Frjáls verslun - 01.10.1952, Side 7
PÁLL S. PÁLSSON:
Eftirlit með sölubúðum í Stóra-Bretlandi
Löggjöfin.
Núgildandi lög í Bretlandi um eftirlit með sölu-
búðum, „The Shops Act,“ eru frá árinu 1950. Var þá
safnað saman lagaákvæðum frá ýmsum tímum, er þá
voru í gildi og snertu sölubúðir, og gefin út aftur
sem heildarlöggjöf, aðstandendum öllum til mikils
hugarléttis. Lögin eiga aðallega við verzlanir, svo og
vinnutíma starfsmanna hjá veitingastofum og vinnu-
tíma unglinga við veitingasölu hjá hótelum.
Lögin fjalla aðallega um:
1. Lokunartíma.
2. Vinnutíma starfsmanna.
3. Vinnuráðningar unglinga inrian 18 ára aldurs.
4. Ráðstafanir til verndar heilbrigði og velferð
starfsmanna.
Lögin eru margbrotin. Ákvæðin breytileg eftir teg-
undum verzlana. Hér skal að-
eins drepið á nokkur almenn-
ustu ákvæðin.
Lögin tryggja, að starfsfólk
verzlana innan 16 ára aldurs
vinni eigi lengur en 44 klukku-
stundir á viku hverri.
LFnglingar milli 16 og 18
ára aldurs mega ekki vinna
lengur en 48 stundir á viku.
Þó eru veittar heimildir til
yfirvinnutíma fyrir fólk á
þessu aldursskeiði. Yfirvinn-
an má þó aldrei fara fram úr
50 stundum á ári og aldrei
fram úr 12 stundum á viku.
Aðalreglan um lokunar-
tíma sölubúða er sú, að sér-
hver sölubúð ljúki viðskiplum
eigi síðar en kl. 1 e. h. einn
virkan dag í viku hverri, búð-
um sé lokað á kvöldin yfir
vetrarmánuðina í síðasta lagi
kl. 7,30 einn virkan dag, en aðra
virka daga kl. 6. Aðra tíma
ársins eigi síðar en kl. 9 að kvöldi einn virkan dag í
yiku, en aðra virka daga eigi síðar en kl. 8. — Frá þess-
ari meginreglu er þó heil hersing af undantekningum.
Eftir þeim skilningi, sem eftirlitið leggur í hin
flóknu ákvæði laganna, mega vinnustundir eldri starfs-
manna en 18 ára vera allt að 65 á viku, án þess að
refsivert sé talið.
Frídagar mega ekki vera færri en 52 á ári, þ. e. 26
sunnudagar og 52 hálfir frídagar.
Af almennu ákvæðunum til verndunar heilbrigði og
velferð starfsmanna er eftirtektarverðast ákvæðið um
það, að stúlkum skuli séð fyrir sætum innan afgreiðslu-
borðs, ef hlé verður á afgreiðslu.
Eftirlitið.
Eftirlitsmenn eru á verði um það, að lögunum sé
framfylgt. Framkvæmd eftir-
litsins þótti mér athyglisverð-
ari en löggjöfin. Eftirlitið er
sérlega nákvæmt, að því er
virtist, en þó ekki kostnaðar-
samt.
1 London eru 70.000 búðir,
auk heildsöluverzlana og götu-
sala. Tólf eftirlitsmenn ann-
ast eftirlitið í allri borginni.
Er borginni skipt niður í 12
umdæmi. Eftirlitsmenn þessir
hafa enga aðstoðarmenn, og
þeir verða jafnhliða að sinna
öðrum eftirlitsstörfum, svo að
talið er að 3/4 af tíma þeirra
sé helgaður búðareftirlitinu.
Eftirlitsmaðurinn heldur
skýrslur yfir allar búðir í
umdæmi sínu, þar sem liann
færir inn skoðunardaga og
athugasemdir, ef einhverjar
eru.
Ef ný verzlun er sett upp.
kemur eftirlitsmaðurinn á
FRJÁLS.VERZLUR
n