Frjáls verslun - 01.08.1967, Blaðsíða 62
FRJÁLS VERZLUM
62
NOREGUR
Framh. af bls. 10.
áfram að aukast og dafna í fram-
tíðinni. Og við frjálsa heims-
verzlun og gjaldeyri þurfum við
ekki heldur að hafa áhyggjur af
viðskiptajöfnuði hvers einstaks
lands. Þá geta menn selt, þar
sem markaðskjör eru hagstæðust,
og keypt, þar sem þeim falla
gæði, snið og aðrar aðstæður bezt.
NORRÆNT FRÍVERZLUNAR-
BANDALAG.
Nú er því þannig varið, að ís-
lendingar hafa haldið sig utan
þeirra viðskiptabandalaga, sem
mynduð hafa verið í Evrópu, en
Noregur hefur hins vegar verið
meðlimur EFTA frá stofnun þess.
Tvímælalaust hefur þetta hamlað
viðskiptum milli landa okkar. Ég
þykist vel skilja, að hin nýju við-
horf markaðsmálanna hafa valdið
fslendingum miklum áhyggjum,
og hér er þeim mikill vandi á
höndum, en ég vona, að takist að
finna einhverja þá lausn, sem set-
ur okkur við sama borð. í þessu
sambandi vil ég taka fram, að
það er ekki sízt vegna þessarar
góðu reynslu, að norska Stórþing-
ið hefur nú nýlega samþykkt með
yfirgnæfandi meirihluta atkvæða
að endurnýja umsókn Norðmanna
um þátttöku í Efnahagsbandalag-
inu. Einhver athyglisverðasti ár-
angur samvinnunnar í EFTA er,
að viðskipti skandinavísku þjóð-
anna þriggja hafa aukizt mun
meir en viðskiptin við aðrar þjóð-
ir bandalagsins. Norrænt fríverzl-
unarsvæði, sem svo mjög hefur
verið rætt um, er nú fyrir hendi
í stærri heild. Nú vantar einung-
is rödd fslands til þess, að hinn
norræni kór sé fullskipaður. Þeg-
ar eða ef íslendingar hefja þátt-
töku, verður það hinn mesti
hvati viðskipta milli þjóða okkar
beggja.
FRÁ RITSTJÓRN
Tímaritið FRJÁLS VERZLUN hefur nú verið gefið út á
þriðja áratug. Þennan langa útgáfutima á ritið að
þakka þeim ágcetu mönnum, er hvorki spöruðu tíma
né erfiði til þess, að það mcetti halda áíram göngu
sinni. Er starf þessara manna þeim mun þakkarverðara
fyrir þá staðreynd, að mest var unnið í frístundum og
af fórnfýsi fyrir góðan málstað, enda hefur ritið ávalit
verið „trútt sínum titli", og svo mun verða enn.
Með vexti verzlunar og viðskipta hefur þörfin aukizt
fyrir rit um þessi efni, — rit, sem ekki vœri að mestu
unnið í tómstundum eða einskorðað við eitthvert
einstakt félag eða samtök, — heldur rit. sem veitti
góða heildaryfirsýn yfir verzlunar-, viðskipta- og efna-
hagsmál: starfaði á breiðum grundvelli og bœri hags-
muni verzlunarstéttarinnar í heild fyrir brjósti.
Hin smcerri tímarit á verzlunar- og viðskiptasviðinu
hafa ekki verið þess megnug að gerast slíkur vettvang-
ur verzlunarinnar og viðskiptalífsins, bœði vegna
smœðar sinnar og oft ólíkrar afstöðu til ýmissa dcegur-
mála, — en að því hlaut að koma fyrr eða síðar, ac
út yrði gefið blað, sem nceði til allra þeirra, er við
viðskipti fást og starfa: þeirra málgagn og málsvari.
FRJÁLSRI VERZLUN, sem nú er gefin út í nýrri mynd.
er cetlað að verða slíkt rit. Að miklu er stefnt, en leiðin
eigi greiðfœr. Er það þó von þeirra, sem að blaðinu
standa, að settu marki verði náð með aðstoð og sam-
vinnu þeirra, er í viðskiptalífinu starfa. Megi blaðið
verða verzlunarstéttinni og heilbrigðum viðskiptahátt-
um til nokkurra heilla.