Frjáls verslun - 01.08.1967, Blaðsíða 27
FRJALS VERZLUN
27
Sölu- og markaðsmál /
Bandaríkin eru aðalmarkaður
Isiendinga
fyrir frystar fiskafurðir
GUÐIVIUIMDIiR H. GARÐARSSOIM,
viðskiptafræðingur,
skrifar um markaðsmál
Af heildarútflutningi íslands
hafa sjávarafurðir skipað fyrsta
sess og verið rúmlega 90% heild-
arvöruútflutnings þjóðarinnar. 1
þessum útflutningi hafa einstakir
afurðaflokkar haft mismunandi
þýðingu frá áratug til áratugs.
Frá styrjaldarlokum 1945 hafa
hraðfrystar sjávarafurðir verið
einn mikilvægasti útflutnings-
flokkurinn og hinn helzti. Þessu
veldur m. a. ný framleiðslu- og
dreifingartækni, samfara bylt-
ingu í varðveizlu matvæla við til-
komu hraðfrystingar og frysti-
tækni, sem skapar möguleika fyr-
ir nýjar og betri neyzluvenjur.
HRAÐFRYSTIIÐNA ÐURINN.
íslendingar voru það lánsamir
að tileinka sér fljótlega þá mögu-
leika, sem í þessu fólust gagn-
vart nýjum framleiðsluháttum í
framleiðslu og sölu hraðfrystra
sjávarafurða. Var þessi þróun
nokkuð byrjuð á áratugnum 1930
—40, en algjör bylting verður um
og eftir 1940, og hefur íslenzkur
hraðfrystiiðnaður síðan verið í
svo til stöðugum vexti og fram-
þróun. Er nú svo komið, að í
landinu eru starfrækt 90—100
hraðfrystihús, sem geta afkastað
um 4000 tonnum af flökum á sól-
arhring. Árið 1965 var heildar-
frysting sjávarafurða um 100.000
smálestir, sem mun vera mesta
ársframleiðsla til þessa.
Hlutdeild hraðfrystra sjávaraf-
urða í heildarútflutningsverðmæti
íslenzkra vara var mest tímabilið
1956—1960, eða um 35% af ár-
Your Entrée to Greater Fish Profits
ICELANDIC 4 FRESHER brands
legu heildarverðmæti. Sé útflutn-
ingur tímabilsins 1946—1965 tek-
inn í heild miðað við verðmæti,
kemur í ljós, að frystur fiskur er
27% af verðmæti heildarútflutn-
ings umrætt tímabil. Árið 1966
var hlutdeild frystra sjávarafurða
um 26%. Ástæður hlutfallslækk-
unarinnar er hin stóraukna hlut-
deild síldarafurða í útflutningi
síðustu ára.
ErfiSleikar. Islenzkir útflutn-
ingsatvinnuvegir hafa oft á tíð-
um átt í tímabundnum erfiðleik-
um, og er svo háttað nú. Þessum
erfiðleikum hefur verið mætt
með ýmsum hætti og þeir leystir
á þann hátt, að íslenzkur útvegur
og fiskiðnaður hefur eflzt, öllum
landslýð til blessunar.
SAMTÖK.
Einn liður í viðleitni fiskfram-
leiðenda í þá átt að styrkja stöðu
sína inn og út á við hefur verið
að stofna til útflutningssamtaka,
sem önnuðust sölu og afskipanir
afurðanna. Á grundvelli þessa
hefur uppbygging hraðfrystiiðn-
aðarins í landinu byggzt síðustu
þrjá áratugina, en Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna og Sjávaraf-
urðadeild SÍS, sem hafa annazt
sölu svo til 100% allra útfluttra,
frystra sjávarafurða, voru stofn-
Áróður fyrir aukinni fiskneyzlu: S.H. birtir í bandarískum blöðum
litríkar auglýsingar með glæsilegum myndum af mismunandi fiskrétt-
um, og ýtir þannig undir aukna eftirspurn.