Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1952, Blaðsíða 25

Frjáls verslun - 01.10.1952, Blaðsíða 25
Hjalti Geir Kristjánsson: Skrifstofuhúsgögn Þungamiðja í siníði skrii- stofuhúsgagna í dag er sú að auðvelda og endurbæta skrif- stofustörfin, svo og að sjá þeim, er slík störf vinna, fyr- ir þægilegum og hagkvæmum .‘■tólum, sem komið geta í veg fyrir óeðiilega {ireytu. Ekki munu nein húsgögn vera jafn háð tilgangi sínum og skrifstofuhúsgögn, og verð- ur að teljast, að mjög náið samband sé milli viðkomandi starfsgreinar og húsgagnanna sjálfra, til þess að þau komi að tilætluðum notum. Utlit og gerðir þeirra er })ó hægt að gera mismunandi með breyti- legri meðhöndlun efnisins, en skrifstofuhúsgögn eiga að vera yfirlætislaus, og á bak við hið einfalda og þægilega á að vera sú mesta að- stoð, sem þau geta veitt hlutaðeigandi. Tiltölulega stuttur tírni er liðinn síðan sérstök skrif- stofuhúsgögn fóru almennt að ná nokkurri útbreiðslu hérlendis. og má rekia orsakir þe?s m. a. til þess að íslenzkur iðnaður hefur þróazt og eflzt á tiltölulega skömmum tíma. Þar sem flest miðast nú orðið við aukna gernvtingu, bá eru það húsgögnin, sem eiga nokkurn bátt í því að hún geti á öruggan hátt komið til framkvæmda. Á síðustu árum hefur orðið varl nokkurra breytinga á gerðum skrifstofuhúsgagna, og þá einkum með lil- liti til hess að málmur hefur verið tekinn meira í jieirra þjónustu. Hér á landi hafa skíalaskánar, sem ofl eru með 'Stórum og djúpum skúffum, náð nokk- urri útbreiðslu, og almennt gefið góða raun. Er hér ekki á neinn hátt verið að ganga á hlut viðarins, því fyrir hann finnast ótal rnörg verkefni, bæði innan skrifstofunnar og utan, heldur hefur í einstaka til- fellum reynzt endingarhetra að nota málm viðnum fessi sa‘nski skrifstofustóll þykir mjÖK: þæívilejíiir, enda mikið notaður á Norður- lömlum og víðar. Hakið er færanlefft. til aðsloðar, því oft reynir mjög á burðarþol skúffunnar, og að hún leiki létt við notkun. Þar sem eðli viðar- ins breytist við liita og kulda, þá hef- ur verið hugsað til samvinnu milli þessara tveggja efna. Innan veggja skrifstofunnar er stór hópur manna og kvenna, sem starfar þar alll að 1/3 hluta sólar- hringsins. Má því segja, að skrifstofan sé annað heim- ili þessa fólks, og hlýtur hún að hafa áhrif til hins betra sé umhverfið vistlegt og skrifstofunni yfirleitt haganlega fyrirkomið. Slíkt eykur afköst og veitir stofnuninni um leið víðtækari möguleika til að geta orðið viðskiptavini sínum til sem mestrar aðstoðar. Það er sameiginlegt með skrifstofu og heimili, að hvort tveggja ber svip þeirra er um það ganga. Flestar þær framfarir, sem orðið hafa á seinni ár- um, hafa án efa í byrjun verið kallaðar ímyndun ein, j)ó allar iniðist þessar framfarir í þá átt að veita aukin þægindi og lífsviðurværi. Eitt augljóst dæmi um öra þróun er flugið. sem skapað hefur önnur lífsviðhorf á ótrúlega skömmum tíma. Þá má telja bílana og alls konar vélar, bæði til heimilis og iðnaðar, og allt stefn- ir að sama marki, að endurbæta hið gamla og skapa nýtt til aukinna þæginda og betra lífsviðurværis. Samfara hinni auknu taikni. sem nú þegar hefur haft Framh. á bls. 59. Nútimaskrifborð frá Ítalíu með tvöföldum jclerplötum. Borðið má stækka og minnka eftir vild. FRJÁLS verzlun 97

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.