Frjáls verslun - 01.10.1952, Page 14
til endurskoðunar- og fjármáladeild S. Þ. Framtölin
eru endurskoðuð og skattur reiknaður út. Vann ég við
þessi skattframtöl og kynntist þannig skatlafyrir-
komulagi Bandaríkjanna að nokkru leyti.
Persónufrádráttur í Bandaríkjunum er $600,00
fyrir hvern einstakling, og fyrir hvern þann, sem
skattgreiðandi hefur á framfæri sínu, má hann draga
frá $ 600,00, eða næstum 10 þús. krónur, miðað við
núverandi gengi á dollara. Eru ákvæðin varðandi per-
sónufrádráttinn mjög rýmileg, t. d. hvað snertir
börn, fósturbörn, foreldra, tengdaforeldra og aðra
nána ættingja, svo sem föður- og móðurbróðir, afa
og ömmu og systkinabörn. Er framfæri allra þessa
fyrrgreindu aðila frádráttarhæft. Skilyrði er aðeins,
að viðkomandi skattgreiðandi eyði að minnsta kosti
$600,00 til styrktar eða framfærslu þess, sem hann
fær frádrátt fyrir.
Þegar náð er 65 ára aldri eða ef viðkomandi er
blindur, tvöfaldast persónufrádrátturinn.
Skattar eru tvennskonar: 1) ríkisskattur, 2) skattur
til þess fylkis, sem skattgreiðandi hefur aðsetur í. Er
skattur til fylkisins um 3—4%, og hækkar persónu-
frádrátturinn þá upp í $ 1.000 á hvern einstakling,
þegar sá skattur er reiknaður út. Fylkin fá megnið af
tekjum sínum af söluskatti, sem lagður er á vörur og
þjónustu. Er hann mismunandi hár, eftir því hvort um
nauðsynjavörur er að ræða eða ekki.
Allur annar frádráttur er mjög rýmilegur, i. d. er
sjúkrakostnaður frádráttarhæfur, svo og gjafir til
kirkna og góðgerðarstofnana.
Hjón eru skattlögð í sitt hvoru lagi, ef þau óska
þess. Ggta þau skipt tekjunum til helminga og notið
þannig lægri skattstiga.
Hver skattgreiðandi reiknar sjálfur út skatta sína,
og um leið og hann skilar af sér skattframtalinu, sem
á að gerast fyrir 15. marz ár hvert, sendir hann ávísun
til greiðslu á sköttum sínum. Framtal hans er síðan
endurskoðað af skatlyfirvöldunum. Ef skekkjur koma
fram við yfirreiknun á framtalinu, er skattgreiðanda til-
kynnt um það síðara hluta árs, og þarf hann þá að senda
viðbótargreiðslu eða fær endurgreitt, eftir því hvað við
á. Með sh'ku fyrirkomulagi sparast innheimtukostn-
aður þess opinbera og fyrirhöfn beggja aðila.
Utgáfa skattskrár eins og hér tíðkast, er óþekkt fyr-
irbrigði þar í landi. Undruðust menn stórlega, er ég
sagði frá fyrirkomulagi þeirra mála hér heima.
Eignaskattuv og veltuútsvar þekkjast ekki í Banda-
ríkjunum. Ríkið stillir sköttum sínum það í hóf, hvað
snertir fyrirtæki, að þeim er kleift að auka slarfrækslu
sína og færa út kvíarnar á eðlilegan hátt. Tapsfrá-
dráttur fyrirtækja hefur áhrif bæði tvö ár fram fyrir
sig eða tvö ár aftur í límann. Á þann hátt gela fyrir-
tækin, ef þau tapa eitt árið, en hafa grætt önnur, látið
umreikna skatta sína og fengið þannig fé, sem áður
var greitt í ríkissjóð, til að rélta við fjárhaginn.
Ef horft er fram í tímann, þá er ríkið á þann hátt
að tryggja sér varanlegar skatttekjur. Því er öðruvísi
varið hér á landi, þar sem allt er þurrausið af ein-
staklingum og fyrirtækjum í skatta og gjöld til ríkis
og bæja.
— Kynntir þú þér aðrar hliðar d starfsemi S. Þ.?
Ég kynnti mér lítillega skipulagningu og starfshætti
Sameinuðu þjóðanna. Er margháttaðri fræðslu- og
kynningarstarfsemi haldið upj)i innan og á vegum
S. Þ. Kvikmyndir sýndar frá þátttökuþjóðunum, og
fyrirlestrar haldnir um ýmis málefni, sem snerta S. Þ.
Meðal starfsmanna samtakanna eru starfandi margs-
konar félög og klúbbar til eflingar nánari kynnum
þeirra á milli.
Hvað starfa margir íslendingar ó vegum S. Þ.
í New York?
Ég var fyrsti Islendingurinn, sem var ráðinn beint
héðan að heiman. Fyrir var íslenzk stúlka, sem búsett
er í New York. Starfaði hún í upplýsingadeildinni.
Nafn hennar er Kristín Björnsdóttir.
Tveimur mánuðum eftir komu mína vestur, kom
ívar Guðmundsson, ritstjóri, þangað. Starfar hann,
sem kunnugt er, við upplýsingaþjónustu samtakanna.
G. M.
Eftirlit með sölubúðum. Framh. aj hls. 80.
unartímann mikið frá því, sem nú er. Rannsóknir
nefndarinnar á þessu atriði sýndu, að 30% neytenda
óskuðu eftir að búðir væru ojmar eftir kl. 6,15, en
69% þessara neytenda voru verkamenn.
Aðrar rannsóknir leiddu í ljós, að 59% verksmiðju-
verkamanna þurftu að komast í verzlanir eftir kl. 6,15,
og 80% þeirra verkakvenna, sem annast sjálfar inn-
kaup sín, þurftu að gera þau eftir kl. 6,15. Lokunar-
tími kl. 7 reyndist hinsvegar fullnægjandi hjá yfir-
gnæfandi fjölda neytenda.
Nefndin segir, að ákvæðin um lokunartímann hafi
áður fyrr verið til mikillar verndar starfsmönnum,
en nú sé að nálgast það takmark, að löggjöf um lokun-
arlíma söluhúða geli ekki veitl þeim frekari vernd,
vegna tillitsins til þarfa neytendanna.
Allar frekari takmarkanir á vinnutíma starfsmanna
verði starfsfélögin að fá fram eftir öðrum leiðum, og
mun nefndin með því eiga við frjálsa samninga laun-
þega og atvinnurekenda.
86
FRJÁLS VERZLUN