Frjáls verslun - 01.08.1967, Blaðsíða 24
24
FRJÁLEÍ VERZLUN
Enn er drukkið Kaabers-kaffið...
Þrátt fyrir mikinn Intiflutning erlendra kaffitegunda selja
0. Johnson & Kaaber hf. 70% allrar innanlandsiteyzlu.
Verzlunarhættir á fslandi bi'eytt-
ust mjög um og eftir síðustu alda-
mót. Var þess skammt að bíða eftir
aldamótin, að verzlunin yrði nær
alíslenzk.
Það er almennt álitið, að þýðing-
armesti þátturinn í þessari þróun
hafi verið tilkoma íslenzku heild-
verzlananna. Þær risu fljótlega
upp, eftir að landið komst í síma-
samband við útlönd, og var miklu
auðveldara að starfrækja smásölu-
verzlun innanlands, eftir að kveða
fór að þeim en áður hafði veiið.
Þetta leiddi auðvitað til þess, að
fleiri fóru að stunda vei'zlun en
áður, og verzlunin komst þannig í
íslenzkar hendur.
0. JOHNSON & KAABER.
Fyrirtækið Ó. Johnson & Kaaber
var stofnað árið 1906. Stofnendui'n-
ir voru þeir Ludvig Kaaber og
Ólafur Johnson. Voru þeir þá mjög
ungir, Kaaber 27 ára gamall, en
Ólafur 25 ára.
Tímarnir tvennir: Söludeildin 1936 og 1967.
Fyrirtækið varð brátt mjög um-
fangsmikið, þótt ekki blési byrlega
í fyrstu. Efldist það með ári hverju
og átti skip í förum nokkurn hluta
styrjaldaráranna. Einnig fékkst
Ólafur við önnur störf, því að á
styrjaldarárunum var hann gerður
að viðskiptatrúnaðarmanni ís-
lenzku ríkisstjórnarinnar og ann-
aðist ýmiss konar viðskiptasamn-
inga og störf, bæði fyrir opinbera-
og einkaaðilja.
1918—35.
Á árinu 1918 var Ludvig Kaaber
boðið að gerast bankastjóri Lands-
bankans. Þá hann boðið, en seldi
jafnframt sinn hlut í fyrirtækinu
til Ólafs. Ai’ent Claessen, sem þá
var fulltrúi í fyrirtækinu, gei’ðist
síðar meðeigandi og meðforstjóri
Ólafs.
Stolnuð kaffibrennsla. Fyrir
tækið vei'zlaði með ýmiss konar
matvöru, þ. á m. óbrennt og ómal-
að kaffi. Skorti því tilfinnanlega
aukna þjónustu, og varð þetta til
þess, að fyrirtækið stofnsetti kaffi-
brennslu árið 1924. Voru keyptar
hinar beztu vélar og var unnt að
brenna og mala 50 kg. á dag. (Nú
hafa vélar Kaffibrennslunnar af-
kastagetu upp á 288.000 kg. á mán-
uði, þó að sú afkastageta sé enn
ekki fullnýtt).
StofnuS kaffibœtisverksmiðja.
Fyrirtækið hafði lengi flutt inn
þýzkan kaffibæti, Ludvig David.
Um 1930 kom til orða að banna
þennan innflutning til þess að
spara gjaldeyri. Fyrirtækið reisti
þá sína eigin kaffibætisverksmiðju
árið 1932. Var hún til húsa í
Fischersundi 1.
Bæði kaffibrennslan og kaffi-
bætisverksmiðjan eru sjálfstæð
fyrirtæki að formi til.
1935—55.
Árið 1935 voru fyrirtækin gerð
að hlutafélögum, en höfðu áður
verið einkafyrirtæki. Þeir Frið-