Frjáls verslun - 01.10.1952, Qupperneq 19
„Holí er heima hvað“
Stærsta iðnsýning, sem haldin hefur verið hér á
landi, var opnuð laugardaginn 6. september s. 1. og
stóð yfir til 19. október. Sýningin var helguð 200 ára
afmæli „Innréttinga“ Skúla Magnússonar fógeta. Að-
sókn að sýningunni var mjög mikil og sáu hana yfir
73 þús. manns, eða næstum annar hver landsmaður.
Þessi umfangsmikla sýning er merkilegt átak iðnað-
arins í landinu. Hún sannar áþreifanlega gildi iðnað-
arins fyrir þjóðarbúskap Islendinga. Þar mátti sjá
framleiðslugetu þessa þriðja aðalatvinnuvegar þjóð-
arinnar í dag.
Skipulag sýningarinnar var gott og fjölbreytni mik-
il. Þarna vantaði þó fulltrúa nokkurra iðngreina, þ. á.
m. fiskmjölsiðnaðarins, en sá iðnaður er mikilvægur
fyrir útflutningsframleiðsluna.
Fyrirkomulag sýningarinnar var í stórum dráttum
þannig: I kjallara hússins sýndu vélsmiðjur og ann-
ar þungaiðnaður vélar sínar og framleiðslu. Sýning-
ardeildir í kjallaranum vöktu einna hvað mesta at-
hygli gesta. Að auki hafði þungaiðnaðurinn til um-
ráða útisýningarsvæðið.
Á 1. hæð var matvælaiðnaður margs konar, sælgæt-
is- og efnagerðir, efnaiðnaður, veiðafæragerðir o.fl.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna sýndi þar framleiðslu-
vörur frystiiðnaðarins. Skúladeild hafði húsrými á
þessari hæð, en hún var gerð til minningar um „Inn-
réttingar“ Skúla fógeta. Mátti þar sjá gripi og muni,
er tilheyrðu Skúla eða frá tíð hans. Líkan af „Innrétt-
ingunum“ var þar til sýnis og eintak af hlutabréfum
fyrirtækisins, en þær voru að nafninu til hlutafélags-
eign. Táknmyndir og línurit úr þróunarsögu iðnaðar-
ins frá dögum Skúla og fram á þennan dag voru þar
á veggjum.
I fordyri þessarar hæðar, sem er aðalinngangur
hússins, gat að líta myndir af íslenzkum náttúruöflum
og athafnalífi þjóðarinnar. Hagnýting náttúruauðlinda
landsins er enn skammt á veg komin, en verkefnin eru
óþrjótandi. Var fordyri sýningarinnar smekklega
gert, áhrifamikið og fróðlegt.
Á annarri hæð var rafmagns- og raftækjaiðnaður,
byggingarefnaiðnaður, svo sem framleiðsla Vikurfé-
lagsins, plastvörur o.fl. Iðnaður S.Í.S. hafði um þriðj-
ung þessarar hæðar til umráða. Voru sýningardeildirn-
ar smekklegar, og vakti sýning á vefnaðarvörum verk-
smiðja Sambandsins sérstaka athygli sýningargesta.
Þriðju hæð hússins hafði vefnaðarvöru- og leður-
iðnaðurinn til umráða, en þar voru einnig prentsmiðj-
ur og listiðnaður. Allskonar vefnaður og fatnaður
prýddi stofurnar á þessari hæð. Sýningardeild Vinriu-
fatagerðarinnar var athyglisverð og framleiðsla verk-
smiðjunnar á skjólfatnaði mjög til fyrirmyndar. Nokk-
ur fyrirtæki á sviði vefnaðariðnaðarins tóku ekki þátt
í sýningunni, og var það miður, þegar svona gott tæki-
færi bauðst til að kynna alþjóð framleiðsluvörur þess-
arar iðngreinar.
Á efstu hæðinni var húsgagnaiðnaðurinn, heimilis-
iðnaðarfélagið, iðnaður S.I.B.S. o.fl. Var margt ný-
stárlegt og frumlegt að sjá hjá húsgagnaiðnaðinum.
Augljóst er, að iðnsýningin hefur haft örfandi áhrif
á iðnrekendur. Komu fram á sýningunni margar merk-
ar nýjungar, sem aldrei hafa verið framleiddar hér
á Iandi áður. Af þeim helztu má nefna dieselvék fram-
leidd af Héðni, og þurrkvél, framleidd af Rafha í Hafn-
arfirði. Þessar tvær verksmiðjur sýndu þarna einnig
íslenzku þvottavélina, sem þær framleiða í sameiningu.
S. H. Steindórsson frá Akureyri sýndi þarna fyrsta
rafmótorinn. Ofnasmiðjan h.f. sýndi fyrstu íslenzku
rafmagnsuppþvottavélina og þvegil, sem kemur í stað
gólfklúts, og m.fl. var þarna af nýjum framleiðslu-
vörum, sem of langt mál yrði u])j) að telja.
Deildin um gernýtingu í iðnaði var mjög athyglis-
verð og lærdómsrík. Var gestum gefinn bæklingur til
leiðbeiningar og skýringar á þessu mikilvæga atriði.
Framh. á bls. 99.
FRJÁLSVERZLUN
91