Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1952, Síða 31

Frjáls verslun - 01.10.1952, Síða 31
sölunnar h.f. skömmu eftir að hann kom til bæjarins. Árið 1945 seldí Hans hlut sinn í Sjóklæðagerðinni og byrjaði á nýrri iðjiu teppa- og gólfdreglagerð, er hann starfrækti til dauðadags. Árlega var henl tugum tonna af ónýtum fiskilínum. Þetta hráefni nýtti Hans við iðju sína. Fann hann upp vélar og lét smíða, sem röktu í sundur fiskilínurnar, svo að hægt yrði að nota þær í dregla. Hans var bjartsýnn og þrautseigur athafnamaður, sem ekki hikaði við að leggja inn á nýjar brautir. Drenglyndi hans og fórnfýsi var viðbrugðið. Hans var tvíkvæntur. Fyrri konu sína, Maríu Helgu Guð- mundsdóttur, missti hann 1937. Eru fimm börn þeirra uppkomin á lífi. — Síðari kona hans, var Ólafía Á. Einarsdóttir og lifir hún mann sinn. Sigurður Þorsleinsson skrifstofustjóri andaðist 11. sept s. 1. Hann var Reyk- víkingur að ætt, fæddur 7. jan. 1892, og því liðlega sjötugur að aldri, er hann lézt. Foreldrar hans voru þau hjónin Þorsteinn Guð- mundsson, er lengst starf- aði hjá Thomsénsverzlun og síðar varð yfirfiskimats- maður, og kona hans Krist- ín Gestsdóttir. Snemma beygðist krókurinn til þess er verða vildi. Tólf ára gamall hóf Sigurður verzlunarstörf hjá Thomsensverzlun, og verzlunarstéttinni tilheyrði hann upp frá því. Hjá Thomsen starfaði hann í 16 ár. Um tveggja ára skeið starfaði hann við verzlun I.P.T. Bryde, og eitt ár var hann hjá Pétri J. Thorsteinsson. En frá 1913 og til dauðadags starfaði hann við verzl- un Jes Ziemsen, og stjórnaði skrifstofu verzlunar- innar. Sigurður vann störf sín af trúmennsku og skyldu- rækni. Hann var tryggðartröll, ötull, hispurslaus og viðmót hans allt ljúfmannlegt, eins og góðum dreng sæmdi. Sigurður var meðlimur í V. R. um hálfrar aldar skeið, tók virkan þátt í félagsstarfinu skömmu eftir aldamótin og átti sæti í stjórn félagsins. Fyrir þau störf var hann kjörinn heiðursfélagi á 60 ára afmæli þess. Meðlimur í Styrktar- og sjúkrasjóð verzlunar- manna var hann frá 1899. Kvæntur var Sigurður Amalíú Sigurðardóttur, Jóns- sonar fangavarðar, sem látin er fyrir nokkrum árum. Áttu þau þrjú börn uppkomin. Sigurjón Pétursson for- stjóri andaðist 1. okt. s.l. Hann var fæddur í Reykja- vík 15. júlí 1905, sonur hjónanna Péturs Sigurðs- sonar, sjómanns, og Guð- rúnu Gróu Jónsdóttur, konu hans. Um fermingaaldur hóf Sigurjón starf hjá H. Bene- diktsson & Co., og starfaði þar í samfleytt 23 ár. Sam- hliða starfi sínu stundaði hann nám við Verzlunarskóla íslands og lauk þaðan fullnaðarprófi 1924. Gjaldkera- og skrifstofustjóra- störfum hjá H. Benediktsson & Co gegndi hann til 10. marz 1942, er hann tók við framkvæmdastjóra- stöðu hjá Hraðfrystistöðinni h.f. í Reykjavík. Er H. Benediktsson & Co var meðal stofnenda H.f. Ræsis, var leitað til Sigurjóns um að taka að sér forstöðu þess fyrirtækis. Hóf Sigurjón starf sitt sem forstjóri H.f. Ræsis í ársbyrjun 1943 og stýrði því fvrirtæki til dauðadags. Gekk hann með alúð og sínum alkunna dugnaði að því að yfirstíga margvíslega byrjunarörð- ugleika og skapa fyrirtækinu traust og virðingu. Sigurjón var að eðlisfari félagslyndur og var hon- um falin mörg trúnaðarstörf í þágu ýmsra félaga og samtaka. Á yngri árum var hann virkur þátttakandi í íþróttahreyfingunni, innan vébanda K.R. Iþróttahreyf- ingin átti ávaUt góðan hauk í horni þar sem Sigurjón var, og gegndi hann ýmsum trúnaðarstörfum í þágu liennar um ævina. Átti t. d. sæti í stjórn Í.S.Í. og K.R. í mörg ár. Hann var áhugasamur um stjórnmál og formaður fjármálaráðs Sjálfstæðisflokksins síðustu árin. Hann átti sæti í framkvæmdanefnd Vinnuveit- endasambands íslands, og í stjórn Rotarvklúbbs Reykjavíkur. Einnig starfaði hann ötullega að mál- efnum Oddfellowreglunnar. Formaður bvggingarnefnd- ar Neskirkju var hann og safnaðarfulltrúi þeirrar sóknar. Sigurjón var mannkosta og hæfileikamaður mikill, vinmargur og vinsæll. Greiðvikni hans og hjálpsemi var viðbrugðið. Dugnaður hans var frábær, og var hverju málefni vel borgið, sem hann lagði Iiðsinni sitt. Kvæntur var hann Sigríði Loftsdóttur, og lifir hún mann sinn, ásamt tveimur börnum þeirra. FRJÁLSVERZLUN 103

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.