Frjáls verslun - 01.10.1952, Síða 12
„I»etta er
síðasta
stykkið
— svona
kostakjör
bjóðast
ekki
aftur . . .“
finnst það eiginlega vera einhver skylda, sem á þeini
hvílir, að úr því þeir á annað borð eru komnir í þetta
andrúmsloft Petticoat Lane markaðsins, þá geti þeir
ekki þaðan farið tómhentir.
Aðctllinn, sem hvarf.
Petticoat Lane hefur verið við líði sem götumarkað-
ur í liðlega 200 ár. Fyrir 1750 var þetta álitinn mjög
svo virðulegur staður, þar sem yfirstéttarmenn bjuggu.
Sóttin mikla, &em herjaði í London um miðja 18. öld,
svældi að lokum aðalinn í burtu frá þessu svæði, og
skömmu síðar fóru hollenzkir, franskir og enskir
kaupahéðnar að venja komur sínar á þessar slóðir,
þar sem þeir hófu svo verzlun úti undir beru lofti.
Um 1750 virðist svo komið, að allir, sem eitthvað
höfðu til sölu eða skipta í Lundúnum, þurftu að leggja
leið sína til Petticoat Lane. Þarna breiddu þeir úr
vörum sínum, og þöndu sig hver í kapp við annan um
leið og þeir reyndu að koma út varningnum.
„Petit Court" þótti fínna.
Mönnum er það nokkuð óljóst, hvernig nafnið
Petticoat Lane er til orðið í sambandi við hina þekktu
verzlunargötu. Sé horfið aftur til 14. aldar. kemst
maður að því, að gatan heitir Hog Lane (Svínatröð),
og mun hún hafa dregið nafn sitt af því, að svínum
var sleppt á götuna, og léku þau þar lausum hala.
Sumir vilja halda því fram, að aðlinum hafi ekki þótt
þetta nógu virðulegt nafn, og því tekið upp annað
götuheiti. Þá eru aðrir, sem hafa þá kenningu, að
Petticoat sé myndað af franska nafninu „Petit Court,“
sem merkir þröngan veg.
Stóra fjölskyldan.
Kaupsýslumennirnir og fjölskyldur þeirra eru sann-
arlega upp með sér af sambandinu við Petticoat Lane.
Mörg sölubúrin hafa gengið í erfðir sem fjölskyldu-
fyrirtæki í áratugi, og er litið á þau sem dýrmætasta
sameignartákn fjölskyldunnar. Annars má segja, að
verzlunarstétt Petticoal markaðsins sé ein stór fjöl-
skylda, sem lifir og hrærist í þröngu umhverfi, þar
sem hver dagurinn er öðrum líkur.
2500 verzlunarleyfi á ári.
Hvernig hefja menn nú annars verzlunarrekstur
þarna undir beru lofti, og hvað orsakai hið lága verð,
sem þar er hægt að bjóða fyrir margvíslegar vöruteg-
undir? Verzlunarleyfi verða menn skilyrðislaust að
hafa, þegar þeir byrja að höndla á markaðnum. Ef
Ieyfi er veitt, þá er greitt fyrir það 2 shiflinga og
gildir aðeins fyrir einn dag. Þriggja til fjögurra daga
leyfi ko;ta 4 shillinga og fimm daga leyfi eru seld
á 5 shillinga. Talið er, að sótt sé um 2500 veizlunar-
leyfi fyrir Petticoat Lane á ári. Tekjur þess opinbera
fyrir þessi leyfi geta varla talizt háar, eða um það
bil £6500 um árið. Kostnaðurinn, sem opinberir að-
ilar verða að greiða vegna götuhreinsunar, hlýtur hins
vegar að vera nokkuð mikill. Á hverjum sunnudegi, frá
því klukkan eitt eftir hádegi þar til klukkan tíu að
kvöldi, vinna 16 menn að því að hreinsa upp ýmiskon-
ar rusl af Pelticoat Lane og nærliggjandi götum, sem
skilið hefur verið eftir eða kastað frá sér, meðan á
sunnudagssölunni stendur. Talið er, að allt það drasl,
sem skilið er eftir á sunnudögum, vegi frá 3 til 5 smá-
lestir, og í jólavikunni getur þetta farið upp í 10 smá-
lestir. Auk þess er sprautað vikulega um 18 þúsund
lítrum af vatni á göturnar til að hreinsa þær eftir
annir dagsins.
Shakespeare í kaupbœti.
Kaupsýslumennirnir í Petticoat Lane eiga sinn eigin
leiðtoga. Heitir sá Mike Stern og er um sextugt. Hann
hefur verið leiðandi maður í félagsskapi markaðskaup-
mannanna í röskan aldarfjórðung og nýtur mikils
trausts meðal starfsbræðra sinna. Á sunnudögum
hópast fólk að söluplássinu hans Mike, þar sem
hann stendur í allri sinni mekt, klæddur í viðhafnar-
skrúða borgarstjóra og hefur stærðar -sverð við hlið
sér. Ef til vill er Mike Stern öllum öðrum fremur
tákn þess sérstæða og mótsagnakennda, sem verður á
vegi manns, þegar Petticoat Lane markaðunnn er
heimsóttur. Þarna stendur gamli maðurinn með varn-
inginn í höndunum eins og hver annar sölumaður á
markaðnum og lýsir gæðum hans og dásemdum með
mörgum fögrum orðum . . . og svo hljóma skyndilega
í loftinu innan um kjarnyrtar og kröftugar söluræður
til viðskiptavinanna tilvitnanir úr verkum William
Shakespeares sem nokkurskonar kaupbætir til þeirra.
er á hlusta.
84
frjálsverzlun