Frjáls verslun - 01.08.1967, Page 13
FRJÁLS VERZLUN
13
Kína:
Orsakir menningarbyltingarinnar
eru efnahagslegar
Eftir að Menningarbyltingin svo-
nefnda náði hámarki, hefur at-
hygli umheimsins beinzt að Kína
í sívaxandi mæli. Hafa fréttir það-
an valdið hugsandi mönnum mikl-
um áhyggjum, þar eð svo virtist
sem algjört stjórnleysi ríkti í þessu
stóra og mannmarga landi. Þótti
ýmsum illt til þess að vita, ekki
sízt ef óábyrgir ofstækismenn
næðu völdum. (Er á sumt vart
bætandi). Var ekki annað sýnt á
tíma en að unglingalýður og æst-
ur múgur hefðu tekið alla stjórn í
sínar hendur. Virtist innanlands-
styrjöld á næsta leiti og loft lævi
blandið austur þar.
Ýmsir óttuðust og, að Kínverjar
kynnu að grípa til einhverra óynd-
isúrræða íutanríkismálum, tilþess
að leyna ástandinu heima fyrir.
Var þetta þeim mun alvarlegra
sem reynsla annarra þjóða af
utanríkisstefnu Kínverja er slæm.
Hefur stefna þeirra yfirleitt verið
talin hættuleg heimsfriði.
Mao: Áframhaldandi bylting.
AndstœSur. Auðsætt var, að
baráttan í Kína stóð fremur um
framtíðarskipan mála en um
persónulegan metnað og frama.
Áttust þarna við tvær andstæðar
fylkingar: annars vegar gallharðir
Maósinnar, sem vilja í engu víkja
frá kenningum Marx og Leníns,
— og hins vegar þeir, sem aðhyll-
ast endurskoðunarstefnu og vilja
raunhæfara mat á efnahagsmálum.
Hvers vegna? Nú virðast Maó
og fylgismenn hans hafa haft betur
í valdabaráttunni um stundarsakir,
enda þótt sá sigur kunni að reyn-
ast þeim ærið dýrkeyptur, því að
stjórn landsins hefur stórveikzt á
undanförnum mánuðum og Kín-
verjar beðið mikinn álitshnekki
erlendis. Hafa málin í rauninni
alls ekki skýrzt.
En hver var ástæðaþess, aðMaó
hætti á að gera upp sakirnar við
óvini sína og lét koma til upp-
gjörs?
FORSAGAIVI.
Stefna Rússa. Stefna Rússa
hefur orðið æ friðsamlegri
á undanförnum árum. Hafa
forystumenn Sovétríkjanna stefnt
að friðsamlegri sambúð við auð-
valdsríkin og látið þau orð falla,
að kommúnisma yrði ekki komið
á, nema með því að sýna yfirburði
kommúnistaríkjanna. Þess vegna
hefur verið stefnt að því að bæta
lífskjör almennings, jafnframtþví
sem áherzla hefur verið lögð á
framfarir í hernaði og vísindum.
Hefur jafnvel verið farið inn á
brautir eftirspurnar og framboðs
í framleiðslu, en slíkt kallast end-
urskoðunarstefna á máli kommún-
ista.
Þessi undanlátsstefna samrýmd-
ist ekki hugmyndum kínverskra
valdamanna. Töldu þeir, að Rúss-
ar væru að verða taglhnýtingar
heimsvaldasinna. Létu þeir í veðri
vaka, að forystumenn Rússa væru
svikarar, sem hefðu brugðizt hinni
vinnandi stétt. Kom að lokum til
algjörra vinslita árið 1960. Köll-
uðu Rússar þá heim tæknimenn
sína og hættu allri aðstoð við
Kínverja.
Deilur innan Kína. Eftir að vin-
slitin urðu með Rússum og
Kínverjum, fór bráðlega að verða
mikill skortur á tæknimenntuðu
fólki. Varð þetta til þess, að sam-
dráttur varð á ýmsum sviðum,
enda þótt því verði ekki neitað,
að nokkrar framfarir hafi orðið á
öðrum.
Eins og áður var nefnt, hefur
eftirspurn og framboð átt lítið upp
á pallborðið hjá Kínastjórn. Hefm’
stjórnin trúað meira á áætlanir og
kennisetningar en raunhæfarhag-
fræðilegar úrbætur. Einnig hefur
þungaiðnaðurinn verið látinn sitja
í fyrirrúmi, því að stjórnin hefur
viljað áframhaldandi byltingu:
heimsbyltingu. Þess vegna hefur
verið mikill skortur á ýmsum
nauðsynjavörum. sérstaklega mat-
vörum. Hafa Kínverjar ekki getað
brauðfætt sig og orðið að kaupa
matvæli annars staðar frá.
Þegar framfarir urðu ekki eins
örar í Kína og búizt hafði verið
við og samdráttar tók að gæta,
fóru margir að efast um ágæti
þeirrar stefnu, er fylgt hafði verið.
Voru þetta einkum þeir, sem
stjórnuðu athafnalífinu. Margir
þessara manna höfðu hlotið mennt-
un sína á Vesturlöndum eða stjórn-
að fyrir árið 1949. Töldu þeir sig
hæfari, til þess að stjórna fram-
leiðslunni en fræðispekinga kom-
múnismans.
Komu nú fram kröfur um,
að gamla stjórnarfarið, sem ríkt
hafði fyrir byltingu, yrði rannsak-
að, því að þar væri margt gott að
finna, sem nota mætti í Kína nú-
tímans. Þýddi þetta ekki annað en
það, að endurskoðunarstefna
skyldi upp tekin eins og í Rúss-
landi og farið inn á brautir
kapitalisma. Komu þessi sjónar-
mið fram opinberlega, og var
stjórnin harðlega gagnrýnd.
Stóðu málin því þannig, þegar
Menningarbyltingin hófst.
UPPGJÖRIÐ.
Ótti Maós. Maó formaður hafði
gagnrýnt sovézka endurskoðun-