Frjáls verslun - 01.10.1952, Blaðsíða 30
Einar Bjarnason kaup-
maSur í Keflavík andaöist
13. júlí s.l. Hann var fædd-
ur 23. apríl 1896 að Vatt-
arnesi við Fáskrúðsfjörð.
sonur hjónanna Þórunnar
Eiríksdóttur og Bjarna
Sigurðssonar. skrifstofu-
stjóra Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík.
Ungur byrjaði Einar að
stunda sjó. Stundaði hann
sjómennsku framan af ævi,
oftast formaður, ýmist á eigin bátum eða hjá öðrum
útgerðarmönnum við Austur- og Suðurland. Milli þess
sem hann stundaði sjó fékkst hann nokkuð við smíðar.
Til Keflavíkur fiuttist hann 1929 og átti þar heimili
síðan.
Árið 1934 veiktist 1 ánar af lömun og varð aldrei
heill heilsu upp frá því. Var hann undir stöðugri at-
hugun lækna um nokkurra ára bil, heima og erlendis.
Sjálfsbjargarviðleitni hins lamaða manns var við-
brugðið. Þannig á sig kominn stofnaði hann verzlun
og bjó þannig um sig, að hann gat setið við afgreiðsl-
una og húsrýmið það lítið, að hann gat náð til þess er
afgreiða þurfti úr sæti sínu. Hreppsnefnd Keflavíkur
sýndi þann lofsverða skilning á dugnaði hans, að
leyfa honum að hafa verzlunina opna til kl. 23 að
kvöldi -hvers dags. Gat hann séð heimili sínu farboða
við þessar aðstæður.
Sú hetjudáð lamaðs manns að sitja við afgreiðslu
í hörðum stól dag hvern, frá morgni og fram til mið-
nættis, árum saman, er einstætt afrek.
Einar var kjarkmikill þrekmaður, síkátur og hrók-
ur alls fagnaðar, þegar svo bar undir. Hann var vel
greindur, skapríkur en hið mesta ljúfmenni í dag-
legri umgengni.
Kvæntur var hann Ástríði Júlíusdóttur, er lifir mann
sinn. Áttu þau þrjá syni barna.
Hans Kristjánsson frarn-
kvœmdastjóri andaðist 1.
ágúst s.l. Hafði liann um
langt skeið átt við van-
heilsu að stríða. Fæddur
var Hans 22. maí 1891
að Suðureyri við Súg-
andafjörð, sonur hjónanna
Kristjáns Albertssonar, út-
vegsbónda þar og síðar
verzlunarstjóra, og seinni
konu hans, Guðrúnu Þórð-
ardótlur.
Ungur að aldri hóf Hans að stunda sjóinn og 18
ára gerðist hann formaður á vélbát föður síns. Snemma
lærði hann að meta gildi vélanna fyrir atvinnulífið,
enda var hugurinn löngum við þær hundnar. Kom
þetta sé vel síðar á lífsleiðinni.
Árið 1925 hóf liann tilraunastörf heima á Súganda-
firði við framleiðslu á olíubornum sjófalnaði, og var
fyrstur manna til þeirrar iðju hér á landi.
Fljótlega varð of þröngt um iðju hans heima í
litla og afskekkta sveitakauptúninu, og fluttist hann
því til Reykjavíkur ári síðar. Hér vann hann að sjó-
klæðagerð í 3 ár, eða þar til Sjóklæðagerð íslands h.f.
var stofnuð upp úr fyrirtæki hans árið 1929. Hans
var forstjóri fyrirtækisins um langt skeið og rak það
í nær 20 ár. Hann átti einnig þátt í stofnun Harðfisk-
102
FRJÁLS VERZLUN