Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1952, Síða 27

Frjáls verslun - 01.10.1952, Síða 27
Heildsölumiðsiöðin i RoUerdam Myndin sýnir líknn af Heildsölumiðstöðinni í Rotterdam. Eins og 'kunnugt er, var stór hluti af borginni Rotterdam í Hollandi eyðilagður í síðustu istyrjöld, og varð viðskipta- hverfi borgarinnar mjög hart úti. Síðan hefur verið unnið að endurbyggingu þess og hefur verið reynt að koma öllu sem haganlegast fyrir í hin- um nýju borgarhlutum. Eitt af því, sem skipuleggj- endur borgarinnar hafa komið í framkvæmd, er að byggt verði ein allsherjarmiðstöð fyrir stórsölu. Birtist hér mynd af húsi því, sem miðstöðin verður í, þegar það verður fullgert, en byggingu þess er nú þegar vel á veg komið. Byggingin verður hin stærsta í Evrópu og er bygg- ingarstæðið 17000 fermetrar, lengd húasins 220 metr- ar og hæð 35.5 metrar. Byggingin telst 440.000 ten- ingsmetrar og verður þetta því geysimikið hús. Ætlast er til, að húsið taki vörur, sem nemi 600 smálestum á dag, en vöruflutningum úr birgðageymsl- um innanhúss er þannig fyrir komið, að vörurnar eru fluttar til á sérstökum pöllum, sem rúmast í vörulyft- um og falla mátulega á vörubifreiðar, sem eru lil laks og flytja vörurnar beint út um allt land, án nokkurrar millihleSslu. f húsinu er auðvitað allt, sem til þæginda heyrir fyrir þann aragrúa af starfsfólki, er þar mun vinna, svo sem veitingasalir, búðir, fundarsalir og annað slíkt. Er bygging þessa húss mjög merkilegt nýmæli og má nærri geta, að það liefur ekki verið auðvelt verk að setja fjöldamörg stórsölufyrirtæki undir eitt þak og sjá fyrir öllum þörfum þeirra, sérstökum og sam- eiginlegum, á einum etað. Iðnsýningin 1952. Framh. af bls. 91. Auk kynningar á framleiðslu hinna ýmsu fyrir- tækja, hafði sýningin að geyma margskonar almenn- an fróðleik í myndum og línuritum, sem snerti iðn- aðinn og þjóðina í heild. ' Fjöldamörg fyrirtæki gáfu út smá bæklinga til út- býtingar meðal sýningargesta og kynntu þar starfsemi sína og framleiðslu. Fyrirtæki innan matvælaiðnaðarins gáfu gestum að bragða á framfeiðslu sinni. Skipulagsafrek iðnsýningarinnar var mikið verk, en það leystu af bendi þeir Skarphéðinn Jóhannsson, arkitekt, og Helgi Bergs, verkfræðingur. framkvæmda- stjóri sýningarinnar. Tðnaðurinn er orðinn gildur og veigamikill þáttur í efnahagslífi þjóðarinnar. Þróun hans hefur verið ör og stórstíg síðasta áratuginn. Iðja og iðnaður hafa orðið okkur öflug lyftistöng til aukinnar sjálfsbjarg- ar og velmegunar. Iðnsýningin var stórfellt átak til að sýna alþjóð til- verurétt sinn. Skrifstofuhúsgögn. Framh. a-f bls. 97. svo víðtæk áhrif, þá verða allar greinar iðnaðar að fylgjast með framförunum, og það hefur húsgagna- iðnaðurinn einnig gert. Húsgögnin í dag byggjast á kröfum okkar sjálfra, og miðast við nútíma lifnaðarhætti, og sé þess gætt, þá erum við sjálfum okkur samkvæm. Hjalti Gcir Kristjánsson FRJÁLS VERZLUN 99

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.