Frjáls verslun - 01.08.1967, Blaðsíða 43
FRJÁLS VERZLUN
43
um yrði ég a. m. k. ekki í þing-
ílokki. En sem betur íer tel ég
engar líkur á. að til slíks muni
koma.
SKIPULAGSBREYTING A.S.t.
F.V.: Hver er tilgangurinn með
skipulagsbreytingu A.S.Í.?
HANNIBAL: Auðvitað er hann
sá að leita þeirra skipulagsforma,
sem geri hreyfinguna í heild sterk-
ari og starfhæfari og svari betur
kröfum tímans miðað við þá þró-
un íslenzks atvinnulífs, sem átt
hefur sér stað á seinni árum og
áratugum.
í öndverðu var bein aðild sér-
hvers verkalýðsfélags allsráðandi
í skipulagi Alþýðusambandsins.
Á seinni árum hafa orðið tilnokk-
ur fagsambönd stéttarfélaga. Sum
þeirra eiga beina aðild að Al-
þýðusambandinu — önnur ekki.
Má segja, að réttarstaða lands-
sambandanna í A.S.Í. sé sitt með
hverju móti. Auk þess hefur svo
haldizt bein aðild fjölda margra
smárra og stórra, og á ýmsan hátt
gjörólíkra stéttarfélaga.
Með fyrirhugaðri breytingu er
smástefnt að beinni aðild fagsam-
banda, er öll hafi sömu réttindi
innan heildarsamtakanna. I þá
átt hefur þróunin fyrir löngu leit-
að í nágrannalöndum okkar.
Alþýðusambandsþingin voru
orðin svo fjölmenn, að þau voru
í sumu lítt fær um að leysa fé-
lagsleg vandamál — og einnig
óhemju dýr. — Miklu fremur
voru þau orðin pólitískur vígvöll-
ur stjórnmálaflokkanna. — Þau
hafa verið haldin annaðhvort ár.
Nú er fyrirhugað, að þau verði
miklu fámennari og aðeins hald-
in fjórða hvert ár. Sérþing fag-
sambandanna munu svo sennilega
haldin annaðhvort ár, og þau
munu kryfja vandamál starfs-
greinanna til mergjar.
Með hinu fyrirhugaða skipu-
lagi verða samningamálin áhönd-
um færri aðilja en áður: þ. e.
sambandanna í stað hvers íélags
samkv. gildandi vinnulöggjöf.
Stærri einingar eru líklegri til
þess að gefa aukin styrkleika, eða
það vonum við a. m. k.
Nú er ekki óalgengt, að á ein-
um og sama vinnustað séu fé-
lagsmenn úr þremur, jafnvelfjór-
um stéttarfélögum. Engin vissa er
fyrir því, að þau eigi í kjara-
samningum eða lendi í vinnudeil-
um samtímis. Slíkt getur skapað
atvinnufyrirtækjum mikla óvissu
og valdið truflunum hvað eftir
annað. Hver stöðvunin gæti rek-
ið aðra.
Á þessu og mörgu öðru von-
umst við til að geta ráðið bót, ef
tillögur þær til gjörbreytts skipu-
lags, sem nú eru á döfinni, verða
samþykktar á framhaldsþinginu
í haust.
í HAUST.
F.V. Hvað hyggjast verkalýðs-
íélögin fyrir í haust? Verða settai
fram auknar kaupkröfur? — Ef
svo, dlítið þér þá, að efnalrags-
lífið þoli slíkt vegna slœmrar af-
Hannibal Valdimarsson:
„ef syo fœri, að einhverjir af þing-
mönnum Alþýðubandalagsins stuðl-
uðu að því, beint eða óbeint, að
ógilt vœri löglegt kjörbréf einhvers
af þingmönnum Alþýðubandalags-
ins, vœri eining Alþýðubandalagsins
rofin. Með slíkum mönnum yrði ég
a.m.k. ekki í þingflokki."
„eftir langvarandi góðœri afla-
uppgripa og síhœkkandi verðlags,
cettu framleiðsluatvinnuvegir okkar
að standa með blóma og geta
borið hœrra kaupgjald. Kröfur verða
því óefað bornar fram,"
„Með góðu samstarfi sterkustu
þjóðfélagsaflanna verður öllum erf-
iðleikum rutt úr vegi."