu, sýndi þeim skipið og var
hinn kátasti. — Auk þessara skipa álti Jens Benedikt-
sen 16. skipið, er hét „Piskator“, og mun það líka hafa
flutt vörur til og frá verzlunarstöðunum,“ en vorið,
sem hann dó (1841), var skip þetta fullbúið og út-
reitt lil fiskveiða norður í höf (til Spitsbergen?) og
mun hafa farið þangað um sumarið. —
Jens var athafnamaður mikill og græddist honum
mikið fé á sluttum tíma. í Kaupmannahöfn átti hann
kornmyllu og brauðgerðarhús og voru allar eignir
hans virtar, þegar hann dó, á 125.300 Rd., en skuldir
hvíldu þá á honum að u|)])hæð 40 þús. dalir.
Vorið 1841 fór Jens Benediktsen á uppáhaldsskipi
sínu „Heklu“ frá Kaupmannahöfn lil Vestmannaeyja,
en þá var „Hekla“ ný af nálinni, og þótti þá ekki
prýðilegra kaupskip hafa siglt til íslands, sízt sem
Islendingur átti. — í hafi varð hann veikur og vár
fluttur í land, strax og til eyjanna kom og dó þar
1) L65 182 fol.
2) Þau hétu: „Jens Peter,“ „Mani,“ „Bogi“ og „Julia".
3) Sbr. Ármann á Alþingi IV.
4) Þau hétu: llákarlinn, Óskabarn, Bóthildur, Elína, Jós-
eph, Forsöget og Matthilde.
5) Briggskipið „Seyen,“ galeas „Christense," galeas
,Metha“ og skonnert „Hekla.“
6) L65 1288 4to bls. 299.
FRJÁLSVERZLUN
77